Bros gefur


Það hefur verið kalt nú er komið þetta dásamlega veður. Og því er ekki úr vegi að hafa skóna hennar Öskubusku hér í dag.
Yndislega fallegur – rétt eins og veðrið og loforðið í dögginni um yndisfagran dag.
Gollmolar liðinnar viku:
  • Ég fékk fallegasta bros frá einstakling á mánudag. Bros sem lýsti upp heiminn og enn logar týra. Brosum meira!
  • Dísa systir fékk sér ógeðstæki – húrra fyrir henni. Það verður gaman að fylgjast með framförunum hjá henni á græunni.
  • Ég gat sett ógeðstækið saman – þrátt fyrir að hafa djöflast í ræktinni áður.
  • Það hlýnaði í gær og sólin skín í dag. Finnum til útilegudótið!
  • Ég get gert vini mínum greiða um helgina! Hjálpumst að!
  • Stærðfræðiprófið sem ég gerð var nokkuð gott! Vöndum námsmatið.
  • Maðurinn minn sagði að það væri gott að koma heim til mín! Verum góð við maka okkar!
  • Ég á vinu sem fer með mér í ræktina sama hvernig stendur á! Vinir fara saman í ræktina!
  • Sonur minn sagðist hafa orðið betri maður vegna þess að hann hlustaði á mig.
  • Dóttir mín á góða vini sem gera hana glaða!
Það er sko margt sem ég get verið þakklát fyrir – ekki síst ykkur sem lesið þetta 😀
ps seinni partinn: Fór ein í styrk því aumingja Vilborg er lasin. Ég fór tvisvar í ógeðstækið – og var alls í 40 mín í brennslu og svo í salinn náttúrulega – held að met hafi verið slegið þar – og að ég hef náttúrulega aldrei áður verið í 25 mín á ógeðstækinu. Sveiflast upp og niður í þyngdinni. Ætla nú bara að vikta mig á föstudögum. Það er ekkert vit í að fara annan hvern dag á hana. Lof jú still líkamsræktartröllið.

3 athugasemdir á “Bros gefur

  1. Dásamlegir gullmolar,fá mann til að hugsa fallega og jafnvel vatna músum inn á milli hóstakasta.Gangi þér vel í dag og vona að helgin verði ánægjuleg! Takk fyrir að kíkja á migkv.Bakteríutröllið

    Líkar við

Skildu eftir svar við Gerður Hætta við svar