Á leið í sumarfrí

Og enn líða vikurnar! Og enn stækkar maginn! Og enn minnkar hreyfifærnin.

Palli er farinn suður og ég hef lofað mér að fara reglulega út með Bjart – og í dag fórum við í yndislega göngu upp með Fossá en það er stutt ganga upp í móti. Reynir hæfilega á – og náttúran gleður.

Ég neita mér um nammi alltaf þegar mér dettur það í hug. Gott í hvert skipti sem ég næ því.

Næst er að lyfta bjöllunni….

Matardagbók….

Sund…..

Það stefnir allt í sumarfrí – ég vinn nokkra tíma á dag en verð hér á Þórshöfn líklega til mánaðarmóta og þá fer ég suður í heilsubúðir.

Og svona líða mánuðirnar….

….. ja amk vikurnar!

Nú eru Aðalsteinn og Halldóra mín komin hér inn til okkar og hafa alveg bjargað mér frá sjálfri mér! Enda engin smá gleði að vakna og koma heim til Herdísar Maríu og þeirra allra!

Það hefur gengið á ýmsu í mataræðinu en helst má þó nefna að ég hef minnkað nammi átið, borða reglulegar (of mikið brauð samt).
Hreyfing er lítil sem engin er nú eru að fæðast ýmsar hugmyndir í kolli mínum…. Nánar um það síðar.

En amk er Alice farin að lyfta og guð má vita hvað! Ég get ekki verið minni kona en hún og hyggst því drífa í þessu – og viti menn – fór út að ganga áðan, nóg til þess að fá í lungun – en afar hressandi.  Hér er samt mikið viðbjóðslegt veður – slydda, snjórog 2 gráður eða svo…. jukk!

Engin matardagbók en kvef!

Gott að stefna á – fínar æfingar. 
En annað – fór og synti, fékk mér shake, minnkaði nammið. Afar köld laug varð til þess að ég fékk kvef og nú líklega lungnabólgu. Sterar og sýklalyf er staðreyndin nú, matarlistin sem betur fer ekki sérlega mikil. En ég er á réttri leið. En búin að vera lasin.

Mánudagur #1

SKRIFA MATAR OG HREYFIDAGBÓK 


Mánudagur:

Fá lykla af sundlauginn hjá Eyþóri og leiðbeiningar um ljós og slíkt. – Þetta var gert

Morgunleikfimi – þetta var ekki gert

Prenta út matardagbók með hreyfiblaðsíðu – búin að undirbúa það – ekki búin að prenta. Þarf að fá æfingaáætlun hjá Baldri 

 Blakæfing – þjálfun – gerði það

Pottur – nennti ekki því ég var svo seint á ferðinni – en það verður í fyrramálið!

Keypti mér vatn – borðaði margar bollur – en ekkert nammi!


Markmið vikunnar

Skrifa matar og hreyfidagbók 

Mánudagur:

Fá lykla af sundlauginn hjá Eyþóri og leiðbeiningar um ljós og slíkt.

Morgunleikfimi

Prenta út matardagbók með hreyfiblaðsíðu

 Blakæfing – þjálfun

Pottur

Þriðjudagur

Sund 06:45

Morgunleikfimi

Kvöldæfingar á dýnu

Miðvikudagur

Sund 6:45

Morgunleikfimi á Ruv

Blakæfing – þjálfun

Fimmtudagur

Sund 6:45

Morgunleikfimi á Ruv

Kvöldæfingar á dýnu

Föstudagur

Sund 6:45

Námskeið og Akureyri
Taka göngustafi með

Laugardagur
Létt rölt

Sunnudagur
Létt rölt

Enn er fjandinn laus!

Jæja – nú er bloggið læst – bara nokkrir sem sjá það – það er varla að það passi að vera að blogga um ósigrana á opinberum vettvangi. Ég er verulega farin að huga að aðgerð – en áður en nokkur alvara kemur þar inn – þarf ég að taka til hendinni ein og sjálf!

Áramótaheitin eiga eftir að fara hér inn – þau eru einföld. Byrja upp á nýtt!
Byrja upp á nýtt!
…alveg upp á nýtt!

Ég er að vona að þeir hafi ekki verið að ljúga um vöðvaminnið…

Ég er að minnsta kosti orðinn aumingi af hreyfingarleysi… Fer lóðbeint til helvítis með sama áframhaldi  – og lítt hugnast mér það!

Áfram Inga

Langt hlé!

Og þar með náttúrulega allt farið fjandans til í líkamsræktinni. Kannski verður bragarbót á! Skólastjórastarfið tekur sinn toll – en engar afsakanir eru gildar, shake er ekki lengi verið að gera og sundlaug rétt við hornið.

Nú erum við Palli í jólaskapi.

Það er gaman.

Sonur minn var að setja inn póst um sína litla dóttur og ömmubarnið mitt!

Herdís er búin að vera í vinnunni í allan morgunn
búin að vera að dunda í því að færa til stóla sem ég notaði sem læsingar á skúffur
Fyrir stuttu var hún alveg búin að því… og nú hefst uppskeran
Tæma skúffurnar
Misjafnar þrautirnar, enn þetta hefst fyrir rest.
Þessir stólar færa sig sko ekki sjálfir frá skúffunum… og ekki færir pabbi þá!

Meira síðar 😉

Ef þetta er nú ekki ég þá veit ég ekki hvað :)

æðingartala: Nafnatala:

Líftala:

Fæðingartala: 7
Fæðingartalan er þversumma tölugildanna úr fæðingardeginum, mánuði og ári. Hægt er að reikna hana út með tveimur aðferðum, lárétt og lóðrétt og þess vegna er hægt að fá tvær mismunandi undirtölur, þó þversumman verði auðvitað alltaf sú sama. Fæðingartalan lýsir köllun þinni og tilgangi með lífinu. Hún gefur tóninn um hvaða braut þú fetar þig eftir í lífinu.

7. Er heilög tala. Sjöan stendur fyrir andlega leit og einlægni í því sem hún setur sér fyrir hendur hverju sinni. Hún kann að vera ein og á auðvelt með að rækta hina innri rödd, svo fremi sem hún finnur það sem hún er að leita að og fylgir þeirri leit eftir. Þetta er krefjandi tala sem hættir ekki fyrr en hún finnur, knúin áfram af ríkri réttlætis- og siðferðiskennd. Þetta er tala einveru og hins eilífa grúskara, sem er alltaf að læra eitthvað nýtt og prófa sig áfram. Hún er tilbúin að færa miklar fórnir til að fylgja köllun sinni. Þetta er eins og fimman tala hugsjónar og visku, sem leitar sífellt betri lausna og er sjaldan eða aldrei alveg fullnægð með hlutskipti sitt í dag.

Sjöan þarf að gæta hófs í leit sinni. Ekki fórna öllu fyrir hugsjónirnar. Hún þarf líka að gæta þess að einangra sig ekki og þar með staðna í leit sinni, eða falla í gryfju þunglyndis og óheilbrigðrar einveru. Einnig þarf hún að varast að taka á sig of miklar byrðir og kikkna undan hinni torsóttu braut sem hún hefur valið sér að feta á leið til andans uppljómunar.

Nafnatala: 44/8
Nafnatalan  er þversumma allra tölugildanna í nafninu okkar, hvort heldur persónu- og fjölskyldutölu eða drauma- og framkvæmdatölu. Hún lýsir bæði skapi og framkomu, tilfinningum og hegðun frá degi til dags.

44/8  Fjörutíu og fjórir gífurlega áþreifanleg og sterk efnisleg og vinnusöm tala. Þetta er tala uppbyggingar, sem lýtur að stórri heild, jafnvel heils samfélags. 44 er meistaraleg tala þrautseigjunnar, sem kann að loka sig inni yfir erfiðum málum af óvenju miklum dugnaði og finna lausn fyrir heildina í krafti hagsýni og þolinmæði. Talan gefst aldrei upp.

Þessi vinnusama meistaratala þarf að gæta þess að tapa sér ekki í vinnu, þó hún vinni meðvitað í krafti hugsjónar fyrir heildina. Gæta þess að staðna ekki og einangra sig í ranghugmyndum eða fordómum. 44 skilar jafnan fjárhagslega sterkri stöðu eða varanlegum ávinningi í þágu heildarinnar og stuðlar að töluverðum áhrifum til langframa, rétt eins og þversumma tölunnar, áttan, (talan 8) ber með sér.

Líftala: 33/6
Líftalan er sjálf heildarútkomutalan, markmiðið með lífi þínu, eða ásköpuð örlög. Hún er niðurstaða lífs þíns og samnefnari allra fyrri talnanna og þversummutala nafnatölunnar og fæðingartölunnar. Það er einstaklings-bundið hvenær fólk upplifir þessa tölu á lífsleiðinni, þ.e. hvenær það nær markmiðinu með því.

33/6  Þrjátíu og þrír lýtur að meðvitaðri köllun á sviði lista, samskipta og hvers kyns tjáningar og sköpunar. Þetta er hreyfanleg tala, tala ferðalaga og sveigjanleika. Og tala breytinga og þróunar. Þessi meistaratala lýtur að hreyfanlegri uppbyggingu á vettvangi uppgötvana, t.d. í vísindum, nýsköpunar og lista. Samskipti þessarar tölu lúta að stærri heild; hvort heldur félagi, fyrirtæki, miðstöð, hópi, skipulögðum samtökum eða öllu samfélaginu, eins og þversumma tölunnar, sexan, (talan 6), ber með sér og hvernig megi hjálpa þessari heild til þroska og viðgangs.

Yfirleitt kunna meistararnir sitt fag, en mikilvægt er að talan  33/6 dreifi sér ekki of mikið og tapi ekki einbeitingu ef árangur á að nást í því starfi sem henni er ætlað að vinna. Stöðnun er henni dauði og að sama skapi yfirborðsmennska í skvaldri og sýndarmennsku henni að falli þó hreyfingin sýnist mikil á ytra borði.