Hrökkva úr hálslið

…haldið þið að það sé mögulegt? Haldið þið að það sé hægt að leggjast útaf og geta svo aldrei hreyft sig meir? Haldið þið að það sé mögulegt að liggja útaf og hausinn detti af manni? Eða maður snúi sig úr hálslið í skriðsundi? Eða hausinn detti af þegar maður syndir baksund – pompi bara niður á botn?

Allt þetta er ég að íhuga seinni hluta dags og fram á nótt. Því meira sem líður á kvöldið því líklegra finnst mér að eitthvað af þessu gerist. Mér finnst það raunverulega að eitthvað af þessu geti gerst.

Við Polli fórum í sundleikfimi í morgun og brenndum okkar rétt rúmlega 300 hitaeiningum. Ég náði bara að eyða rúmlega 200 í sundi í gær enda var ég með hörmungarhyggjuna mjög virka útaf hálsinum. Gat bara eiginlega ekki hreyft mig en ég hef komist að því að mér líður betur þegar ég syndi – það er eins og það mýki mig upp.

En það munar um 500 hitaeiningar – kannski er það kökusneiðin sem ég borðaði áðan :-s. Jamm og já.

Fer í Styrk á eftir, næ mér í nýjan skammt af verkjatöflum og læt svo bara eins og ekkert sé! Alveg þangað til í kvöld þegar ég óttast að ég sé að missa höfuðið af.

En glerbrotið úr tánni held ég að hún Ragnheiður mín hafi losað mig við blessunin. Það var eiginlega svona eins og punkturinn yfir i-ið, sá fjári. Afskapleg skemmtilg viðbót við hælsporann og hálsinn náttúrulega.

En jæja – best að ljúka deginum með kennslu í tvo tíma. Föstudagar eru laun erfiðisins alla vikuna. Þeir eru til að njóta.

Færðu inn athugasemd