Mataræði upp á 10

Ég segi ykkur það satt! Allt fært til bókar upp á punkt og prik – eldað eftir kúnstarinnar reglum! Og borðað eins og engill heilgri en allt – Reykjalundur hvað!?!

Rústa þessu oh yeah

Er ógeðslega ánægð með einbeitinguna og Páll er með mér í þessu – ekki af lífi og sál en svona amk með einhverju lífsmarki! Tíhíhí! Þá gengur þetta. – Hvetja hvert annað, veita aðhald og styðja í þessu öllu saman. Tala jákvætt og svona um þetta. Því þetta er nú sannarlega svo sem ekkert eymdarlíf. Onei bara fínt.

Það eru komnar tvær kommóður inn í geymslu undir alls kyns dót og nú fer skrifborðið að fara þangað inn líka – og það er nú ekkert smá því þá fæðist nú bara næstum því vinnuaðstaðan mín skal ég segja ykkur!

Og þá er ekkert annað eftir en að skrifa leikrit fyrir árshátíðina og gera eins og eitt verkefni fyrir kennó – huhummm… fyrir næstu helgi og ekki seinna. Þannig að næsta vika verður erilsöm í meira lagi. Þarf að passa mig að ofgera mér ekki.

1 athugasemd á “Mataræði upp á 10

Skildu eftir svar við Steinunn Elsa Bjarnadóttir Hætta við svar