Er svo mikill álfur…

…að það er rósalegt. En ég er álfur með rautt naglalakk – svo mikið er víst. Og ég er líka að drekka kaffi – og er í tölvunni þannig að þessi mynd smellpassar alveg :D.
Annars er þetta nú ekki alveg að gera sig hjá mér. Ég hjólaði ekki heim í gær vegna óviðráðanlegra ástæðna huhumm og svo hjólaði ég ekki í skólann í dag því ég ætlaði að vinna svo mikið – og er nú eiginlega varla enn byrjuð á því en hva það er nú bara 90 mín síðan kennslan var búin og ég varð nú að næra mig og kjafta aðeins ;-). Og svo fer ég að blogga – dísuss. Jamm ekki viðbjargandi sem sagt. En ég ætla nú samt að vinna svolítið! Hugsa mér gott til glóðarinnar. Það er svo gott að dútlast þetta hérna ein og vera gáfulegur.
En sem sagt – ég nennti ekki út að labba í morgun – komst að því að ég væri of þreytt og væri klárlega að verða svona ofþreytt eins og í síðustu viku – huhumm…. En svo tók skynsemin völdin og benti mér á að varla væri ég það nú þegar þar sem spriklið hefur nú ekki verið það gríðarlegt í gær og í fyrradag að örmögnun væri komin inn í myndina. Og fór þess vegna – og ég er bara orðin einhverjar 15 mín að labba það sem ég var rúmar 20 hér um daginn – ætli það muni ekki svolítið um hælsporann og því þarf ég að lengja túrinn – og ég nenni því bara alls ekki! Sigh….
Svo þóttist ég ætla í sund í dag því annars er ég bara ekkert búin að hreyfa mig utan morgungöngunnar og það er nú slappt. Hefði liðið betur ef ég væri á hjólinu – ERGO þarf að kaupa lukt.
Hef ekki vigtað mig síðan í síðustu viku – er að reyna að ná mér niður í einu sinni í viku og mér líður eins og stórglæpamanni og get haft miklar áhyggjur af því að ég verði búin að missa öll tök nú á morgun… eða föstudag. Ég má hins vegar ekki gleyma því að síðasta helgi var slæm og því kannski ekki við því að búast að rosa áfanga verði ná næst.
En nú ætla ég að reyna að vinna svolítið – kveðja ykkar eilíft vildi vera öðruvísi Inga

2 athugasemdir á “Er svo mikill álfur…

Skildu eftir svar við Ingveldur Hætta við svar