Fína veðrið bara

Þið skuluð nú ekki halda að það sé einhver brjáluð blíða í Californíu hrmpf… ekki í mars sem sagt.

Nú þarf ég að fara að leita mér að flíspeysu áður en ég fer út… Óvæntur kostnaður sem ég átti ekki von á ;-).

Ég missi af TVEIMUR f1 mótum…. sigh.

hafið þið séð Útsýnisaðstöðuna í GRAND CANYON? já já góðan daginn.

Ég er ekki að grínast. Þau labba á glerinu… Horfa niður… Og það er ,,bara“ bitinn sem heldur þeim uppi svölunum það er! Jájá góðan daginn. Ég á áreiðanlega eftir að fara út á þetta. Ekki spurning!

Það er spurning hvort það verði ekki bara ófært vegna snjóa?

Nei nei bara grín. Ægilega spennt – og ég þarf ekki að fara að Hoover stíflunni frekar en ég vil! ég er ekki sérlega hrifin af svona háu …

Svo missi ég kannski af eins og einu innflutningspartíi sigh – ef mér hefði þá verið boðið… Híhí. Nú en ég fæ svo svoldið í staðinn.

En ég bara verð að hugsa þetta með flíspeysuna.


<img src="http://banners.wunderground.com/weathersticker/gizmotimetempbig_metric/language/www/US/CA/San_Francisco.gif" border=0
alt=“Click for San Francisco, California Forecast“ height=40 width=467>

2 athugasemdir á “Fína veðrið bara

  1. Já Inga mín ég sé þig alveg þarna á glerinu hmmmm……..aðeins hærra en brunastiginn út úr Sunnulæk ;o) Bestu kveðjur og gangi þér vel að búa þig undir Ameríku!Kv. Villa

    Líkar við

Færðu inn athugasemd