Uppveltelsi

Þegar maður er ekki undir svörtu skýi þá er það algjörlega raunhæfur möguleiki að hætta þessu þunglyndisuppveltelsi öllu.

Kýla bara á kílóin – láta þau fjúka, mæta í vinnuna með bros á vör, elska börnin (sem ég geri nú alltaf bæði mín og annarra :-)) borða grænmeti og taka til. Heimsóknir læðast jafnvel að manni í fullri alvöru!

Ja það væri það…

En sem sagt – stefnum fram á veginn – það er svo sem ekkert annað að gera.

Og mér finnast nýju æfingarnar algjört æði.

Vissuð þið að með því að stíga upp á palla – tvö stk þá brenni ég amk meira en í nokkru öðru? Vildi nú samt ekki vera að því í 20 mín – 8 duga fínt :-).

Púlsinn er að hækka – sem þýðir að ég er farin að hreyfa mig hraðar – og það finnst mér ekki slæmt og þið ættuð bara að sjá upphandleggsvöðvana á konunni – ekki slæmir 😉 Meira að segja farið að örla á biceps, og triceps bara hress líka 🙂

Svei mér margir broskallar

Jamm hætt að vola – hvað er líka hægt að vera að leggja það á eina litla bloggsíðu daginn út og inn. Fuss og svei!

4 athugasemdir á “Uppveltelsi

  1. tíhíhí. Ekki það ég er farin að hafa svolítið mikið álit á uppveltelsi – en það er kannski ekki sérlega æskilegt til langs tíma í senn 😉

    Líkar við

Skildu eftir svar við Anonymous Hætta við svar