Netlíf um of

Ég held ég sé komin með nóg af netlífi. Ég held það sé ekki gott að hafa allt svona á netinu liggjandi fyrir hunda og manna fótum…

Þarf aðeins að hugsa um þetta meira…

En hvað um það þá er ég amk algjörlega á kafi í vinnu og veseni…

Á að fara í staðlotu á morgun en ég kemst alls ekki – hringdi í kennarann og fæ að vinna daginn upp – ég hef aldrei vitað annað eins – hausinn á mér er fullur af mosa…

Ef ég man hvað ég heiti og hvað þá aðrir þá er það nú bara heppni.

Úps mín bara að fara að vinna

…og hún veit nú eiginlega ekkert í sinn haus – Sigmar sér um þetta bara í fyrramálið því ekki veit ég neitt í minn haus – ekki einu sinni að ég muni stundaskrána mína! En ég verð nú ekki lengi að finna út úr því.

Við erum búin, hjónin að færa hér til húsgögn og raða og gera svolítið heimilislegra en var það er afskalega kærkomið þó hreingerningin og svona tiltekt hafi setið á hakanum. Ég kemst nú frekar út úr því ein en að færa öll húsgögnin til.

Svo erum við líka búin að vera að hugsa um mataræðið og virðumst vera að ganga í takt það er frábært – gaman að vera með einhverjum í því að hugsa um mataræðið og heilsuna en ekki einhvern sem er eins og sé verið að drepa með heilsusamlegu fæði 🙂

Ég er ekki alveg búin að koma saman æfingaáætlun – en það liggur nú nærri:

ganga með mbl alla morgna – en hún er farin að taka um 25 – 30 mín á meðan hún tók bara um 15 mín í vor – svo lengist tíminn í vetur í hálkunni.

Badminton á þriðjudögum, blak á fimmtudögum. Gæti synt líka þá smávegis til að liðka.

Svo langar mig í tækjasal 2 – 3 sinnum í viku og það væri þá mán- mið og föstudagur. Við sjáum til með það.

Það þarf að finna taktinn í vinnunni líka.

En ég er ánægð með mataræðið síðan ég koma af Reykjalundi -skrifa matardagbókina og hún er ekki svo mjög galin.

En kertin sem ég keypti í Rúmfatalagernum – sprittkertin þeas eru óóóóótrúlega léleg…

Verkefnalisti

Þegar ég hef lokið verkefnum tengdum heislubót minni þá þarf ég:

Taka til í húsinu og þá meina ég alls staðar og um allt
Það vantar bókahillur og borðstofuborð…
hvítt lakk á gólflista á klósettinu og á skápinn sem er þar…
klósettrúlluhaldara og meiri peninga…

…og nennu.

Ég sem sagt ætlaði að hafa rosalega hreingerningu hér í húsinu eftir í dag þegar dagskrá lýkur – það er sem sagt markmiðið…

Hausthreingerning dauðans 😉

Afrakstur Reykjalundar

Nú er staðan þessi:

Bakvöðvar í messi
Skinn soðið og svo gott sem horfið af stórtánum – vegna viðspyrnu í sundleikfimi, við blöðkur og sund auk ofurnotkunar á sokkum
mjaðma-vöðva – festingar svona svoldið sérkennilega aumar
háls aumur
hæll aumur

Kostir
10 kíló farin á árinu eða svo – fyrir fullt og allt
ógeðslega góð að synda með snorkel
ógeðslega gaman að ganga með stafi
og eitthvað er ég nú styrkari…

Vöðvamassi litlu meiri en í vor
göngupróf kom ekki sérlega miklu betur út en í vor…
svengdartilfinning sem aldrei fyrr

en kannski er það allt útaf magabólgum – fæ lyf við þeim á morgun en svengdartilfinning er víst eitthvað sem fylgir því…

og dj er ég uppgefin maður. Þarf að hvíla mig vel og lengi held ég…

Og nú er bara að missa 3 kg á næstu 2 mánuðum.

Ég læt ekki undan löngun vegna þess
að ég ætla að vera 500 grömmum léttari á miðvikudaginn

að ég stend við ákvörðun mína!

Úff hvað er hægt að vera geðvond

…og það er ekki eins og maður hafi einhverja ánægju af því! Oj barasta!!!!

Aumingja Palli og Bjartur reyna bara að forða sér – þ.e. ef ég hef ekki potað mér í skjól sjálf… og samt er ég búin að láta laga á mér hárið – en það var í raun og sann að gera mig geðveika – um mánaðarmótin síðustu var ég kliptt sem sagt verstu klippingu ever – og hafði svo aldrei tíma til þess að láta vita af ósköpunum. Hefði helst bara viljað hafa buff allan ágúst oj bara.

En þetta er samt úr sögunni en geðvonskan heldur áfram…

..og þegar maður er geðvondur þá gæti maður nú alveg hugsað sér að eta nammi, popp eða snakk eða eitthvað… sigh – svoldill barningur sem sagt.

Best að baða sig upp úr þessu og sjá hvort maður jafni sig ekki smám saman… þannig er það venulega.

Kannski er það tilhugsunin um vigt á morgun sem lætur mér líða svona. Eða kvíði vegna þess að maður þarf að fara í kennslugírinn en hefur misst af inngangi vetrarins – haustið og stússið sem fylgir því.

En jæja mér líður strax betur eftir að hafa blásið.

Og svo fer námið að hefjast, tiltektin í húsinu, já og svona eitt og annað!

Helgarfrí

Ég er búin að gera margt í dag: Bera út moggann, taka til alveg fullt, eða svona svoldið ;-), elda mat, þvo og hengja út, fara á Akranes og fara í klippingu og litun, heim um Þingvelli já og fara í eina heimsókn í kvöld – sem sagt bara svona alls konar.

Ég er búin að borða allt of mikið í dag – þetta verður sem sagt að vera nammidagurinn í dag…. svakalega dugleg þá á morgun og eitthvað verð ég að hreyfa mig annars er ég í djúpum kúk – kannski að ég líti á hjólið og sjá hvernig viðgerðin á því hefur tekist – ég hugsa að ég taki það aftur með og fari í hjólatúr um Mosfellsbæinn á miðvikudag – er búin að finna leið sem ég get hjólað held ég…. tala nú ekki um ef ég hef bremsur. Annars er bara ein vika eftir – og þá erbara að skella sér í þrif á húsinu og svo í vinnu.

Á morgun er heill dagur sem ég get einbeitt mér að því að eta ekki allt of mikið og rifjað upp ástæðuna fyrir því afhverju ég ætla ekki að láta undan átþörfinni – lönguninni kannski frekar, hefur eiginlega ekkert að gera með þörf. Ástæða er einföld og nærri í tíma – því ég ætla að vera sem léttust á vigtinni á mánudaginn!

Heim um heima og geima

Ég skaust aðeins heim í kvöld – smá flókið mál afhverju það var en ég ætla aftur í fyrramálið í þrælakistuna mína því ég bara get ekki hugsað mér að missa af Leikfimi 2 ég bara meina það – það er næstum óhugglega skemmtilegt í þeim tímum. Í dag rann af mér svitinn og þá meina ég rann í stríðum straumum og konan er farin að þurfa að skipta um bol á milli atriða – annar var hreyfing dagsins ekki nema 220 mínútur – og vantaði þó inn að ég færi í hjólatúr eða í golf.

Ég sprengdi hins vegar lærvöðvana og þeir áttu ekkert eftir, því Inga pinga er komin með smá svona áhuga á að djöflast í tækjasal… Er að hugsa um að reyna við slíka staði aftur í vetur – sundlaugin kannski?

En jæja – verð að fara að sofa – blaðburður í fyrramálið, akstur í bæinn, leikfimi 2 í 50 mín eða svo sundleikfimi og kannski sund… nú eða tækjasalurinn, já eða ganga með fínu göngustöfunum mínum.

Svo margt til í myndinni 😉

Og svo er það bara að huga að mataræðinu um helgina og standa sig því ég ætla að fá ótrúlega flotta tölu á viginni á mánudaginn!

Gaman að því 😉

Þrælakistan

…það er rosalegt að fá þessa heilsuþjálfara nýkomna úr sumarfríi. Þeim hefur dottið í hug allskonar þrælapísk á meðan þeir geystust um fjöll og firnindi…

Úff

En sem sagt í dag var óskaplega rólegur dagur – ég var ekki í hreyfingu nema í 160 mínútur eða svo sem er um 50 mínútum minna en vant er – já eða jafnvel 60. 220 mínútur eru ekki óalgeng samtala dagsins.

Ég stend mig ágætlega í því að borða rétt – enda fátt annað í boði nema þá í verslunum og jú maður gæti svo sem borðað of mikið af ýmsu hér það er ekki það en engu að síður át ég nú vinber í gær sem jafnast út með að vera 5 stig og jafnvel sjö – svona eins og einn meðalklasi – úff maður má sem sagt vara sig á þeim…

en líklega vegur hreyfingin eitthvað upp á móti þeim – fljótunnar sykrur vona ég.

En það er hins vegar ekkert annað hjá mér að ég verð að hafa mataræðið 100% til þess að ég léttist – smá hliðarspor einu sinni eða tvisvar í viku hefur svo sem ekki úrslitaráhrif en engu að síður – rétt mataræði annars léttist ég ekki neitt sama hvað ég rembist og sprikla.

En nú eru bara sex dagar eftir hér – þetta er fljótt að líða og um að gera að nýta sér þessa daga sem best – nú ætla ég að fara í það að minnka magann en eins og ég hef sagt þá borða ég alltof mikið ekki endilega vitlaust en of mikið – stóra skammta.

Í lag með það og áfram veginn.

Reykjalundur taka 2

Jæja þá er ég komin í sæluríkið Reykjalund og mikið er nú gaman að finna hve maður er hressari nú en í janúar – þó þyngdin sé nú alveg galin miðað við það sem ég ætlaði mér.

Smá leiðinlegt er nú samt að ég fékk mega mega hælsæri í stafagöngunni minni í gær og það vegna þess að fóðrið losnaði innan í fínu nýju en þó mikið notuðu gönguskónum mínum – hrmpf ógeðslega leiðinlegt finnst mér skoho! Það að vera með hælsæri dauðans því ég er nú dramadrottning þýðir að maður getur ekki verið í skóm – og þá ekki göngu legum skóm…

En ég er með hjólið mitt og ég hef hjólað svolítið ekki mikið samt – það er svolítð brött brekkan hér hjá Reykjalundi og ég er sko pínu hrædd að fara hana niður… ég er samt búin að finna leið sem ekki þarf að fara niður í móti heldur bara upp í móti þegar maður kemur heim, svo kannski finn ég bráðum malbikaða stíga eða amk malarstíga sem eru ekki ógnarkrókóttir skógarstígar með hrygg í miðjunni – en á einum slíkum lenti ég í gær og þegar mikil brekka tók við þá varð ég svo skelkuð að ég bremsaði, hentist fram fyrir mig – ekki í alveg í kollhnís eða svoleiðis en nóg til að rispa mig og rífa buxurnar mínar – ógesðlega mikil pæja finnst mér – hælsæri og reiðhjólaslys á sama deginum

Ég hef hreyft mig 210 mínútur – 130 mínútur og 180 mínutur þessa þrjá daga sem ég hef verið hér og það hefur verið bæði áköf og rólegri hreyfing – en afbragðsgóð og ég er ekki alveg ónýt nema ég finn fyrir beinhimnubólgunni á ný – og hælsærið /bara svo þið gleymi því ekki/ – annars var ég svo þreytt í dag eftir hreyfingu dagsins sem er hvíldardagur að ég sofnaði í rúma 2 tíma og ég var svo fegin því ég var miklu betri eftir ;-).

Ég fékk ýmis gögn til þess að ráða við svengdartilfinninguna í dag – og svo er löngun og svengd ekki hið sama – og nú er ég að greina hvort á við mig – ég var viss hér fyrir um 10 dögum þá var það yfirgengileg svengd en það má ekki missa sig í löngun. Ég hlakka mjög mikið til að gera planið og listana varðandi ofátið – því staðreyndin er sú að ég borða of mikið – ekki miðað við neinn annan en mig, – annars myndi ég léttast meira og hraðar. Það er nú bara ekki flóknara en það. Ferlegt en satt.

Ég fer ekki í gönguna á morgun held ég – ég ætla bara að reyna að hjóla hér um í staðinn – fara kannski í 50 mínútna túr eða svo, langar að fara hér aðeins niður úr en þá verð ég líka að vera búin að kynna mér brekkur og slíkt 😉 Dugir ekki að ana út í vitleysuna bara. En ég er búin að finna mér 20 mínútna hring sem er frábær og í honum eru 2 erfiðar brekkur upp í móti – ég er ekki eins hrædd að fara þær upp eins og niður.

En já sem sagt huga að átinu – og muna að í raun má maður sáralítið borða til að vera búin með 32 stig – meira að segja hér á Reykjalundi er auðvelt að fylla þann kvarða – úff. Hvað þá heima…

Það er heilmikil vinna framundan svo mikið er víst.

En góðu fréttirnar eru þær að ég er í MIKLU betra ástandi en ég var fyrir 6 mánuðum síðan og líkamlega er ég önnur manneskja og nú er nýta hreyfinguna og allt það sem ég hef gert rétt sem er mjög margt, til þess að léttast og eiga auðveldara með svo ótal-margt.

Því það er það sem ég vil en nánar um ástæðurnar fyrir ofáti og slíkt síðar – ég er með dúndur spennandi efni í höndunum ég er viss um að það hjálpar mér :0)

Ingólfsjfall ganga 2

Ah ég gleymdi einu – ég fór á Ingólfsfjall í gær og það var nú ekki sérstök frægðarför. Ég var ótrúlega hæg og þá sérstaklega niður en það var bara varla að ég kæmist það ég segi það satt. Ég var eitthvað svo taugaveikluð! Ég held ég hafi gengið fyrsta legginn of hratt – ég hefði þurft að hvíla oftar og þá skemur í einu.

Ég var svo sem ekki góð upp en afleit niður – aum í mjöðmunum helst en ég hef mikið verið að hjóla undanfarið og synti líka svoldið og hef fundið fyrir vöðvafestingunum í bæki og lærum. En eftir á að hyggja var þetta bara fínt – og ég var ágæt á eftir – fór í bæinn og svo heim að elda og ætla áreiðanlega aftur – ætla bara að vera aðeins hvíldari og betur etin þegar ég fer af stað.