Ég er búin að komast að

…hvað þetta er á húfunni hans Kimis. Ja hérna hér. Þið getið smellt á fyrirsögnina og komist að því líka 😉

Yes right – pr maðurinn þeirra þekkir Kimi illa því hann gæti aldrei nokkurn tímann sagt svona mikið á svona fínni ensku!

„It’s a real honor for us to be representing the Scuderia Ferrari team here in the UAE. You can see how passionate our fans are and spending time with them is a real pleasure,“ said Kimi Raikkonen.

HA HA HA – representing… real pleasure ha ha ha

gúdd fönn væri nær lagi

híhíhí

V dagurinn

bara svo þið vitið af því:

PÍKUGLEÐITÍÐINDI
PÍKUSTAÐREYNDIR
PÍKUSÖGUR UM ALLT LAND
18. mars Selfoss, Hótel Selfoss
Flutningur:
Arnbjörg Hlíf Jónsdóttir, leikkona
Jóhanna Vigdís Arnardóttir, leikkona
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar
og Kristín Hrefna Halldórsdóttir, stjórnmálafræðinemi
Tónlist: Lay Low
Húsið opnar kl. 20.00 og sýning hefst kl. 20.30
Miðaverð 1500 kr.

Úff svoldið dónaleg byrjun en ég reyni að lifa þetta cut og paste af.

Sigh. Tepran og það allt saman – ríka blygðunarkenndin

Sigh

Hvað gæti ég lært?

Er enn að hugsa það – þið hafið greinilega enga skoðun á því!

Sálfræði, félagsráðgjöf, lögfræði, heilsufræði, sagnfræði, tölvunarfræði….

Get ég unnið fyrir 156 þús næsta vetur við þær aðstæður sem ég geri í dag? Er eitthvað vit í því?

Ég er farin að efast satt að segja…

Blindhríð og læti

Ég var að hjálpa Ástu Björk að pakka áðan – svona rétt til málamynda – skil ekki hvað ég hef verið léleg við að hjálpa henni – fuss og svei. Heyriði þegar ég lagði af stað heim, skall þá ekki á blindhríð og ég mátti bara hafa mig alla við að verða ekki hringlandi ringluð í öllu saman! Úff púss – segi það og skrifa – mars er hundleiðinlegur mánuður veðurfarslega!

Ég er að hugsa ægilega mikið – haldið þið að ég gæti verið eitthvað annað en kennari?

Ef ég myndi ákveða að fara að læra – hvað finnst ykkur þá að ég ætti að læra?

Endilega komið með tillögur 🙂 Er svo mikið að hugsa. Ég held það sé ekki hægt að vera að fá 156 þús útborgaðar það sem eftir er ævinnar….

Neimm held bara ekki, nema þá fyrir hálfsdagsvinnu við símavörslu. Ég myndi sætta mig við það. Ekki viss um að ég myndi vilja vinna við það samt en svona launalega séð meina ég…

Uppveltelsi

Þegar maður er ekki undir svörtu skýi þá er það algjörlega raunhæfur möguleiki að hætta þessu þunglyndisuppveltelsi öllu.

Kýla bara á kílóin – láta þau fjúka, mæta í vinnuna með bros á vör, elska börnin (sem ég geri nú alltaf bæði mín og annarra :-)) borða grænmeti og taka til. Heimsóknir læðast jafnvel að manni í fullri alvöru!

Ja það væri það…

En sem sagt – stefnum fram á veginn – það er svo sem ekkert annað að gera.

Og mér finnast nýju æfingarnar algjört æði.

Vissuð þið að með því að stíga upp á palla – tvö stk þá brenni ég amk meira en í nokkru öðru? Vildi nú samt ekki vera að því í 20 mín – 8 duga fínt :-).

Púlsinn er að hækka – sem þýðir að ég er farin að hreyfa mig hraðar – og það finnst mér ekki slæmt og þið ættuð bara að sjá upphandleggsvöðvana á konunni – ekki slæmir 😉 Meira að segja farið að örla á biceps, og triceps bara hress líka 🙂

Svei mér margir broskallar

Jamm hætt að vola – hvað er líka hægt að vera að leggja það á eina litla bloggsíðu daginn út og inn. Fuss og svei!

Rættist úr

Alltaf gott að eyða peningum. Fékk mér svolítið af fötum í dag. Vantaði buxur en endaði nú með eitt og annað í farteskinu.

Fór í sund – fékk í hálsinn og það allt saman – sjáum hvort það lagist ekki bara eins og svo margt annað.

Styrkur á morgun og stefni á 5000 hitaeiningar þessa vikuna.

Halda sjó og það allt saman. Verð áreiðanlega ánægðari á morgun því ég ætla í vinnuna og stússast svoltíð fyrir hádegi. Veitir ekki af.

Lof jú

Almenn geðvonska

Dagurinn byrjaði svona líka ægilega vel – fór langt með að slá brennslumet í sundleikfimi – náði helvíta góðum púls og hvað eina. Allt að koma hjá mér þar – best að vera með sem minnst af hjálpartækjum þar – þá næ ég að hreyfa mig hálft eins hratt og ég þarf.

Við tók svo skóladagurinn – langur. Ég er búin að ákveða að ég ætla ekki að kenna einum tíma meira en 26 tíma næsta vetur – það þýðir að ég kenni næstum heilum mánudegi minna en ég geri núna og það get ég sagt ykkur – það munar um minna.

Ég veit ekkert hvað fólk segir um vinnutíma kennara. Ég hef amk ekki aðrar áhyggjur af mínum en að hann sé of langur. Og það er sem verra er að ég kemst ekki yfir nærri allt sem ég vil gera og þyrfti að gera. Sú tilfinning daginn út og inn er afskaplega slítandi.

Allt þetta hjálpar mér að hugsa um áform næsta vetrar.

Ég er þakklát fyrir sveigjanlegan vinnutíma. Ég er fegin að ég get unnið seinni part föstudags af mér á sunnudögum. Ég er fegin að ég fæ að fara í Styrk á mánudögum. Mér finnst gott að byrja vinnudaginn 3 daga vikunnar klukkan 7:30 en ekki kl.8:10 það þýðir að ég hef unnið af mér seinni partinn – en þá er ég ekki nærri eins spræk og á morgnana. Best þætti mér að geta byrjað sex þá daga sem ég er ekki í leikfiminni en því verður nú ekki viðkomið.

Svo er gott að eiga einn langan dag í viku og vinna bara og vinna. en það er svo sem ekki sérlega gaman að vera alltaf svo þreyttur í lok dags að maður getur eiginlega ekki annað en fyllst kvíða yfir öllu því sem bíður og bíður…

Þetta er líka erfitt starf – margt sem mæðir á manni á sömu mínútinni. En mikið eru samskiptin við börnin samt gefandi og lærdómsrík. En þau eru líka stundum erfið – taka á.

Það er ekki nema von að kulnun í starfi sé eitthvað sem bíði margra kennara.

Og við þurfum að hlusta á píp um starfið okkar út og inn. Verið bara velkomin í heimsókn og verið hjá mér í 2 – 3 daga – já jafnvel bara klukkutíma. Svo skulum við tala saman 😉