Í mörg horn að líta

Jæja amk er Ingveldur komin til baka!  En það er ótrúlega mikið vesen samt á sumum sviðum lífs míns en ég nenni ekki að tala um þau!  Bara sum þeirra!

Ég er svaka dugleg að hreyfa mig:  Í síðustu viku var synt og hjólað um allan bæ (er hætt að nota bílinn innanbæjar nema í neyð ;-)).  SVo erum við Hilmar byrjuð að hjóla í vinnuna og skiljum bílinn eftir einhvers staðar á leiðinni og hjólum þaðan.  Mjög gaman – fyrst maður kemur upp og svo aftur upp Kerhólinn!  Ég er mjög ánægða með að komast það – það er nefnilega allnokkur brekka.

Ég fór í gær í mjaðmameðferð og ég er miklu betri en ég var fyrir 2 vikum – líklega vegna þess að ég sit ekki eins mikið og er að hreyfa mig meira – hjólið gerir mér svakalega gott!

Í morgun svaf ég og svaf og fór svo að tína rusl með Samfylkingunni – það var nú ekki leiðinlegt!

Í gærkveldi komum Björgvin og Vilborg og söguðu hér tré hægri og vinstri og garðurinn er 500 kg léttari og flottari og allt!

Þvílíkur léttur

3 athugasemdir á “Í mörg horn að líta

  1. Ferlega eruð þið góð að ´hjóla þetta:)
    þú ert dugnaðarforkur, þarf að fara að taka þig til fyrirmyndar:)
    En við náðum auðvitað aðferðafræðinni, hvaðannað:D
    kv. Sædís

    Líkar við

Skildu eftir svar við Anonymous Hætta við svar