Jæja elskurnar!
Nú er að leggja í hann á Reykjalund. Það fer alveg hlýja niður eftir bakinu á mér þegar ég hugsa til þess staðar. Mikið þykir mér óendanlega vænt um að hafa fengið tækifæri til þess að komast þangað inn – vinnuveitendur mínir og þau á Reykjalundi eiga mínar þakkir fram eftir þessari öld hið minnsta.
Ég er búin að vinna smá um helgina og læra líka! Það er í sjálfu sér aðdáunarvert. Ég hef líka þrifið húsið nokkuð því hér eru saladmaster kynningar klukkan 12 á sunnudögum næstu helgar – tvær búnar og tvær eftir. Mér finnst svo skemmtilegt á svona pottakynningum. Þið látið mig bara vita ef þið viljið koma í hádegismat á sunnudögum ;-). Ægilega góður og hollur matur og þessi líka fíni félagsskapur!
Ég er alveg að fá kast yfir að eiga bara þrjár vikur eftir – en ég ætla líka að nýta þær vel – og ég er svoldið spennt fyrir vigtinni á morgun – hvernig ætli það gangi!?
Kveðja elskurnar ykkar Inga
God það eru sko fleiri spenntir yfir vigtinni – leyfa okkur að fylgjast með >>Ásta
Líkar viðLíkar við
Mikið er ég glöð að heyra í þér svona ánægðri. Lofa okkur svo að fylgjast með alla leið :o)>kv>Haddý Jóna
Líkar viðLíkar við