Ég held ég sé komin með nóg af netlífi. Ég held það sé ekki gott að hafa allt svona á netinu liggjandi fyrir hunda og manna fótum…
Þarf aðeins að hugsa um þetta meira…
En hvað um það þá er ég amk algjörlega á kafi í vinnu og veseni…
Á að fara í staðlotu á morgun en ég kemst alls ekki – hringdi í kennarann og fæ að vinna daginn upp – ég hef aldrei vitað annað eins – hausinn á mér er fullur af mosa…
Ef ég man hvað ég heiti og hvað þá aðrir þá er það nú bara heppni.
Hef ekki skoðun á netlífi – nenni aldrei á netið sjálf svo ég er ekki til að dæma eeeen… ég hef meiri skoðun á því að maður þurfi að skipuleggja heilsuræktina sína! Ég vona að planið sé komið í gagnið og að ánægjulegt þyngdartap eftir Reykjalund haldi áfram! (By the way ef þú vilt vita hvert kílóin þín fóru þá getur þú talað við mig! Ég skila kannski kveðju frá þér!!!)
Knús Ásta
Líkar viðLíkar við