Nafnlaus auglýsinga comment eiga hreinlega ekki heima hér

Kæri nafnlausi auglýsandi!

Hér á þessari síðu rausa ég um mig og mitt og öllum er velkomið að tjá sig um það, hafa skoðanir á því þar sem ég hef kostið að birta það á almennum miðli. Þeim almennasta sem til er – internetinu sjálfu. Jafnvel þó efnið sé í meira lagi persónulegt eins og t.d. myndin hér að neðan.

Ég hef unnið við vefmiðil og þekki óritaðar og ritaðar reglur þess ágætlega – ég þekki einnig almenna kurteisi ágætlega – þó hver skilgreini hana fyrir sig.

Ég set tengla inn á aðrar síður sem ég vitja oft og hef áhuga á og er því þar með e.t.v. að auglýsa þær um leið. Fólk lítur hér við, sumir skrifa eitthvað notalegt handa mér í baráttunni við sjálfa mig á meðan enn fleiri lesa bara og hafa vonandi eitthvað gaman af að fylgjast með mér vegna tenglsa þeirra við mig eða þekkja einhver viðfangsefni sem ég fæst við. Ég hef ekki sett tengla inn á magaminnkunarsíður hversu ágætar sem þær aðgerðir reynast öðrum. Ég fæst hins vegar við hlutina á annan hátt. Útfrá því að breyta um lífsstíl, -með því að hugsa um þessa þætti: hreyfingu, mataræði og hvíld.

E.t.v. á þessi síða sem vísað er í, í tvígang í ,,commentum“ hér eftir að vekja áhuga minn og vonandi á hún eftir að ganga vel og öllum þeim sem velja þá leið sem titill hennar vísa til. Ég biðst hins vegar undan auglýsingum um þessa síðu í nafnlausum commentum hér á mínu bloggi.

Þú myndir hvort sem er ná betri árangri kæri auglýsandi ef þú segðir frá þér, kynntir þig og segðir hvað ræki þig hér inn á þessa síðu annað en leitarorðið magaminnkun á google þaðan sem þú komst hér inn fyrst.

Það er óviðeigandi að nota aðrar síður en sína eigin til auglýsinga sig nema með gjaldi eða leyfi og ég frábið mér þær nafnlausar í tengslum við bloggfærslur sem eru runnar undan einhverjum allt öðrum rifjum en þess að fara í magaminnkun.

Þér er hins vegar velkomið að kynna þig með formlegum hætti og síðuna þína og vísa til þess hvernig þú álítur hana geta tengst og hjálpað fjölskyldu minni og vinum sem fæstir þurfa þó á nokkurri magaminnkun að halda.

Vonandi lítur þú hér við þér til ánægju á nýju ári – en lætur auglýsingaherferð þinni hér með lokið.

Bestu kveðjur Ingveldur

Jólatré jólatré

Ég er bara algjörlega heilluð af jólatrénu mínu :-). Fékk mér nýtt jólatrésskraut núna fyrir jólin og ég er svooo ánægð með það að það er gasalegt. Verð að leyfa ykkur að njóta! Já svo ekki sé nú minnst á það hve ánægð ég er með að það er komin stafræn myndavél á heimilið á ný! Aðalsteinn er svo góður að leyfa mér að nýta hana með sér :-).

Posted by Picasa

Þorláksmess–a :-)

Iss ég held að áætlanir séu bara svona mest til þess að gera ekkert með þær – gæti maður ekki sagt að þær væru svona til viðmiðunar? Jólaundirbúningsáætlunin mín er nú svoldið öðruvísi í verki en á bloggi en það er allt í lagi :-).

Hér er allt í hæfilegri vitleysu en:

Jólakveðjur óma
Hangikjöt mallar við suðumark
Jólagjafir lúra hér og þar um húsið
Kertin loga innan um ókunnulega hluti sem eru á vitlausum stað 🙂
Bjartur er úti á bletti að rífast við gesti og gangandi 😉 og keyrandi
Úti er yndislegt veður
Jólatréð virðist vera alveg tilbúið fyrir skautið sem er nú mikill munur!

læri læri lær

…en ekki í Khí heldur í lífinu sjálfu!

Ég er búin að læra eitt. Það eru engin tímamörk á því hvenær ég VERÐ að vera orðin svona góð á ógeðstækinu, eða hvenær ég verð orðin ákveðin kíló! Ég hef nógan tíma til þess að ná þeim markmiðum sem ég set mér. Hið eina sem ég hef nóg af er tími (og kíló!). Tíminn skiptir ekki máli í þessu dæmi hjá mér heldur það að ég er að breyta, gera og upplifa.

Ég er búin að læra tvennt! Í dýpstu niðursveiflu síðari tíma hjá Ingveldi, þunglyndi, blankheitum, unglingaárekstrum, vinnuóþoli, ægiþreytu þyngdist stúlkan ekki neitt heldur hélt fengnum hlut! Ég vildi óska að ég hefði lést síðasta mánuðinn en ég er svakalega glöð að ég hef ekki bætt á mig mörgum kílóum. Fyrst ég komst í gegnum þennan tíma þá má ég líklega bara vera sátt við mig því síðustu vikur hafa ekki verið þær auðveldustu það get ég svarið!

Ég er búin að læra þrennt! Maður þarf að halda vel á spilunum til að léttast. Kúrsinn þarf kannski ekki að vera þráðbeinn en maður verður að halda honum. Mín leið til að halda honum er hreyfingin og á hana ætla ég að leggja áherslu á næstu vikurnar – í gegnum jólin og reyna að halda fengnum hlut. Fram að jólum ætla ég að reyna að sækja á smjörfjallið. Hreyfingin verður að koma inn til þess. Ég er nokkuð góð af hælsporanum, hálsinn er þokkalegur þannig að ég ætti að geta spriklað smá neti lífsstílsbreytingarinnar!

Smá seinna – mundi þetta ekki alveg í morgun sko – erfitt að læra svona margt í einu :-):

Ég er búin að læra fernt! Mér leiðist í Styrk á morgnana. Það er svo mikið einhvern veginn, já best að móðga engan, en það er sem sagt svoldill ys og þys og ekki alveg mín stemmning. Og ég bara fann það þegar ég fór í Styrk í gær hvað það var dásamlegt og dásamlegt að vera í þriðjudagsrólegheitunum! Og þess vegna á ég svoldið erfitt í spinning um þessar mundir þar sem ég þoli ekki vel ys og læti! Því ætla ég að geyma spinning til næsta árs og fara aftur á þriðjudaginn í Styrk – og á sunnudaginn náttúrulega svo ekki sé minnst á föstudaginn (hlýt að komast þá for fanden). Jamm þetta er ég nú búin að læra. Viðbrögð við þessum númer fjögur er sem sagt auk þess að mæta á miðjum degi á þriðjudegi er að huga að því að labba á morgnana frekar en fara í lætin í Styrk.

En að minnsta kosti þarf ég að vera dugleg að hreyfa mig. Sækja á, á ný!

Einangrun jólagríssins

Ég skal nú bara segja ykkur það! Netið á þessu heimilaði er búið að vera mjög sérstakt svo ekki sé tekið dýpra í árinni. Ég er búin að hendast með routerinn inntaka á milli hér í húsinu og allt kemur fyrir ekki. Ég hringi í símann og þeir segja mér að gera þetta og hitt og ekkert virkar og allt virðistí lamasessi. Ég er mjög þolinmóð þegar kemur að tæknilegum vandræðum – það er enginn betri en ég í því að tengja sjónvörp, heimabíó og trallala – ég er ekki endilega sú fljótasta en ég fer það á þrautsegjunni sem mig vantar upp á í tækniþekkingunni skal ég segja ykkur.

Nú við bilanir hjá Símanum ræð ég ekki – en það virtist verða æ ljósara að meinið lægi þar. Nú því fór ég með routerinn í gamla hreiðrið sitt og voila – kviknaði þá ekki á öllum þeim ljósum sem slökkt var á tveimur tímum áður og netið virkar sem aldrei fyrr! Don’t ask me why but it does…

Og ég er því maður með mönnum í netheimum á ný! Sjúkket!

Jólaglöggið fór vel – þetta hús tekur 30 og eitthvað gesti mjög vel en það var frábærlega mætt og góð stemmning. Kerti og jólaljós hafa góð áhrif á mannskapinn og mér finnst voða gaman að fá alla. Takk fyrir komuna gullin mín. Vinnustaðurinn væri ósköp snauður ef við leggðum ekki rækt við hvert annað með samveru.

Þetta var ansi langur dagur, síðasta vika strembin og ég áreiðanlega hálf lasin. Með einhverja kvefdrullu blessunin 🙂 maður finnur það svo vel eftirá. Ég ætla því að láta það heita veikindi og annir getuleysi mitt og jafnvel viljaleysi til þess að sinna líkamsrækt í síðustu viku.

Ég fer í salinn á morgun og tek vel á til jóla. Ég stefni ekki á annað. Mér finnst í reynd verra hvað er erfitt að vera gáfulegur í mataræðinu og mér finnst eins og ég sé að missa tökin. En þar sem ég hef ekki misst þau – bara losað takið en ætla ekki að missa þau verð ég að vera meðvituð og ákveðin kona og halda mínu til streitu.

Það er ekkert annað í boði en halda áfram. Þið sem lesið þetta blogg haldið mér við efnið. Einhver vitlglóra í höfðinu á mér sömuleiðis og svo auðvitað kveljari minn og hvetjari. Auk allra hinna sem ég þekki og vilja mér vel.

Ég er að læra – ég er ekki búin að læra það, að þetta gengur upp og ofan og í raun er alltaf hægt að ná nýjum botni! Ég hélt t.d. að sumarið yrði erfiðasti tíminn hvað mataræðið varðar og kannski er það rétt en nóvember er svo sannarlega sá erfiðasti hvað hreyfinguna varðar. Kannski er það dimman, hálkan og lítil nenna til að fara í Styrk á morgnana – það er ekki eins hressandi og labba með Bjart í Hellisskógi. Kannski er það líka bara einfaldlega heimilisaðstæður, svefnleysi, þreyta í vinnunni og hælspori sem veldur því. Lífið er ekki alltaf einfalt og mitt er stundum meira að segja svolítið flókið. Ég má bara ekki ýta nýju þáttunum út og taka þá gömlu inn. Þeir kannski smjúga inn um glufurnar en það er hægt að henda þeim út aftur og byrja upp á nýtt. Ég get það, vil það og ætla. Og ekkert ef með það… Þó það hafi slæðst inn í hugsunina rétt áðan!

Nú er húsið fullskreytt. Þvotturinn í lágmarki, og ég þarf ekkert að gera annað en halda í horfinu, huga að jólagjöfum og kortum og e.t.v. að verkefni hjá Ingvar ;-). Ég get það alveg eins og allir þeir sem eru í námi og eru í prófum langt fram eftir öllum desember. Það er bara mikilvægt að halda sjó…

En ég vil ekki aumingjaskap, mistök og vitleysur og ætla því að stefna að því að lágmarka slíka vitleysu sem allra mest. Á morgun fel ég nammið og kökurnar frá því á föstudaginn og huga að matardagbók. Því ég á það skilið að hafa mig með mér í liði, mín vegna 🙂 vildi bara koma ég mig mér og mín fyrir í einni setningu 😉

Hafið það gott á aðventunni… Ég er að hugsa um að kaupa mér eina bók og lesa – líst ykkur ekki vel á það? Nú er markmiðið að slappa af – auk allra hinna fínu líkams-lífstíls eitthvað markmiðanna minna 🙂

Ykkar Inga jólagrís

Jólajólajólajóla

Ég er adrenalínsfíkill. Ekki bara ofátsfíkill (á nú eftir að kaupa það skoho) frekar síátsfíkill, ja hvað um það amk fíkill og svo er ég vinnufíkill og svo elska ég að gera allt á síðustu stundu og bara nýt mín ekki fyrr 🙂

Ég býði alltaf kennurunum og starfsfólki sem ég vinn með til mín í jólaglögg – já já þó það sé gamaldags. Það er ekkert vesen segi ég – enginn matur og ekkert stúss þannig en … ég þarf að vera búin að skreyta allt og það er svolítill handleggur – því maður skreytir jú ekki skítugt hús! Nú svo þrífur maður svoldið og einhvern veginn þá draslast allt svoldið út þegar ég þríf – og því þegar allt er skreytt og fínt – þá er alltaf eitthvað svona sérkennilegt dót út um allt! Og þetta dót er bara einhvern veginn ekki hægt að færa eða gera neitt við fyrr en aaaaaaaallt er orðið næstum of seint!

En ég er þó búin að ýmsu sem var ekki búið á sama tíma í fyrra 🙂 Ég á bara eftir að setja upp svoldið útiskraut, taka heilmikið af drasli hér og hvar já og svona eitt og annað! Sjúkket að þetta er vesenislaust jólaglögg.

Og það er svo skemmtilegt að fá alla og hafa það notalegt og drekka heitan drykk! Nammi namm hlakka mjög mikið til. Í tilefni af því ætti ég að fara að TAKA til!

Ég hef ekki gert neinar sérstakar gloríur í mataræði í dag – en ekki hef ég nú borðað mikið grænmeti það verð ég að segja og eitt jólaöls glas hef ég drukkið – skil það ekki alveg því mér finnst það ekki einu sinni gott.

Nú fer ég og fæ mér svolítið kaffi ha humm ha og dúndrast svo í gegnum draslhaugana hér á mínum fimu fótum.

Mér tókst að sofa í rúma 5 tíma í nótt – nú eða tæpa sex, það er svei mér ekki mikið og hreinlega ekki nóg! En það kemur önnur nótt og ég ætla að æfa mig að sofa vel þá líka :-).

Markmið

Markmið númer eitt er að fara eftir þeim markmiðum sem ég set mér!

Gott markmið ekki satt.

Nú hef ég opinberlega eitt markmið – sofa
annað markmið er að meina eitthvað með því þegar ég segist borða gáfulega!
þriðja er að vinna að svolitlu í vinnunni minni og
fjórða er að fara amk 2 í Styrk í viku og 2 sinnum út að ganga þar til svefninn er kominn í lag en þá verður víst mataræðið að vera í þeim mun betri farvegi…

ja það væri það…

Er með höfuðverk dauðans!

Inga sem setur sér markmið en ætlar sér ekki endilega að standa við þau – fyrr en núna!

huhummmm

Ég afber ekki

…að fara í spinning!

Ég afber ekki að afbera ekki að fara í spinning.

En ég held ég bara geti það ekki….

Og þá þarf maður að hafa umburðarlyndi og þolinmæði –
og nú hentar það mér vel að búa það til og nota!

Sigh – I tell you – ég er meistari í umburðarlyndi og aumingjaskap í senn – when I go on the roll