Dj… nú er ég komin á bömmer

Það hlaut að koma að því!  Ætli maðu rleggist ekki í algjört skammtdegisþunglyndi hægri vinstri – sigh – Áramótabömmer er sá versti það er sko klárt!  Úff…

Ekki tilbúin að vinna
Ekki tilbúin að hreyfa mig
Ekki tilbúin að hætta að éta
Ekki tilbúin að hætta tímabundið í náminu…
Svei mér þá ég er ekki tilbúin í neitt…
og alls ekki tilbúin í að taka til í kommóðum og slíku…

Ég verð að herða mig og fara að gera eitthvað annað en Café World og éta…

Christ – en ég fór nú í ræktina í gær og fyrradag – og í göngu á nýársdag og í sund á gamlárs…  Sigh

Alveg að klepera á sjálfri mér!

1 athugasemd á “Dj… nú er ég komin á bömmer

  1. Elsku vinkona :O)
    Anda inn og síðan anda út.
    Þú hefur staðið þig mjög vel á árinu. Hreyfir þig meira en margir – alla vega ég!!! Ert frábær í alla staði, góður kennari, blakari, syndari, húmoristi ofl ofl ofl.
    Sjáumst vonandi fljótlega
    Kv Sigurlín

    Líkar við

Færðu inn athugasemd