Á góðu róli

…að mestu.

næstum 4 kílóum léttari en ég var þyngst eftir usa ferðina. Hef ekki verið léttari síðan Aðalsteinn minn fæddist. -Þannig að nú er ég komin í töluna sem ég var léttust fyrir páska og heldur minna meiraað segja- nýr tugur og svona. Gaman að því.

Mest gaman er þó að VERA BARA YFIR HÖFUÐ FARIN AÐ LÉTTAST!

Langt síðan það hefur gerst.

Nú er sem sagt komið að því að léttast Ingveldur.

Morgungöngur eru æði – prófið sjálf 😉

Ég er ekki frá því að Reductilið hjálpi líka – en það er með því að hreinlega hugsa daginn út og daginn inn: matur er ekki dægrastyttingur – ísaumur er, föndur er, quilt er, líkamsrækt er -en ekki matur. Því borðar þú ekki þegar þú átt dauða stund – heldur fyllir hana lífi og verkefnum því tíminn er lífið sjálft. Jamm en nóg um það: Reductilið tekur hungurtilfinninguna en ekki löngunina til að borða sér til afþreyingar. Hugurinn er því þjálfaður núna – Reductsins vegna getur ekki verið að þú finnir til svengdar svo – farðu og gerðu eitthvað annað við tímann en éta.

Annars er ég á bömmer yfir þessu prestsmáli hér á Selfossi. Hvernig svo sem allt snýst – sekt eða sakleysi. Þetta er bara hreinlega hið versta mál.

2 athugasemdir á “Á góðu róli

  1. Ó ég er svo sammála, þetta kærumál er hið versta mál. Fólk þarf að fara varlega í að dæma þá sem standa í þessu máli fyrirfram, hvort sem það er presturinn, stelpurnar, foreldrarnir…😦kv, Helga Dögg

    Líkar við

  2. Glæsilegt hjá þér, þú ert svo dugleg!!!!Mikið vildi ég að ég gæti vaknað svona snemma á morgnanna til að labba, verst hvað ég er morgunsvæf. Er reyndar orðið allt og langt síðan ég hef farið út að labba. Spurning að galla sig vel upp og skella sér út í rigninguna.kv. Steinunn Elsa

    Líkar við

Skildu eftir svar við Anonymous Hætta við svar