ja hérna

allt að fara á hausinn.

Vonandi verður maður bara að halda haus.

Hér gengur allt ágætlega í mataræðinu – Villa vigt stendur sig vel og vigtarinn líka. Aðeins millimál um miðjan daginn – og heldur hef ég etið of mikið af reyktum silung en grænmetið er inni og sjúddirari rei.

Palli er að elda reykt kjöt í kvöld – verð að vera orðin laus við saltið og reykinn á föstudaginn. Þá er nefnilega vigt – ætla ekki að kíkja á vigtina. Og ég ætla meira að segja að vera slétt saman – því nú veit ég að ég er að gera rétt. Og þá hlýtur þetta að ganga.

Haddý – Erla – Elfa – Gunna – Anna María – er ekki bara hittingur í kvenfélagsbústaðnum í lok október? Ég er til í það.

3 athugasemdir á “ja hérna

  1. Ég lenti á einhverjum skrítnum stað þegar ég var að svara áðan… Kemur bara aftur.Ég er „alltaf á lausu“ nema fyrstu tvær helgarnar í nóvember.Kv Haddý Jóna

    Líkar við

  2. Hæ elsku frænka. Mikið ansk….. ertu flott og dugleg. Ég verð alveg máttlaus í fótunum yfir dugnaðnum í þér. Þetta er nú samt alveg skandall hjá mér, búandi 2götum frá þér, að hitta þig ekki meira. Gæti eins verið í Afríku. Kanski er maður bara búinn að vera þar, shitt…….þarf að lagast.Risa knús þín Björk

    Líkar við

  3. Hæ Björk – það er ekki gott að hitta á mig heldur – ég er aldrei heima hjá mér nema þá sofandi ;-). Svo ætla ég að fara að huga að jólastandinu – þá hugsar maður nú aldeilis til þín – alltaf þegar ég hugsa um bútasaum þá ert þú þar. Og miklu oftar. //Haddy ert þú ekki með alls konar númer hjá þessum konum – ég held ég fari í að kýla á þetta svei mér þá

    Líkar við

Skildu eftir svar við Anonymous Hætta við svar