Sigur á sjálfri mér

Ég þarf sko að gera afmælisgjöf handa einstakri manneskju – og náttúrulega og að sjálfsögðu er ég að gera það á síðasta degi – síðustu mínútu – og á allra allra síðasta snúningi.

Ég sá mér því kost vænstan að fara ekki í Styrk í dag því ég væri svo önnum kafin við að gera gjöfina handa kærri vinkonu. Neyðin brýtur lög og það allt saman. Sem sagt ég gaf það út við Pál að ég færi ekki í Styrk ég yrði að klára gjöfina.

Páli fannst það góð ástæða og sagði það vera í lagi. Hann benti mér á að hann væri líka önnum kafinn (en hann grunaði að ég ætlaðist til að hann kæmi með!).

,,Nei Páll það er ekki í lagi“ sagði Ingveldur hin skelegga hringsnúandi umskoðunskiptandi kona. ,,Það er bara alls ekki í lagi. Markmið mitt er að fara í Styrk í dag og þessi dagur kemur aldrei aftur (því ég gæti ekki bætt mér það upp á morgun því ég þarf að fara í bæinn eftir hádegið þar að auki). ,,Ég verð að fara í Styrk!“

,,Nú þá förum við bara Inga mín!“ sagði þessi elska og af stað fórum við og þó brennslan hafi nú ekki verið nema í 30 mín þá var þetta bara fín ferð!

Þannig vann ég sigur í dag! og afmælisgjöfin klárast vísast fyrir fjögur 🙂 en þá verð ég líka að halda áfram! (hmmmm í hvaða fötum ætti ég að fara?) Ha hu hummmmmm))

Lof jú ol

kveðja Inga sigurvegari!

4 athugasemdir á “Sigur á sjálfri mér

  1. Hver er svo að segja að þetta sé ekki að ganga hjá þér? Þér gefst færi á að sleppa úr degi, nei ekki hún Ingveldur!!!
    Áfram Inga!!!!
    Kv Sigurlín

    Líkar við

  2. Einhverra hluta vegna hafði færslan um pabba þinn og mömmu algerlega farið fram hjá mér. Skil ekki hvernig svona getur gerst eins og ég pæli gegnum síðuna þína!!
    Langaði bara að taka undir hversu góðar manneskjur þau voru. Á góðar minningar af þeim báðum – að sjálfsögðu flestar tengdar Þingvöllum. Eina scary minningin er af pabba þínum sem prófdómara í Ljósafossskóla og við að reyna að svindla!!!
    Blessuð sé minning þeirra beggja.
    kk ET

    Líkar við

  3. Æðislegt hjá þér Inveldur. Halda svona áfram, ekki sleppa úr degi. 🙂 Mottóið mitt er „ég fer alveg sama hvað“
    Sakna ykkar rosalega úr sunnó
    Kveðja Marý.

    Líkar við

  4. Hæ Marý – ég segi oftar – ég geri það bara samt – þó ég viti nákvæmlega hvað það er sem ég eigi að gera! Get orðið svoldið þreytt á mér!

    Líkar við

Skildu eftir svar við Ingveldur Hætta við svar