Sumt gengur annað ekki

Nám gengur vel
Vinna gengur vel – er ekki í nokkurri skuld vinnulega séð og hef skilað af mér öllum tímum og rúmlega það.   Kann að vísu ekki nægilega mikið í stærðfræði til að ráða við þá úkraínsku en það kemur….
Já var ég búin að segja að nám gengi vel 😉

annað er svo aftur verra…
Er samt búin að kaupa mér kort í Nautilíus í sundlauginni og þorði niður hringstigann – var ekki einu sinni smeik – hjólaði smá og fór á stigvélina fór svo í pottinn og geystist heim til þess að læra og ljúka verkefni númer 4 þetta misserið og ég gerði það – var ekki nema 5 mín of sein!  Hef því skilað öllu mínu og aldrei beðið um frest og er óstjórnlega stolt af því.
Mataræði í hönk svona að mestu, hreyfing of lítil en horfir til betri vegar.

2 athugasemdir á “Sumt gengur annað ekki

  1. Dugnaður í þér að drífa þig í ræktina í gær. Og til lukku með verkefnin.
    Hvernig leist þér svo á Nautilius?
    kv. Aslaug

    Líkar við

Skildu eftir svar við Anonymous Hætta við svar