Ætli ég þyrfit að gefa mér nýtt nafn eins og Blaðið gerði?
Verða skemmtilegri – tala um annað en sjálfa mig?
Taka smá spretti um kennslufræði 😉
8 gestir í dag er amk ekki mikið.
Ósköp hafið þið öll mikið að gera.
…og ég fékk mér Prins í morgunmat….
BÚMM
…legg ekki meira á ykkur
Engin mynd af því tilefni
Inga mín – þú þarft að fá alla heimilismeðlimi í lið með þér til að passa að það sé ekki til nammi á heimilinu. Ég er búin að vera í algeru nammikasti undanfarið – og trúðu því að það eru mun minni líkur á að maður éti nammi í morgunmat ef það er ekki til á heimilinu!!!>knús Erla
Líkar viðLíkar við
Æi er ekki bara ágætt að þú haldir þig við að blogga um þig? Fylgist með þér næstum daglega, yrði fljót að hætta að kýkja ef þú færir að fjalla um kennslu eitthvað…>Baráttukveður Helga
Líkar viðLíkar við
Hæ Ingveldur>Ég ætla bara að segja: ÞÚ ERT FRÁBÆR! Haltu áfram að standa þig svona vel, svo er bara að setja inn svona fyrir og eftir myndir 😉>Kveðja>Addý Eyrarbakkamær
Líkar viðLíkar við
skoho með þetta prins. Það er keypt eftir sundleikfimina en þá er ég klikkuð úr hungri því ég borða ekki áður. Og allt í einu og skyndilega er ég bara búin að bæta við beiðnina um eitt gróft rúnstykki – já og eitt lítið prins! Úff – þrjú á 6 vikum sleppur kannski til en þetta bendir ekki til mikillar sjálfsstjórnar. Nei vesalings heimilismeðlimirnir fá ekki að kaupa nammi, hvítt brauð, pylsur eða annað jumm því mér er ekki treystandi fyrir fimm aura fyrir þessu ;-). Svona er nú líf fitubollunnar í Heimahaganum.
Líkar viðLíkar við
Elsku Inga mín, ég kíki sko hér inn á hverjum degi. Er sko algjört möst hjá mér að lesa skrifin þín, fæ alltaf kraft við að lesa þau og finnst svo gott að sjá að það líður örðum stundum eins og mér :o)>En með nammið æj stundum verður maður að leyfa sér smá. Getur allavega verið ánægð með að hafa ekki keypt stórt stykki!!
Líkar viðLíkar við
Elsku Inga.>>Alltaf gaman að lesa bloggið þitt, það kemur mér alltaf í gott skap.>Allt gott að frétta af mér, strákurinn fæddur og allt að komast í jafnvægi aftur.>>Kveðja,>Kristjana.>>ps. ég kem og kíki við hjá þér bráðum með Jóhannes Hauk og sýni þér hann..algjört krútt.
Líkar viðLíkar við
Blessuð Ingveldur>>Ég vildi bara hvetja þig áfram í baráttunni og segja þér að mér finnst þú frábær manneskja og ótrúlega dugleg. Ekki meikaði ég það að vera áfram í KHÍ í vetur 😦>Enda allt brjálað í Sunnulæk (eins og venjulega). Það var mikill missir af þér, hver á nú að segja okkur brandara á kennarastofunni?>Annars er ég alltaf á leiðinni í blakið, fer alveg að mæta..>Haltu áfram á heilsubrautinni og mundu að þú værir ekki mannleg ef þú misstir þig ekki stundum.>kveðja og knús>Guðbjörg Oddsd.>Sunnulækjarmær
Líkar viðLíkar við
Mér gengur best ef það er ekki til svona drasl á heimilinu.
Líkar viðLíkar við