Síðan ég byrjaði í lífsstílsbreytingunni – the on going one! þá hef ég gert áramótaheit því ÞAÐ ER SVO MIKILVÆGT A Ð HAFA MARKMIÐ – allt úr honum Baldri komið my god! hrmpf. Nú ég sá að áramótaheitin 2007 gengu vel – ég sætti mig við að léttast um 12 kíló – og þótti það slæmt. En núna úff …
Í minningunni var jólafríið í fyrra hreint ekki gott hreyfingarlegaséð – en halló – það var hrein snilld – ég hef ekkert gert í þessu jólafríi miðað við það maður minn – I kid you not… Bara sund og hvur veit hvað upp á hvern dag. Þetta árið hef ég farið einu sinni að synda – einu sinni að ganga og einu sinni að hjóla – já og einu sinni með Moggann. Fjórum sinnum hreyft mig þetta jólafríið – uss fuss það er nú ekki gott….
Og ég hef borðað svo mikinn mat að ég held að allt hið góða sem ég hef kennt líkamanum mínum um hvað sé nóg sé algjörlega farið út í veður og vind! Held það sko…
En ég hef ekki borðað mikið nammi – bara sama og ekki neitt…
Æ svona er þetta – og ég þarf að koma mér í eitthvað form fyrir 6.janúar – ef ég gerði nú eitthvað þrekvirki á hverjum degi… 6. janúar er á þriðjudegi – það þýðir að ég hef helgina…. oh my god. Jæja skítt með það – ég er sú sem ég er og get ýmislegt þó ég sé ekki á toppnum akkúrat núna – ég verð það þá eftir dvölina á Reykjalundi og er það ekki það sem ég vil? Jamm og júmm.
En nú ætla ég að gá hver áramótaheitin 2008 voru og meta þau.