Allt í gír og góðum málum?

Þetta var nú svei mér fínn dagur. Já bara virkulega góður dagur. Ég eyddi 190 mín í Styrk. Haldiði að það sé?!? Ég náttúrulega bara NUTS.

Við Vilborg tókum okkur saman og ákváðum að koma hroðalega fínar í vinnunna í morgun. Mín vaknaði fyrir allar aldeir og strauði pils, málaði sig og snyrti og viðbrögðin létu ekki á sér standa 😀 Starfsfólk og nemendur stóðu á öndinni og vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Sumir sögðu eitthvað fallegt og það er gott að heyra. Æ já. Stundum veitir manni bara líka ekkert af því.

En sem sagt góður dagur. Alltaf góður dagur þegar ég fer í nudd? Svei mér þá ef það er ekki svo….. Alltaf góður dagur þegar ég fer í Styrk – neiiiiiii. En svona til langs tíma er það eina vitið….

Ég hef samt einhvern veginn enga trú á að ég geti þetta….

Og ég get alls ekki látið Baldur hafa matardagbókina á miðvikudaginn….

Svei mér margir punktar í þessu bloggi…

En góður fréttirnar eru þær að…. ég gæti farið að vinna eftir líkamsræktina í Styrk. Fyrst var ég svo steikt að ég gat ekki andað – gat það heldur ekki á miðvikudaginn, en á mánudaginn 1. og í dag er ég góð. tengist það því að ég fór ekki í sund í gær og ekki heldur um helgina. Kannski þarf ég bara að venjast því að vera í sundi með. Það hlýtur að koma – það er nú ekki nema tvisvar í viku. Og svo þarf ég að hafa vit fyrir mér og vera ekki með of mikla þyngd á sumum tækjunum. Ja það væri það – aulinn atarna.

En amk er hárið fínt. Hvað svo sem segja má um annað.

Vinna og nám um helgina – sem sagt það verður áreiðanlega mikið bloggað.

Og ég ætla ekki að tala um Formúluna – onei….

En sjáið þetta:

3 athugasemdir á “Allt í gír og góðum málum?

  1. hæhæVar að reyna að sjá þið og hitta í dag en þú varst farin þegar ég kom upp í skóla. Var sagt að þú værir ekkert smá flott 🙂Datt í hug hvort við ættum ekki allar/öll að koma svona fín og flott til vinnu einhvern daginn? Væri það ekki smá tilbreyting?Bara smá hugmynd!Gangi þér vel um helgina í vinnu, námi og formúlu 🙂Kv Sigurlín

    Líkar við

  2. Jú við ættum endilega að gera það Sigurlín – það er líka bara gott fyrir alla að fá smá hrós. Maður fær víst sjaldan nóg af því – já og takk fyrir síðasts.Það fór sem þú spáðir Gerður mín – leiðin liggur upp á við líka 😀 Ekki það mér hefur lærst það þess vegna fríka ég ekki oftar út – tíhíhi

    Líkar við

Færðu inn athugasemd