Eldhúsdagur nr. 3

Smellið á fyrirsögnina til að sjá innréttinguna

1. dagur

Milliveggur tekinn niður í eldhúsi á milli borðstofu, og efri skápar og búrskápur sett inn í vaskahús. Skáp þaðan og þurrkskrímslinu hent út. – Glæsilegur afrakstur.

2. dagur

Ákvörðun tekin um að leggja alódýrasta gólfefni á miðrýmið því ótækt er að hafa kubbaparketið holótt og illa farið hjá nýrri innréttingu. Þar með hófst brottflutningur gamla gólfefnisins og dúksins þar undir á haugana.

Einnig var tekin ákvörðun um það að setja ískáps og ofneininguna á millivegg milli herberja, til þess að mynda gott miðrými og svigrúm til þess að halda dansleik í kringum og uppá borðstofuborðinu.

Þungu fargi af mér létt – gangsyndrómið fer algjörlega, og mikið rými myndast í kringum eldavél og ofn. Líst ógeðslega vel á þetta – Palli ekki eins hrifinn og Aðalsteinn alveg á bömmer yfir því að eldhúsið sé komið út á gang og aumingja tengdó skilur bara ekkert í þessu.

Keyptum plastið – held ég hafi keypt of ljóst – held það sjáist mest á því – en það kannski verður til þess að við hendum ógeðinu af fyrr…. Er mjög lítið hrifin af þessu gólfefni

Um miðnættið smíðaði Páll fyrsta hluta veggsins utan um ofninn og ískápinn.

3. dagur

Sofið út – eins og letihaugum sæmir 😉

Klárað að taka af gólfinu og farið á haugana. Borða súpu hjá Dísu í hádeginu. Kemur í ljós hvað meira verður gert. Kannski kemur stærsti hluti innréttingarinnar í dag. Ég held að Páll hljóti að þurfa að finna einhverja til þess að hjálpa sér.

Um miðnættið kláraðist veggurinn, dúkurinn allur farinn af og parketlögn bíður handan hornsins.

Ikea sagði að innréttingin kæmi eftir 3 daga til okkar – sem sagt í dag en þegar ég hringdi var nú tíminn sem kemur að koma þessu á flutningabíl orðnir 4-5 dagar. Ég bað þær nú vel að lifa og vinsamlegast senda þetta í hvelli – karlinn yrði ekki á landinu lengi. Nú er spurning hvað gerist í því. Ef maður þarf að bíða í 5 daga eftir flutningabíl þá er nú betra að fá bílstjóra til að sækja þetta eftir sólarhring en það er tíminn sem það tekur að tína innréttinguna saman hjá þeim Ikea mönnum.

Hrmpf – ætla samt ekki að láta þetta pirra mig – er samt minnug þess að þeir hjá IKEA gleymdu og týndu innréttingunni hans Aðalsteins einhvers staðar og það tók sko viku að fá það sent,

Inga

2 athugasemdir á “Eldhúsdagur nr. 3

  1. Sælinú ! „Hönnuðurinn“ hér…. Mikið rosalega líst mér vel á allar þessar framkvæmdir! Nú þarf maður að fara að hraða sér á staðinn til að taka verkið út… hmmm 😉 Hvað segirðu annars, ertu búin að færa innréttinguna yfir á hinna veginn!? Já þú deyrð ekki ráðalaus, ég er sammála þér með að plássið fyrir framan ísskápinn og ofninn hefði verið heldur lítið ef þið hefðuðu gert súlu, svo lokar það líka meira af. Miklu betra fyrir sálina að hafa stórt bjart (dans)rými 😉 Hlakka til að sjá. Og eitt að lokum IKEA er um það bil ömurlegasta þjónustufyrirtæki heims held ég, heyri bara klúðursögur þaðan! Held að þeir séu ekki alveg með allt virkt þarna á lagernum hjá þeim… hm hm. Hlín lean mean

    Líkar við

  2. Já þeir renna eitthvað til í skipulaginu blessaðir englapungarnir hjá Ikea. Já þú verður að koma og skoða – þetta er sko mega skemmtilegt. Það eru ekki nema 80 pakkar með 10x fleiri skrúfum sem bíða þess að verða sett saman 😀 Mjög skemmtilegt!

    Gaman að fá svona comment – fólk er svo lélegt við það!

    Líkar við

Skildu eftir svar við Ingveldur Hætta við svar