Horfum á björtu hliðarnar

…ég fór amk út að hjóla í 50 mín í gær eða svo – og brennnndi helling…
En ég hef líka innbyrgt helling – úff.

Ég er líka búin að læraí 2 klst og bara verið á facebook í 2 klst – nú og svo er ég búin að hengja út á snúru og færa eitt dekk sem var á miðri lóðinni…

og ég er að fara að ná mér í 1 lítra af vatni. Er sko að byrja á svona vatnskúr… huhummm….

Hjólið mitt er bilað – eða amk er felgan að aftan svoldið eins og harmonikka…

Og koma svo – þetta er allt á réttri leið í náminu – ég er byrjuð á verkefni sem átti að skila 23 mars og verð ekkert endilega mjög lengi með það – er búin að hugsa það í þaula sko – og seinna verkefnið liggur ljósar fyrir en hið fyrra – þó það sé meira að vöxtum.

Eitt, tvennt og hundrað

Ferming, afmæli, páskar, kvef og margt margt margt fleira – minna um nám samt…
Veit samt hvað ég ætla að gera – þarf bara alltaf að vera smá á facebook fyrst… eða eitthvað!

Mataræði í volil – er samt ekki mikið þyngri en síðustu opinberu tölur jafnvel ekkert – en viðurkenni að hjólatúr myndi koma sterkt innn núna en er alvarlega að hugsa um að vera einmitt löt í dag!

Á leið út á tún

einn góðan ganginn.

,,hmmm hvar ætli matardagbókin sé?“

,,….ah það er svo gott að fá sér mozarella með salatinu!“

,,Já nammi er náttúrulega slæmt en ef það er bara fengið sér oggu pons þá er það svo sem í lagi – hefur engin úrslitaráhrif.“

,,Ah ég er svoldið svöng – æ æ er klukkan orðin 21 – ah betra að borða núna en vakna í kannski nótt og fá sér eitthvað þá!“

,,Brauð já – já ég má nú alls ekki fá mér það en nýtt baquette er nú bara meiri freisting en ég ræð við…“

Viðjið þið að ég haldi áfram? Trust me ég hef svo miklar ástæður til þess að gera það sem mér sýnist í matarmálunum að ég gæti talað ykkur öll í kaf og mig fyrsta af öllum!

Að þessu sögðu held ég (en bara held) að ég fari og leiti að matardagbókinn og skrif óhroðann niður sem ég borða svona inn á milli. Ég má teljast góð ef ég held lægsta punkti fyrir páska eftir páska og líklega er raunsærra að búast við að maður þyngist um 1 kíló eða svo. En maður kann að ná þeim af sér svo enginn ástæða til þess að flippa!

Ég fór að hjóla í morgun með blöðin og hjólaði í rúmar 40 mínútur – Jósep krúsílingur gerði við hjólið mitt og það er í fínu fínu standi. Og þið ættuð bara að vita muninn fyrir mig að hjóla núna eða fyrir 6 mánuðum síðan – það er ekki sambærilegt! Svo miklu auðveldara og ég er ekki hálft eins þreytt eftir þennan tíma og 20 mín göngu.

Fínt mál sem sagt – allt nema þessi pínulitlu páskaegg sem ég er að borða núna. Já elskurnar svona er að vera klikkaður!

Gaman að vera til

… þess þarf nú líka stundum. Það er þetta frábæra veður – í morgun var svo fallegur regnbogi að það var alveg dásamlegt. Nú syngja fuglarnir í garðinum – Bjarti svona til hæfilegrar ánægju en hann þolir nú betur þrestina en Starrana – þá þolir hann nú ekki! Enda sitja þeir á mæninum á móti og gelta á móti honum. Úff það er nú meiri baráttan! Aumingja Bjartur, hundar, kettir (óvinir númer 1 – 1000) og fuglar allt í kring – já og fólk á reiðhjólum.

Palli farinn að ná í kerru og er ekki búinn að vera nema klukkutíma að því – á meðan tók ég til í eldhúsinu, bar til hluti og setti á réttan stað og þurrkaði svona meðfram einum og einum gólflista. Það er svo yndislegt að vera komin i frí!

Í dag ætla ég að baka fyrir Dísu nokkrar bollur því hún er að ferma litla krúttið nú svo er ég að fara með Áslaugu að horfa á blak því okkur langar svo að sjá blak spilað híhí! Erum svo heppnar að það er Kjörísmót í Iðu núna alla helgina.

Nú og svo þarf ég nú að læra svoldið. Jamm og svo þarf ég að fara að læra og við að flytja aftur í stofuna ;-). Og kannski mála þá litla herbergið… sem sagt nóg að snúast. Og ég er að ná Palla í þyngd og nú er hafin keppni á milli hjónanna – hann ætlar ekki að láta mig ná sér alveg strax ;-9 það kom nú bara svoldill keppnissvipur á minn – gott ef það hvetur einhvern að ég skuli léttast!

Spennufall

Ég er sprungin á sál og líkama eftir árshátíð og fleira. Nenni ekki neinu og af því tilefni er ég að gera ekki neitt og bara monta mig af því að staðfest tala er 11 kg á árin – 4 kg síðan ég koma af Reykjalundi. 13. febrúar. 6 vikur eða svo. 750 grömm á viku. Ummmm unaðslegt!

Ég er svo þakklát – þakklát fyrir Reykjalund og heilarann og sjúkraþjálfarann og ykkur öll! Bjart og Palla, Ragnheiði og Aðalstein ;-).

Góður dagur oh yeah

Jæja elskurnar nú er að baki ágætur mánudagur. Æfingar, leikmunagerð, blaðburður, sund og mataræði upp á 10 að baki í dag! Mánudagar eru hreinlega að verða mínir uppáhaldsdagar. Ég er lang best mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga – þá er ég bara í lagi. Svo gerist eitthvað spes á fimmtudagskvöldum eftir blakið og svo eru helgarnar aðeins verri en ekki alslæmar því ég á bara 1,6 kíló í júlí markmiðið mitt!

Hugsið ykkur blessunina að léttast barasta um 11 kíló á þremur mánuðum – ég sem léttist ekki neitt í HEILT Í ÁR – það er munur á. Þá er ég búin að missa 37 kíló í allt. Jamm það er nú ekki svo lítið og í þau þrjú ár sem þetta hefur varað þá hef ég aldrei þyngst. 36 mánúðir – 1 kg á mánuði. 250 grömm á viku að jafnaði – þó svo ég hafi ekkert lést þetta endemis ár 2008. En þetta er allt saman nám. Það sem drepur mann ekki styrkir mann ;-).

Hafið það gott og pælið í því hve dagurinn hefur lengst!

Sko…

Það eru svoldið mörg járn í eldinum….

Krakkarnir þurfa að æfa leikritið og kunna það… Smá brekka í því verð ég að segja en snertir mig svo sem ekki mikið nema vegna þess að ég þarf að hafa áhyggjur af því að þau geri það ekki ;-).

Aðeins þarf nú að búa til leikmuni…

Nú svo þarf að hafa svolítið samviskubit yfir öllu því sem ég ætti hafa gert um helgina en geri ekki. Svona varðandi hreyfingu og mataræði. Ég hef borðað alltof mikið undanfarið það er alveg klárt.

Svo hef ég nú ekki verið að hreyfa mig sérlega mikið en hvílt mig þeim mun meira. Og ekki veitir af.

Ægilega þreytt alltaf.

Fyrsta keppnin í F1

Ástralíukappaksturinn ummmm það er eitthvað alveg spes við hann. Þá opnast f1 bókin og það veit einhvern veginn enginn hver skrifar hana eða hvað ræður ferðinni við val á kaflaheitum!

Juuuuu hvað þetta er skáldlegt enda ræsingin næstum ljóðræn. Ég er gjörsamlega að drepast úr stressi alltaf – það er sama hver er fremstur, hvort minn maður – sem ég veit nú eiginlega aldrei hver er orðið, er fremstur eða aftar – spennan er slík að ég fæ herping í magann, þarf að pissa 5 mín fresti (sem er mjög leiðinlegt í upphafi keppni því þarf jú að horfa stíft fyrstu mínúturnar.

Það er allt á hvolfi – ferrari aftarlega en mclaren enn aftar! Brawn strákarnir bara fyrstir og samt þyngstir – með dreifi sem er engu líkur – og það fyrirbæri aftan á bílnum skiptir nú engu smá máli – dreifirinn er kannski svolítið eins og utanborðsmótor.

Í ár er allt nýtt – bílar, dekk og hvur veit hvað. Ég er eiginlega alveg ringluð og veit ekki neitt – en ég veit að þarf að vinna sjúkra þetta árið í liðsstjóranum – og Pál líka náttúrulega. Hrmpf…

Nýju reglurnar í F1
Myndir frá Ástralíu

Annað sem á eftir að segja frá – mörg stig í matardagbókinni – helgarnar erfiðar. Heilunartími í gær og líða neftir það! Námið mitt og fleira sem er í mauki en ég ætla ekki að taka það nærri mér. Ég á að horfa á áreitin virða þau fyrir mér og horfa á þau fara fram hjá mér – ekki taka þau inn á mig! Þekki það afskaplega vel þetta með að taka ekki inn á sig!

En nú er það upphitunarhringurinn!

Ótrúleg pæja!

Nú styttist óðum í takmarkið – ég hef opinberlega lést um 4,3 kg síðan á Reykjalundi 13. febrúar. Nú svo á ég áreiðanlega eftir að rokka þetta upp og niður og aðallega upp og taka svo aftur skell niður eins og venjan er að verða núna. Nú tek ég bara lægstu tölu og stick to it og viti menn á svona viku 10 daga fresti eru farin svona 500 – 800 grömm – alveg hreint eins og þetta á að vera :-).

Ég er ekki bara glöð og ánægð – ég er svo þakklát. Man einhver eftir 2008? Já þá léttist mín nú ekki mikið þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Úff púff….

En annars er ég að fara í blak – mér finnst það ótrúlega skemmtilegt en ég er nú ekki sérlega góð í því – og ekki er ég betri þegar lappirnar á mér láta eins og þær láta um þessar mundir. En ein góð verkjatafla hjálpar kannski til -ég ætla svo að synda í nokkrar mínútur á eftir – það er svo assgoti gott og hressandi. – Liðkandi.

2009 er ég að verða búin að léttast um 11 kíló! Ekki slæmt! Og aftur verður mér hugsað til 2008. Jibbí

Og áfram ætla ég að vera dugleg að halda matardagbók því án hennar er ég bara hreint ekki neitt!

Já sæll

Púls svona um og undir 50 – 104 í badminton er ekki neitt sem er eðlilegt í mínu tilfelli I tell you! Svona eins og 20 slögum minna en í meðlári! Og fyrir vikið er ég svo þreytt og úthldslítil og næ ekki neinum sprengikrafti. Ég er annars búin að sjúkdómsgreina mig – vanvirkur skaldkirtill er málið alveg þangað til blóðrannsókn segir annað. Öll einkenni nema handadoði passa! Slím og kuldi óreglulegur tíðarhringur og ég fer meira að segja ekki á klósettið að gera númer 2 nem eeeeeeendrum og sinnum! Gaman fyrir ykkur að vita það ;-).

Annars gengur ágætleg að halda matardagbók – fyrir utan laugardag og sunnudag. Ég hef ekki farið fram úr 32 stigum og jafnvel verið undir þeim – þannig að nú er ég að halda áfram en ekki velta mér upp úr helginni.

Ég er aftur orðin alveg afleit í fótunum og skrokknum almennt (sem sko passar vel við sjúkdómsgreininguna mína) – alveg afleit. Og svo ofboðslega þreytt! ERfitt að vakna, erfitt að vinna, erfitt að ganga með blöðin – allt svoldið erfitt eitthvað.

Skil þetta bara ekki – eins og ég var hress hérna einhvern tímann í nokkra daga…

svoldið spæld. Kannski verð ég betri einhvern tímann…