Hverju viljið þið veðja

…um að karlmaður verði ráðinn sem aðstoðarskólastjóri Sunnulækjar? Það kemur í ljós.

Held við búum í karlasamfélagi satt að segja. Hef ýmislegt til míns máls í því.

Át sælgæti í gær – át sælgæti í dag.

Eldaði hollan mat. Borðaði 600 gr af grænmeti og ekkert brauð.

Fór í styrk í morgunsárið og klæddi mig upp sem galdranorn eftir að hafa hjólað í ´25 mínútur. Fór því ekki í sundleikfimi því ég treysti mér ekki til að fara í grímubúninginn í þrengslunum þar – og hefði bara líka ekki haft tíma til þess held ég bara svei mér þá.

Mistekst sem sagt margt varðandi mataræði og vænti þess ekki að vera léttari á föstudaginn. Ætla að taka smá rispu í vigtun nú á næstu vikum og sjá hvort það styðji mig.

Það er ekkert sem segir að ég VERÐI að léttast strax á eftir eða áðan en ég vissulega þarf þess og hlýt að stefna að því annars væri þetta allt til heldur minna en ég vonast til.

Fór á oa fund í dag. Afskaplega merkilegt verð ég að segja.

Ætla aftur.

Er með höfuðverk dauðans enn á ný og held við og við að ég sé að drepast. Hef skilað mínu og get farið sátt og um leið og ég hugsa það þá bráir af mér dauðastríðið ;-).

Meiri hörmungin að vera haldin hörmungarhyggju.

Ykkar hörmung Inga

4 athugasemdir á “Hverju viljið þið veðja

  1. hæ skvísjá gott að heyra að þú ætlir að koma aftur því ég ætla pottþétta að mæta aftur, bara verð, þetta er mitt meðal:)

    Líkar við

Skildu eftir svar við Anonymous Hætta við svar