Ég er að reyna að koma lífi mínu í eitthvað skipulag. Hætta að koma heim klukkan 6 og 7 alla daga og vinna um helgar og vesenast út í hið óendanlega… Setti niður skipulag í dag og viti menn – ég hef svo mikið að gera að ég á aldrei eftir að geta föndrað neitt eða hugsað um jólaundirbúning af neinu viti ég segi það satt…
Og samt kemst ég ekki yfir neitt og allt er í voða og vitleysu.
Ég sé ekki úr augunum út…
Er heilu kíló þyngri en ég var 29. okt og hélt þó ég hefði lést þessi býsn. Gaman að því – en skítt með það. Næstum erfiðasti mánuður ársins og síðustu 10 ára liðinn svo ég held mig við að vera sæmilega ánægð með það…
Var hjá sála í dag. Erfitt… verð svoldið lengi að bíta úr nálinni með það…
Sigh …
Vildi að ég gæti bara verið heima í tvo daga en þá fékk ég kvefskítinn um helgi svo það er úti.
En ég á amk nýtt rúm – og það er ískalt… þarf að læra að hitastilla herbergið rétt vegna þess… en það ætlar að koma vel út. En ósköp er ég uppgefin og uppgefin og uppgefin.
Elsku Inga mín eitthvað kannast ég við konu sem vann alltaf langt fram á kvöld (fyrir nokkrum árum hehummm…)alla daga…og ætlaði sko að gera eitthvað í því hahaha…..>>Miss you, ég er að læra fer í próf í fyrramálið en svo er þetta að verða búið fyrir jól bara klára nokkur verkefni hjá Óla frænda þínum Odds.>>Við heyrumst vonandi fljótlega :o)>>Villa
Líkar viðLíkar við
Ég er náttúrulega ekki í lagi og alveg komin í sama farið. Alveg að drepa mig á þessu
Líkar viðLíkar við