Góður dagur oh yeah

Jæja elskurnar nú er að baki ágætur mánudagur. Æfingar, leikmunagerð, blaðburður, sund og mataræði upp á 10 að baki í dag! Mánudagar eru hreinlega að verða mínir uppáhaldsdagar. Ég er lang best mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga – þá er ég bara í lagi. Svo gerist eitthvað spes á fimmtudagskvöldum eftir blakið og svo eru helgarnar aðeins verri en ekki alslæmar því ég á bara 1,6 kíló í júlí markmiðið mitt!

Hugsið ykkur blessunina að léttast barasta um 11 kíló á þremur mánuðum – ég sem léttist ekki neitt í HEILT Í ÁR – það er munur á. Þá er ég búin að missa 37 kíló í allt. Jamm það er nú ekki svo lítið og í þau þrjú ár sem þetta hefur varað þá hef ég aldrei þyngst. 36 mánúðir – 1 kg á mánuði. 250 grömm á viku að jafnaði – þó svo ég hafi ekkert lést þetta endemis ár 2008. En þetta er allt saman nám. Það sem drepur mann ekki styrkir mann ;-).

Hafið það gott og pælið í því hve dagurinn hefur lengst!

3 athugasemdir á “Góður dagur oh yeah

  1. Sæl Ingveldur.Ég verð nú bara að segja til hamingju 🙂Þú ert aldeilis dugleg í þessu!!Bara að halda svona áfram, þú ert orðin flott en átt eftir að verða flottari ;-0)Gangi þér áfram vel.Kveðja.Addý Harðard.

    Líkar við

Skildu eftir svar við Anonymous Hætta við svar