Norður ég fór

Halló öll!

Komin til Gústu – lenti að sjálfsögðu ekki í neinni hálku á heiðum en keyrði í yndislegu veðri um suður og vesturland. Svo var nú á köflum fúlveðraðra norðanlands. En í dag er hér yndislegt veður. Á svo ekki að rigna á morgun.

Ég hugsaði margt og mikið á akstrinum, hlustaði á íslenska tónlist og velti lífinu og tilverunni fyrir mér. Mér finnst svo gaman að keyra. Það er heldur ekki mjög leiðinlegt að keyra Subaruinn ég held varla að ég hafi keyrt ljúfari bíl.

Hér ráða þær Trýna (sem á ömmu sem er mamma Bjarts), og Gústa ríkjum og vonandi nær Gústa að hvíla sig því hún er svo slöpp þó ég sé hér að þvælast. Vonandi hugsar Ragnheiður vel um Bjart minn og sig – og Aðalsteinn vel um sig. Ég held það sé eitthvað stelpustand á honum…

Mataræðið verður að vera svolítið sérkennilegt nú um helgina en ég ætla nú að labba smávegis í dag með Trýnu og reyna að fá mér svolítið grænmeti. Ég er í átaki varðandi það – ég verð að reyna að koma þessu upp í 600 grömm á dag.

Svo kemur Pallinn minn heim um næstu helgi. Það verður nú gaman að fá Færeyinginn minn.

Margt í mörgu

Eru þetta ekki svona Pollýönnuskór?

Jebb það er það sem ég held. Mér veitti ekki af svolítilli Pollýönnu í líf mitt núna.

Það eru nokkur atriði sem eru að bögglast fyrir mér og mörg snúa þau að einhvers konar sjálfsóánægju.

Afhverju finnst mér gott aldrei vera nógu gott – afhverju vil ég bara afbragð eða eitthvað þaðan af betra?

Afhverju er ekki nógu gott að léttast um 2,4 kg á mánuði síðan um mánaðarmótin apríl maí?
Svo ekki sé nú minnst á að maður er allur að hressast og orðin önnur en ég var. Svoldið pirrandi að vera ekki ánægð með neitt nema þá bara í smá stund. Fullt af efasemdum og veseni alltaf hreint?

En skítt með þetta allt. Ætti ég að fara til Gústu á morgun þrátt fyrir þessa veðurspá?

Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag: Norðaustan 8-15. Rigning með köflum norðan- og austanlands, en slydda til fjalla. Annars þurrt að kalla. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast suðvestantil. Á sunnudag: Allhvöss norðaustanátt. Rigning um austanvert landið en snjókoma til fjalla. Úrkomulítið vestanlands. Hiti 2 til 7 stig, svalast á Norðausturlandi

Christ

Kimi minn í vanda og ég með kælipoka á hælnum!

Það er hægt að treysta Kimi Räikkönen að vera á eina bílnum sem bilar í F1 móti. Það er engin spurning um það. Það er líka hægt að treysta því nokkurn veginn að ef ég kaupi ökumann eða bíl +í liðsstjóraleiknum þá bili bílinn og ökumaðurinn klessi á. Ojá það er næsta víst!
En ég elska hann samt. Hann er awesome í rigningu – I tell you.
Búin að fara að labba í morgun og fá mér ótrúlega góðan morgunverð við Sogið- dásemdin ein. Búin að hengja út þvott og setja svolítið í vélina líka. Bara dugleg kerlingin. Þyrfti svo að fara út í skóla – ef ég nennti því. En ef ég nenni því ekki þá bara geri ég það ekki. Það er að vísu enska á morgun og myndi gjarnan vilja vera búin að gera ákveðið áður en að hennir kemur – enda finnst mér nú frekar líklegt ég fari. Aðeins að ná sambandi við sjálfa mig og fara svo kannski í sund á eftir. Er samt ekki alveg viss um að ég nenni að hjóla. Ég er eitthvað svo þreytt akkúrat núna. Já nei það gengur ekki að hjóla. Þarf að fara með svoldið mikið dót út í skóla.
Meira af stjörnuspám. Þær eru bara stundum svo fyndnar:

Dear Inga,Here is your horoscopefor Sunday, October 1:Hmmm — your psychic slip is showing. Tuck away that ‘me first!’ attitude and concentrate on the long term. The work you do now could have great payoff for the future, so really dig in and give it your all, okay?

Ég á sem sagt bara að gjörbreyta mínum karakter í dag. Ekki veit ég hver ég yrði ef ég væri ekki alltaf að skoða naflann á sjálfri mér. Sjálflægari manneskja er varla til held ég svei mér þá.

Innkaupaferð a la grande amusementos!

Þar sem nokkuð hefur farið af sentimetrum síðan í maí og reyndar júní þegar ég keypti síðast á mig buxur þá var orðið hálfgert neyðtarástand hjá undirritaðri. Hinar dásamlegu gallabuxur héngu bara ekki uppi lengur og voru ekki sérlega smart satt að segja. Þess vegna hafði ég lofað mér því að fara og versla mér buxur nú um mánaðarmótin. Sem ég gerði með skilum í dag. Og hvílík ferð.
Í morgun hringdi Þórunn og spurði um göngu í Þrastarskógi. Ég tók nú ekki sérlega vel í það – enda hentaði mér það svoldið vel að hlusta á Baldur í það sinnið – þ.e. að labba ekki um helgina. En það er bara eiginlega ekki hægt að neita morgungöngu í Þrastarskógi í lok september. Við fórum því 40 mín hringinn – Birkistíginn og gengum bara greitt. Ægilega fínt og skemmtilegt. Þá ákváðum við að fara saman í bæinn.
Við fórum í þrjár búðir, og sjaldan ef nokkru sinni hef ég skemmt mér jafn vel. Við þurftum að fá hverja flíkina á fætur annarri því við vorum alltaf að máta of stór föt. Og ég hef sko farið niður um 6 buxnastærðir- ægilega flókið að geta ekki bara beðið um stærstu buxurnar í búðinni. Alveg ný upplifun… Svo ekki sé nú að nefna toppana. Sjúddirari rei –
Svo þegar heim var komið þá kannski finnst mér þetta nú allt helst til lítið – hefði þurft að hafa þetta allt svolítið víðara og stærra en ég er ekki frá því að ég sé bara svolítið gáluleg í þessu öllu saman!
En kosturinn við það er náttúrulega sá að maður verður þá að losa sig við þessa keppi alla saman sjálfsvirðingar sinnar vegna. Það er svo sem ekki hollt að vera alltaf í alltof stórum fötum og láta bara eins og allt sé í fínu lagi. Þetta verður því vonandi ágætis hvatning. Fyrir nú utan hvað þetta var ofboðslega skemmtilegt.
Trúið mér þið hefðuð alveg viljað vera flugur á vegg þegar brjóstahaldarar voru mátaðir í Hagkaupum. Óborganleg stund satt að segja.
Nei það er ekki einfalt að vera orðin einhver annar en maður var.

listi af óáran

Þetta hefst uppúr líkamsrækt í tímaröð:

  • Magakveisa – apríl – maí
  • Ógnarinnar þreyta – örmögnun – apríl – júní
  • Sjálfskoðun a la tremendousíni – lok apríl – maí
  • Liðverkir dauðans – úní – júlí
  • Hálsverkir – júlí (eru að koma aftur)
  • Fótaverkir almennir – september – a la grande
  • Beinhimnubólga – september
  • Hælspori – september

Og allt er þetta alveg dásamlegt og myndar ALLT ANNAÐ LÍF !

Þetta sem sagt þýðir að ágúst hefur verið nokkuð góður mánuður!

Juuuuuuu…. hælspori

Nú er ég orðin merkilegur íþróttastrumpur! Það getur bara ekki annað verið. Ég er klárlega með einhverja beinhimnubólgu sem legghlífarnar og hvíld í einhvern tíma lagaði – en ekki nóg með það – þá er ég með eitthvað sem heitir hælspori.
Ég var nú að rifja það upp að ég hef fengið svona verk áður – hélt það væri glerbrot í hælnum á mér hér í den þegar ég byrjaði að synda en þetta er þá hælspori!
Eru sko álagsmeiðls… Juuuuuuu ég er sko orðin merkileg finnst mér. Sigh… Gæti samt hugsað mér að sleppa við þetta en það er of seint. Það verður náttúrulega eitthvað undan að láta :-).
Þetta er hælspori:
Hvað er hælspori?
Spurning: Hvað er hælspori? Hvað veldur þessum sjúkdómi og hver er meðferðin við honum?
Svar: Fóturinn er eins og spenntur bogi þannig að maður stendur aðallega í hæl og tær. Það sem heldur boganum uppi er sinabreiða sem festist í tærnar að framan og hælbeinið að aftan. Í hvert skipti sem maður stígur í fótinn kemur álag á hælinn sem getur verið allt að því tuttuguföld líkamsþyngdin. Þetta álag dempast af fitupúða sem er undir hælbeininu og áðurnefndri sinabreiðu. Við langvarandi mikið eða rangt álag á fótinn geta orðið skemmdir á sinabreiðunni og festingu hennar á hælbeinið. Þessar skemmdir geta verið á formi tognunar, smásprungna og að lokum beinmyndunar í sininni þar sem hún festist í hælbeinið. Þarna getur myndast lítið beinhorn sem kallast hælspori. Einstaka sinnum finnst hælspori fyrir tilviljun án þess að hafa valdið óþægindum en oftast veldur hann óþægindum sem geta verið mjög mikil. Þessi óþægindi lagast í hvíld en þau eru vanalega mest á morgnana þegar farið er á fætur. Ef þrýst er undir hælinn er það mjög sárt.Orsakir hælspora eru of mikið álag á fótinn og oftast er um að ræða miðaldra, of þunga einstaklinga eða þá sem stunda erfiðar íþróttir einstaka sinnum, t.d. um helgar. Það eykur einnig áhættuna ef ekki er hitað upp fyrir íþróttaæfingar.Mestu máli skiptir að koma í veg fyrir að hælspori myndist strax og einkenni um óeðlilegt álag á fótinn gera vart við sig með þreytu og verkjum eftir áreynslu. Þá verður að minnka álagið og gera viðeigandi æfingar, einkum teygjuæfingar sem strekkja á kálfavöðvum og sinabreiðunni undir fætinum. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir að það er ekki hælsporinn sem slíkur sem veldur verkjunum heldur er hann afleiðing af langvarandi of miklu álagi á fótinn. Sjúkdómsgreining byggist á sjúkrasögu með lýsingu á verkjunum, skoðun á fætinum og röntgenmynd.Þegar hælspori hefur myndast kann að virðast freistandi að fjarlægja hann með skurðaðgerð. Árangur slíkra aðgerða er slæmur og er reynt að forðast þær í lengstu lög. Í staðinn er ráðlegt að gera viðeigandi æfingar, nota heppilega skó og innlegg, taka bólgueyðandi lyf og stundum er sprautað bólgueyðandi barksterum í hælinn. Þetta ber venjulega einhvern og stundum góðan árangur
.
Tekið af vefnum 20. 09. 2006
Nú jæja – ekkert annað skoho.
Og svo eru til leiðir í þessu eins og finna má hér á hlaup.is (juu minn eini – þetta er í 3. sinn á 2 vikum sem ÉG FER INN Á HLAUP.IS – ég meina það – ég er komin í annað sólkerfi… Sigh (meira um fyrirbærið – myndskreytt :-))
Sem sagt ekki að hætta að hreyfa sig – heldur breyta – sem sagt verð að hjóla.
Og hver á þá að hreyfa Bjart? Ekki get ég hjólað með hann svo mikið er víst
Ég ætla að prófa að labba þessar 20 min – þær gera mér þvílíkt gott – og Bjarti ég bara afber ekki að hætta því. Það tók 7 mánuði að koma mér í þær og það var bara svo stór biti að kyngja að byrja að labba að ég afber ekki að hætta því…
Varla nenni ég að drösla hjólinu upp í Hellisskóg fram og til baka alla daga… Enda er allt í lagi að labba þetta smotterí – svo bara hjóla ég í styrk og kannski í skólann og heim og svona.
Ég hlýt að geta komið Ragnheiði í að labba með hann á kvöldin greyið…
En svo var annað sem ég fann – að seturnar gera ekkert gott heldur – ég meina það – það er svei mér flókið að lifa.
En ég fór í nudd í dag og í einhverjar bylgjur sem virtust gera sitt amk er ég búin að vera með hjartslátt í hælnum síðan og fékk nettan verk upp undir hné… Merkilegur þessi líkami.
En á morgun er kennaraþingið – allir í Sunnulæk ætla að gista – gaman gaman.
Og ég sem sagt fór í morgun að labba vel gölluð og hitti þar Finna á ferð (og sá jeppa á sama stað og ég legg súbbanum – og hélt að ég gæti ekki verið með Bjart lausan og hugsaði svo bara what the heck – fólk bara getur tekið því að hitta hund um 7 leytið á morgnana), en hún lyftist öll þegar hún sá kimi húfuna mína – tíhíhí
Nú er bara að verða góð í fætinum og halda sínu striki samt. Verst allt þetta labb í skólanum – en ég á íbúðaverðsskóna og þeir fleyta mér í gegnum daginn. Væri held ég ekkert án þeirra.
I lof jú öll

Fékk póst frá Freyju…

…sem passar bara algjörlega við mig og mitt. Set hann hér inn!

Svo fékk ég líka lítið ljóð…

Cleaning Poem

I asked the Lord to tell me

Why my house is such a mess.

He asked if I’d been ‘putering’,

And I had to answer „yes.“

He told me to get off my fanny

And tidy up the house.

And so I started cleaning up…

The smudges off my mouse.

I wiped and shined the topside.

That really did the trick…

I was just admiring my work…

I didn’t mean to ‘click.’

But click, I did, and oops I found

A real absorbing site

That I got SO way into…

I was into it all night.<>
Nothing’s changed ‘cept my mouse
it’s very, very shiney
I guess my house will stay a mess…

While I sit here on my hiney.

Komin með hjól

…og búin að fara alla leið til Hildar systur (það er svona kannski 20 sek leið). Allt gekk vel – mér tókst að festa hnakkinn og stíga af áður en ég lenti á bíl og allt!
Nú er ég bara að hugsa hvort ég labbi með Bjart í fyrramálið og hjóli svo í vinnuna.
Nú eða ég labbi með Bjart og fari á bílnum í vinnuna og svo á hjóli í Styrk…
Eða ég labbi ekkert með Bjart og fari á hjóli í skólann…
Já eða ég labbi ekkert með Bjart og fari á bíl í skólann…
Seinni kosturinn hljómar ótrúlega vitlaus en lokandi miðað við hvernig mér líður undir hælnum í dag.
Þórunn fór með mig í labbatúr eftir hringnum sínum og Bjartur var algjörlega kolgeggjaður – sem endar bara á einn veg – ég verð eins geggjuð…
Var með bullandi verk í hægri öxlinni, hálsinum og hausnum eftir þessa göngu þökk sé Bjarti – sem ég bara verð að fara að láta verða stilltari hund – þetta er ekki að gera sig, þó hann hafi haft þá afsökun að vera á nýju svæði. Ég verð að vera harðari – díssussssss
Þórunn dugleg maður – þetta er 30 mín ganga hjá henni upp á hvern dag eftir malarvegi með alls kyns illskeyttum hnullungum sem meiddu minn auma hæl út í eitt….
Og ég á ekki nudd fyrr en á miðvikudag og vittu til það verður allt komið í samafarið.
Nú – ég var mjög dugleg í vinnunni í dag – gerði alveg fullt og ég er bara ánægð með mig. Sem minnir mig á það – ég verð að fara út í skóla alveg extra snemma sem minnkar líkurnar enn á því að ég hreyfi mig í fyrramálið – en þetta er svona neyðartilfelli…
En ég er ekki hrifin af því að svíkjast um að labba á morgnana því ég bara veit hvað þetta er að gera mikið fyrir mig -kannski get ég farið og unnið og ef ég hef tíma farið svo út að labba áður en er hringt – nú eða á meðan krakkarnir lesa 😀 Nei nei bara grín.
Lof jú er farin að sofa í hausinn á mér – er stjörf af þreytu.