Markmið ársins 2008 – grænt skrifað í upphafi árs 2008 en rautt og blátt nú í upphafi árs 2009
Þar sem ég var ekki sem ánægðust með 12 kílóin mín þá held ég að ég verði að stefna á
350 gr á viku – 1,4 á mánuði 15,5 kg á komandi ári.
Þetta er sem sagt skjalfest. Hu humm – þetta gekk Alls ekki – en ég þyngdist ekki heldur og Ludvig á Reykjalundi segir að svona sé þetta bara.
Hreyfing inni ekki sjaldnar en 5 sinnum í viku. Helst sex sinnum. Lang oftast – stærsta hluta ársins var hreyfingin inni þetta – og stundum meira.
.
Taka alvarlega á mataræði – hugsa um að léttast í gegnum mataræði með stuðningi hreyfingarinnar en ekki öfugt. Spurning um hugafar. Leita mér stuðnings – sálfræðings, OA eða hvers annars sem er í boði til þess að ná tökum á þessu. Gerði allt þetta og er allt önnur manneskja – ræð miklu betur við allt sem snýr að mataræði og ég er t.d. hætt að borða nammi þó ég hafi gert smávægilegar undantekningar nú um jólin. Annars er nammibindindi frá 21. ágúst og ég er alveg viss um að ég haldi því áfram.
Hætta að stjórna – heldur hafa stjórn Æ þetta er svoldið flókið og ekki endilega víst að sé rétt en í grunninn gengur þetta.
Hætta að þykjast bera ábyrgð á öðru og öðrum heldur axla ábyrgð á sjálfri mér. Jamm en er svoldið spæld á ábyrgðarleysi annarra 😉
Safna fyrir USA ferð – þurrkar og rúmi! Gengur ekkert að safna en fór til USA og á nýtt gamalt rúm 😉
Gera handavinnu og finna mér farveg í námi. Ja ég gerði handavinnu núna fyrir jólin og byrjaði snemma en nú ætla ég að byrja í janúar – bara strax og samstundis takk. Og ég er að byrja í náminu núna í janúar.
Nú jæja þetta er nú kannski ekki svo slæmt eða hvað? Eins og áherslan á ekki bara að vera á peninga þá má hún ekki heldur bara vera á kílóin ;-). Og þetta er víst að mestu eins og þetta á að vera – og þeir sem vitið hafa segja að það sé árangur að hafa ekki gefist upp og bara þyngst. Og ég get sagt ykkur það að hreyfingin með mín kíló aumu lappir og vöðvabólgu er eiginlega ekkert annað en þrekvirki og ég ætla að líta á það sem slíkt.
Jamm Þannig að það er ,,bara“ að safna og léttast sem gekk ekki sem best – allt annað gekk barasta vel. Svo þrátt fyrir ýmsar hörmungar gengu markmiðin ekki svo illa – og nú þarf ég bara að semja ný!
Ég get ekki séð annað en að markmiðum hafi verið náð að langflestu leiti Inga mín.>Safna pening er nú bara eins og það er, það er svo miklu meira gaman að nota þá í eitthvað annað 😉 svo er ekki alveg hægt að safna núna.>Kílóunum fer fækkandi. Það er það sem gildir og þú hefur staðið þig svo frábærlega.>Við höfum það bara eins og landsliðið söng um árið.>Við gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar, gerum okkar besta 🙂>Mitt áramótaheit síðasta ár og núna er að klára, ekki kaupa meiri handavinnu (nema eitthvað alveg sérstakt) Gekk ágætlega í fyrra en nóg til ennþá tíhí 🙂>Gleðilegt ár Inga mín>Kv Haddý Skagapía
Líkar viðLíkar við
Gleðilegt ár Ingveldur mín og til hamingju með allt sem gekk vel á árinu! Þú ert svo sniðug að skrifa þetta svona niður og taka það svo út í lok árs jamm kannski maður taki þig til fyrirmyndar 🙂 >>Knús og sjáumst Villaeir
Líkar viðLíkar við
Já mér finnst þetta nú hafa gengið vel Inga. Að hafa sett sér svona ótrúlega stór markmið og ekki rúllað um koll við það eitt er ofvaxið mínum skilningi. Ég man ekki eftir að hafa sett mér nein markmið og þar af leiðandi ekki staðið við nein. Mæ ó mæ. Ég er búin að semja alveg bununa núna, bara til að gá hvort eitthvað gerist, eins og hjá þér elsku systir. Ég veit að þú átt eftir að slá í gegn á árinu – finn á mér að stórkostlegir sigrar eru í nánd.
Líkar viðLíkar við