… þess þarf nú líka stundum. Það er þetta frábæra veður – í morgun var svo fallegur regnbogi að það var alveg dásamlegt. Nú syngja fuglarnir í garðinum – Bjarti svona til hæfilegrar ánægju en hann þolir nú betur þrestina en Starrana – þá þolir hann nú ekki! Enda sitja þeir á mæninum á móti og gelta á móti honum. Úff það er nú meiri baráttan! Aumingja Bjartur, hundar, kettir (óvinir númer 1 – 1000) og fuglar allt í kring – já og fólk á reiðhjólum.
Palli farinn að ná í kerru og er ekki búinn að vera nema klukkutíma að því – á meðan tók ég til í eldhúsinu, bar til hluti og setti á réttan stað og þurrkaði svona meðfram einum og einum gólflista. Það er svo yndislegt að vera komin i frí!
Í dag ætla ég að baka fyrir Dísu nokkrar bollur því hún er að ferma litla krúttið nú svo er ég að fara með Áslaugu að horfa á blak því okkur langar svo að sjá blak spilað híhí! Erum svo heppnar að það er Kjörísmót í Iðu núna alla helgina.
Nú og svo þarf ég nú að læra svoldið. Jamm og svo þarf ég að fara að læra og við að flytja aftur í stofuna ;-). Og kannski mála þá litla herbergið… sem sagt nóg að snúast. Og ég er að ná Palla í þyngd og nú er hafin keppni á milli hjónanna – hann ætlar ekki að láta mig ná sér alveg strax ;-9 það kom nú bara svoldill keppnissvipur á minn – gott ef það hvetur einhvern að ég skuli léttast!