Í pípunum

Það er mjög margt að gerast í kolli mínum sem síðar verður sagt frá. Það er reyndar þess eðlis að það tekur allan minn tíma og orku – og ég hef ekki við að fylgjast með hugsanaferlinu mínu.

Læt ykkur vita síðar 😉

Þessi múla

Ok ok ég get illa haldið með Ferrari og alls ekki með Massa. Erfitt að þola Alonso. Svag fyrir Kimi og finnst Hamilton yndislega breskur – yfirvegaður og svo er hann íðalfagur náttúrulega.

Þessi urðu úrslitin í keppninni. – Sem þýðir að ég VERÐ að gera eitthvað í þessum ökumönnum mínum í liðsstjóraleiknum…

Er að hugsa um að stela Palla liði og gera það að mínu 😉 Sniðugt ekki satt. Sem minnir mig á það að Palli er kominn í netsamband í Færeyjum. Til hamingju með það!

dj… verkun maður

Haldið þið ekki að ég hafi gleymt Polla þegar ég fór í sund áðan! Versti ótti minn varð að veruleika!!!! Lá við að ég keyrði heim á sundbolnum þegar þetta uppgötvaðist. Holy Shit!

Er bara að vona að ég hafi brennt 370 hitaeiningum – á 30 mín sundi og hlaupi – ætti að vera um 500 en ég fann alveg að maður keyrir sig meira áfram þegar maður er með Polla með í liði. Sigh…

Vona samt að ég fái bikar.

Og nú er að halda haus í mataræðinu.

Ég held ég verði bara að viðurkenna að ég þurfi eitthvað aðhald þar líka. Ætla að byrja á fínu matardagbókinni sem ég bjó til í vetur – hún skilaði mér helling þegar ég notaði hana.

Svo þarf ég að búa til 120 bollur í kvöld eða morgun… Ætli gerdeig geymist ekki fínt ef ég kem ekki öllu deiginu í kringlótt form….

Er þetta ekki það krúttlegasta?

Var annars að skoða myndir af skólalífi í Færeyjum því mér fannst kannski og e.t.v. að ég ætti bara að kenna þar næsta vetur og vera ekki að vesenast þetta en mér leist ekki alveg á vettvangsferðirnar sem þeir skólar fóru í sem ég sá til í myndasafni…
Svoldið mikið bratt og margar hengibrýr yfir svona alls konar ógeðsgjá og gilja fyrirbæri.
Oh my god… En kannski ef maður er enskukennari þá þarf maður nú ekki að fara mikið í vettvangsferðir…
Þarf að hugsa þetta aðeins. En þetta er sem sagt mynd frá Austurey í Færeyjum. Christ þetta er svo krúttlegt.
Það virðist annars ekki vera sérlega mikil áhersla á að konur stjórni þarna í Færeyjum – bæjarstjórnin í Rúnavík er amk ansi karlleg… og svarthvít

Illt í hálsinum

…og er ekki viss um hvort ég sé vinnufær – er nú samt komin hingað í skólann. Sé ekki nema hæfilega vel, töluverður höfuðverkur og hálsinn stífur sem fjöður.

Kunnugleg einkenni verð ég að segja. Það er samt ekki hægt að segja að ég hafi ekki verið að mýkja mig upp í gær – held ég hafi verið 2 tíma í heitu pottunum! Ásamt 800 Frökkum eða gvöð má vita hvað!

Keyra upp stuðið

Holy crap sagði einhver – einhvern tímann. Ég geri þau orð að mínum. Sofnaði klukkan rúmlega tvö í nótt en það var ótrúlega mikið að gera hjá syni mínum í símanum fram eftir nóttu. Ásta Björk sagði mér einu sinni að aðferðin sú að vekja fólk með stuttu millibili rétt þegar það væri að festa svefninn væri pyntingaraðferð. Ég var algjörlega sammála því þarna um tvö leytið og langaði mest að vola bara svolítið.

En í skólann er ég komin – kennsla til þrjú í dag og Reykjavíkurferð seinni partinn. Þyrfti eiginlega að fara í Styrk og brenna svolítið. En ég er nú ekki viss um að ég nenni því…

Ykkar Inga ofurþreytta

Ég á afmæli í dag!

Það er nú svei mér skemmtilegt – hef ekki haft neina afmælistilburði uppi í dag – mundi ekki eftir því að ég ætti afmæli í morgun. Ég er bara mjög fegin að ég er ekki 40 ára lengur það var mjög leiðinlegt ár – úff púff.

Ég er búin að fara í þrjár yndislegar fermingaveislur í páskafríinu. Glæsileg börn og ljúfar veitingar. Borðaði minnst 300 gr af grænmeti í tveimur þeirra en einnig nokkra konfektmola og kökur.

Ég hef farið tvo 40 mín hjólatúra og einn 60 mín langan auk nokkurra 20 mínútna.

Ég hef farið tvisvar sinnum í sund til að synda – miklu oftar í pottana :-).

Ég hef farið tvisvar sinnum í Styrk – frekar en þrisvar sinnum…

Þetta voru alls 6:30 klst. og 6970 þús hitaeiningar.

Ég ætla bara að vera ánægð með þennan hluta. Ef ég hef bætt á mig tveimur kílóum um páskana þá ætla ég – og hvort heldur sem er að taka verulega á í næstu viku og brenna 600 hitaeiningum dag hvern hið minnsta fram á sunnudag. Það þýðir að það verður ekki pása á morgun né fimmtudag. Ég verð líka að vera dugleg því ég hef ekkert gert í dag. Vera svo að daðra við danska þess á milli.

Palli er farinn til Færeyja blessuð litla lúsin mín. Aðalsteinn skoðar möguleika á Eyjum um verslunarmannahelgina – hugsar svolítið mikið í djammi drengurinn sá!

Ég hugsa um að mála húsið mitt í sumar og um mynstursteypu. Kannski verð ég einhvern tímann rík eða séð í fjármálum – þá get ég allt mögulegt.

Afmælisbarnið kveður

Úff hvað er mikið að gera :-)

Það er nú svei mér margt sem þarf að gera í páskafríi. Í dag er samt fyrsti dagurinn sem ég er í fríi – það hefur verið svo mikið að gera í því að baka 6 hæða fermingatertu og skreyta hana- fara í fermingaveislu og stússast þar svolítið, taka til í geymslunni og undirbúa 20. apríl og ég veit ekki hvað og hvað. Skil ekki að ég megi vera að því að vinna svei mér þá. En í dag ætla ég ekki að gera neitt nema hugsa svolítið um frelsara vorn og þjáningu hans og frelsun okkar hinna.

Svo er ég að reyna að koma vitinu fyrir tölvur heimilisins sem er ætíð tímafrekt starf.

Svo er ég að hugsa um hvort ég ætti ekki að borða páskaeggið mitt í dag frekar en á sunnudaginn – finnst eitthvað svo geggjað að gera það þá og ná ekki að brenna því af mér fyrr en einhvern tímann þegar langt er liðið á næstu viku því það er svo önnur veisla á mánudaginn og þá fer Páll líka aftur til heimilis færeyska folans! Annars finnst Palli Jogvan vera alltof mikill trítill til að geta kallast foli og álitur sig vera miklu meiri fola en hann og hefur því ákveðið að kalla sig héreftir færeyska folann! Ég uni honum þess alveg.

Þetta með páskaeggið lítur þó ekki vel út – ef ég opna það núna er ég að eta það alla helgina í staðinn fyrir að líklega hef ég nú ekki samvisku til að borða það allt á virkum dögum – kannski hef ég þrek til að frysta það og borða það svo á föstudaginn kemur ;-).

Geðveikt góður dagur í Styrk á miðvikudaginn + mikið stapp í bakstri og ferð í Borgarfjörðinn. Ekkert gert í gær nema skreytt þessi kaka sem var í rauninni eins og að skreyta 5 kökur minnst. Komum svo heim í nótt og ég byrjaði fríið í dag :-). Mjög gott en búin að borða óþarflega marga kanelsnúða finnst mér – og ekki nenni ég fyrir mitt litla líf út að hreyfa mig en kannski fer ég í hjólatúr í kvöld – huhummm…. not….

En hva það kemur alltaf dagur eftir þennan dag – kíló eftir þetta kíló – í hvora áttina sem er.

Föstudagur ummmmm


Ég er svo heppin að það eru til föstudagar. Ég bara elska föstudaga.

Ég er svo heppin að vera í sundfimi. Ég bara elska sundfimi.

Ég er svo heppin að það er bara vika í páskafrí.

Ég er heppin að hafa áttað mig á því að framhaldsnám í kennslu er ekki fyrir mig!

Ég er svo heppin að eiga svo dásamlega systur. (gæti meira að segja sagt dásamlegar systur).

Ég er svo heppin að ég vinn með svo góðu fólki.

Ég er svo heppin að ég kemst í Styrk í dag og ég hlakka svo til að ég er alveg að springa!

Ég er svo heppin að bíllinn minn er alveg tandurhreinn!

Ég er svo heppin að ég gat föndrað, útbúið námsefni og hugsað helling í morgun!

Ég er svo heppin að ég gæti haldið lengi áfram enn!

Svona er ég nú heppin kona.