Magapína …yfir æðruleysi og auðmýkt ;-)

Það er svo langt síðan ég hef fengið almennilega magapínu en nú hef ég fengið tvær slíkar á bara svona eins og hálfum mánuði eða svo. Núna er ég hreinlega að drepast í maganum. Áreiðanlega vegna allrar hollostunnar sem ég hef etið undanfarið, skorti á sykri og óþverra. Ég bind þó ákveðnar vonir við að þetta létti kílóafjöldanum á fætur mínar ;-). Það er svo margt gott við svona magapínur.

Ég hugsa það sé tilhugsunin um æðruleysi og …. já auðmýkt sem valdi mér þessari magapínu. Hvaðan fékk ég líka þessa hugmynd. Líklega frá 12 spora kerfinu og oa – sem ég held ég verði að hætta að tala um því að gilda einhverjar nafnleyndar reglur þar og ég veit ekki hvort ég má yfirhöfuð vera að tala um oa – en ég má segja að ég fari á oa fundi… það yrði nú svolítið leiðinlegt fyrir mig ef ég mætti ekki segja frá því sem tengdist starfinu innra með mér vegna þessa(leiðinlegt fyrir mig þeas). En hvað um það ég get sem sagt hætt að tala um oa og haldið bara áfram að tala um lífsstílsbreytinguna mína :-).

Annars var ég að lesa blogg frá konu sem hætti að blogga því henni fanst hún festast í þráhyggjuhugsunum þegar hún bloggaði – jamm – það er klárlega hægt. Ég er farin að átta mig á að ég fæ stundum hluti á heilann og fabulera svo út í rauðan dauðann um þá – mér til hins mesta böls. Ég held samt að sjúkraþjálfarinn minn blessaður hafi lent verr í því en þið hér á blogginu. En hann var nógu snjall til þess að cutta á það áður við urðum bæði galin ;-).

Auðmýkt er að vera líttillátur – en svo þarf ég að gá að hvað fleira felstí orðinu …. eftirlátur og hlýðinn. Úff… ég meina á maður að vera eftirlátur og hlýðinn? Svarið er já stundum – þegar maður er að vinna með þeim sem maður treystir og veit að gerir manni gott en þá þarf að vera til traust og vitið þið af hvaða orðið trú er dregin? Trausti. There you are. Trúa og treysta á æðri mátt.

Hvað var nú aftur hitt sem ég átti að æfa… Sigh svei mér erfitt…. já alveg rétt æðruleysið. Óttast eigi – það kannski kemur þegar traustið kemur… ekki vera kvíðinn. Enga hörumungarhyggju líklega. Hún er klárlega ekki með í þessum breytingapakka sem ég er að kíkja í. Neibb.

Sykurfráhald gengur afbragðsvel. Mataræði gengur líka vel. Það er ekki mikil brekka í því að vera Ingveldur í lífsstílsbreytingunni hvað það varðar. Hvað það var sem gerðist – ja það veit ég ekki en ég er að reyna að sleppa stjórnunarþörfinni, samviskubitinu og sjálfsásökunum um að vera aldrei nógu góð og ég geri allt meira og minna vitlaust. Ef ég svo geri vitlaust þá þarf æðruleysi og auðmýkt til að breyta því í þann farveg sem er talinn réttari þá stundina. Jamm.

Ég held mér veiti ekkert af svona smá námskeiði í æðruleysi og auðmýkt. Gæti vel borið meira af því í mínum kistlum.

Í dag verður allt í miklum rólegheitum. Ég jafna mig í maganum. Tek svolítið til og horfi vísast á Friends. Kveiki á kertum úti á palli í kvöld og horfi inn á við og leita æðruleysis og já jafnvel einhverrar auðmýktar líka. Víhí og ég þurfti ekki að gá að orðunum yfir þetta í þetta sinn – ég læri þetta á endanum – amk hugtökin þó inntakið taki lengri tíma ;-).

Such a Princess heitir skór dagsins og ég hugsa að margir geti tekið undir það að ég hef vissulega ákveðna prinsessutendensa…

2 athugasemdir á “Magapína …yfir æðruleysi og auðmýkt ;-)

  1. Frábært að sjá að þér gengur vel prinsessa – samgleðst þér innilega!!! Vona að þú fáir botn í þetta með flóknu orðin (er sko alveg búin að gleyma hvað þú átt að vera að fást við, enda skildi ég ekki hugtökin til að byrja með!) Vona að magapínan líði hjá! Fór í sumarbústað í viku og fjölskyldan og gestir lágu allir eins og drasl í magapest – sjarmi!Ásta

    Líkar við

  2. Takk Ásta mín – ég skil ekki hvað hlutirnir verða einfaldir stundum eins og þeir eru snarflóknir í annan tíma. Hafðu það gott dúllan mín – Sigurlín sendir þér óléttukveðjur 😉

    Líkar við

Skildu eftir svar við Anonymous Hætta við svar