Inga litla setti met í gær í dugnaði. Hún bar út blöðin, fór í kvennahlaup á Sólheimum- bara 2 km samt, svo fór ég við opnun á hönnunarsýningu í Ljóssafossvirkjun – frábæra sýningu, sem Hlín Helga frænka mín setti upp, þaðan fór ég í fermingarveislu hjá Rut nemanda mínum og svo í heimsókn til Hildar í hjólhýsið á Írafossi, Svei mér margt sem var aðhafst! En ekki samt tókst mér að hafa þennan dag nammilausan en ég held áfram að reyna.
Núna horfi ég á fótbolta og skiplegg sundferð. Þarf að synda smá í dag – nú eða hjóla. En veðja frekar á sundið. Það fer alveg svakaleg vel með lappirnar á mér.
Oh yeah ég fór að synda og allt! 500 metrar á föstudag, 600 metrar í dag og svo hjólað smá um bæinn. Ferlega ánægð með mig – nema brjóstsviðann… ekki ánægð með hann!
Líkar viðLíkar við