Helgin í Reykjavík

Sæl verið þið

Ég á nýja sko – víhí – wave line jóhó frá Mizuno ógó mikil pæja

Við systurnar höfum dvalið í Reykjavík um helgina. Nú sit ég og bíð eftir Palla og það er alveg eins og ég hafi einhvern tímann gert nákvæmlega þetta sem ég er að gera – áður – heitir það ekki deja vú?

En þetta hefur verið fín helgi – mér hefur að vísu lærst að ég er ekki í húsum hæf og á eitthvað í land í samskiptum við mína nánustu. Þarf svona eitthvað að skilgreina og redirekta því í annan og betri farveg. Það hlýtur að koma.

Mataræði var með ýmsu mót og ekki sérlega gott en ekki heldur sérlega slæmt. Ég stefni á að vera einbeitt og öguð, viljasterk og víðsýn í næstu viku og taka vel á í hreyfingu og mataræði.

Áherlsan verður vonandi á að vera jákvæðari og sjálfsaðgerða miðaðri og hætta að gera vesen úr öllu – endalaust. Bind nú ekki vonir við að mér takist að hætta að gera vesen úr einföldum hlutum. Svo þarf náttúrulega að taka á ýmsum málum sem liggja á minni áður líður mér líklega ekki sérlega vel.

Verkefnalisti sem gæti litið sennilega út með hæfilegu ofmati:

Mála klósettið
Henda skáp út í forstofu og mála hana líka
Minnka inntöku fæðu um miðjan daginn nema í formi 1 ávaxtar og grænmetis
Borða ekki seinna en 19:00 öll kvöld vikunnar
Ekki fara í blak
Taka til í Ragnheiðar herbergi og setja þar upp verkstæði jólasveinsins
Námsmat – foreldraviðtöl – náttúrufyrirbæri eru verkefni næstu viku í skólanum.
Styrkur á þriðjudag og fimmtudag, sundleikfimi á mánudag, miðvikudag og föstudag.

Já annars var nú stórvirki aldarinnar fræmkvæmt í gær: Við systkinin eigum ættingja í San Diego Usa – systkini til hálf föður okkar, sem okkur langar að vitja en það hefur ekkert samband verið við þau að nokkru ráði í gegnum tíðina. Okkur langar út um páskana en höfum verið ótrúlega rög við að hringja nema sú stutta gerði það náttúrulega í gær og talaði við bróður pabba í næstum hálftíma og það var afskaplega gaman. Við ætlum svo að tölvusambandast og vonandi verður bara eitthvað úr þessu öllu saman.

En nú er það pottferð á Selfossi og matarboð hjá Ástu Björk og Halla – gaman gaman.

3 athugasemdir á “Helgin í Reykjavík

  1. Hurðu. það var búið að skella hurðini og komið nýtt númer svo ég komst ekki inn til að kyssa þig bless og þakka þér fyrir framtakið,lítum á símareykningin seinna. Og svo varstu á tali þegar ég ætlaði að nota síman til að kveðja, en geri það hér með. ÉG er að hugsa um að fara líka að taka mig til í ræktini. Ég get ekki lengur bara lesið um að aðrir standi sig en það hefur þú svo sannarlega gert. Gúgga

    Líkar við

  2. oh það hlýtur nú að hafa verið gaman að vera í svona systrarferð:)góða skemmtun hjá Ástu og Halla,bið að heilsa þeimknus Sædís

    Líkar við

  3. Loksins las ég bloggið 😉 og kemst þá að því að þú varst í Reykjavík og ég var í Reykjavík – eða svona næstum því sömu helgina. Ja, hérna.Kveðja, Freyja

    Líkar við

Færðu inn athugasemd