Blogger dauður!! …en upprisinn

Vóhó – blogger bara búinn að liggja niðri í marga daga mar! Ég hef samt ýmislegt brallað. T.d. þyngt ógeðstækið þvílíkt að ég er lurkum lamin mar – er enn að svitan hálftíma eftir að ég hætti. Púff. En að gera þetta að gamni sínu :D.

Ég fór líka á miðvikudaginn – hitti meira að segja hann Baldur minn! veit nú ekki alveg til hvers – en ég veit það samt. Það þarf einhvern til að halda mér á mottunni mar. Ég er svindlari af guðs náð – það þarf að vera stígandi í þessu öllu saman.

Verð að keyra Palla og sækja Aðalstein. Bið að heilsa í bili – ykkar Inga

Já góðan daginn öll!!!!

Sæl verið þið heilladísirnar mínar!

Þið hafið náttúrulega og að sjálfsögðu haldið að ég væri horfin en svo er nú ekki – bara svolítið önnum kafin kerlingin! Og við ýmislegt annað en Styrkferðir því miður.

En sumt þarf bara að vinnast áður en annað er lagt. Síðasta vika var annasöm í meira lagi. Og þó ekki hafi verið farið í Styrk þá var sko eitt og annað brallað. Skólalok eru svona með skemmtilegri verkum mínum sem kennara en þau eru líka svolítið kvíðvænleg. Það er svo mikið að gera eitthvað – og mikið undir. Það er gott að ljúka vetrinum vel til að geta byrjað þann næsta enn betur. Gera betur í dag en í gær – og enn betur á morgun.

Liðin vika

Á þriðjudag var gróðursetning í grjótabeðinu hér við skólann – það var nú svei mér gott að ég hef krafta í kögglum þó ég hafi nú reynt að láta krakkana gera sem mest. Finnst það reyndar allrar viðleitni virði að láta þau sjá um verkin sín sjálf. Verst hvað voru fáar skóflur – já og á stundum hefði nú bara ekki veitt af svolitlu af hökum og járnkörlum svei mér þá.

Síðan tók foreldrafélagið við og Logi með þrautabrautir og þar lenti ég í þeim rosalegasta ratleik sem ég hef haft fregnir af. Það var strauað hér um Tjarnirnar og Rimana í leit að vísbendingum – ég á eftir herskara af í meira lagi hraustum 10 og 11 ára börnum og ég skal bara segja ykkur það að ég mátti hafa mig alla við að halda í við þau – sem ég reyndar gerði nú ekki neitt heldur náði þeim á hverri stöð þar sem þau voru að leysa þrautirnar. Það vildi svo heppilega til að þau þreyttust líka svo við náðum að vera nokkurn veginn samferða heim í skóla! Og enginn týndist. Ég hafði hins vegar lagt að baki mestu göngu æfi minnar held ég svei mér þá – ég bara hlýt að hafa slegið öll hraðamet – og ósköpin stóðu í 30 mín. Það var mín líkamsrækt þann daginn plús að skondrast í gegnum brautirnar með krökkunum. Úff það voru þreyttir kennarar sem komu inn að pylsuáti loknu! Úff púff bara. Fór aðeins í sund um kvöldið til að láta líða úr mér – ég var heltekin af þreytu.

Á miðvikudag fórum við síðan í svolítið skólaferðalag í Þjóðveldisbæinn, að Hjálparfossi og svo í sund í Brautarholti. Frábærlega skemmtilegt allt saman og gaman að fara með krökkunum í sund. Þetta er skemmtilegir krakkar sem gaman er að vera með á góðum degi. Blessaðir litlu angarnir! Ég djöflaðist í klst í lauginni í alls konar boltaleikjum og kaffæringum – og ég fékk harðsperrur á mjög sérkennilega staði í handleggina eftir hafa verið henda krökkunum til og frá – fyrir svo utan það að labba þessi ósköp. Þetta var skilgreint sem nægileg líkamsrækt þennan daginn! Samþykkt af Vilborgu sem slík. Versta er að eftir svona átök – og trust me – ég er ekki ein um að finnast þessir dagar strembnir á að vera að vinna frameftir öllu við að ganga frá námsmati og slíku og það er frekar erfitt skal ég segja ykkur. Enda komst maður ekki almennilega á skrið fyrr en rúmlega þrjú.

Á fimmtudag var síðan allt sett á fullt við námsmat – mætt fyrir allar aldir og prentað út og flokkað og skráð og allt hafðist það fyrir kl. 10 á föstudag en meira fyrir tilstilli Vilborgar en nokkurs annars. Það er nú meira hvað sú manneskja er mikilfengleg. Ég brunaði síðan í bæinn og Ragnheiður með að kaupa mér einhver föt fyrir skólaslitin og óvissuferðina. Fékk á mig þessi rosa fínu föt maður sem ég fílaði mig svona þrælvel í.

Á föstudag mætti ég svo fyrir sjö út í skóla og kvittaði í námsmatsmöppur og tók til í svæðinu með Vilborgu. Náðum meira að segja að gera það – vóhó! Settum svo upp snyrtistofu, sléttum á okkur hárið og gerðum okkur sætar og voila – allt tilbúið kl. 10! Geðveikt.

Skólaslitin gengu vel fyrir – stutt og laggóð – saknaði að vísu nokkurra foreldra og nemenda en sumir voru komnir til útlanda. Það er alltaf gott að knúsa krakkana og þakka þeim fyrir veturinn og óska þeim alls hins besta í sumar. Þau eiga það skilið. Nú….

Ekki var allt búið enn…

Óvissuferðin með starfsfólkinu hófst kl. 15:00 og eftir miklar útréttingar, innkaup og magakveisu var lagt í hann. Magakveisan entist enn um sinn en eftir því sem leið á lagaðist hún, veðrið batnaði og þegar upp var staðið var að baki aldeilis ágæt ferð – þrælskemmtileg með algjörlega stórkostlegu fólki. Þegar við komum heim vorum við læst úti og eftir mikið bauk og braml komumst við nú inn – Takk Ásdís mín!

Á laugardag fundum við svo til útilegudótið, strau-uðum á Flúðir með Aðalsteini, Viktori og Bjarti (sem er nú á ýmsum stöðum betri en á 3000 manna tjaldsvæði), og hittum þar Sumarliða og Siggu. Þetta var fín ferð – vagninn kom vel undan vetri nema allar súlur voru mjög kalkaðar – ég veit ekkert afhverju það hefur verið og veit heldur ekki hvort það er til vandræða. Þarf að hringja í Combi camp og athuga það. Við komum heim í gær og skildum ekkert í því hvað við vorum þreytt. Eftir að hafa skrifað þetta allt er ég nú samt farin að skilja það betur. Mikið óskaplega hefur síðasta vika verið annasöm.

Núið

Framundan er hins vegar betri tíð með blóm í haga. Eftir að hafa legið lengi undir sænginn í morgun og freistað þess að verða ósýnileg svo ég þyrfti ekki að fara í Styrk hringdi ég að lokum í Vilborgu til að gá hvort hún væri ekki til í að verða ósýnleg með mér og feista þess þannig að við kæmumst ekki í Styrk, kvað hún upp úr með það að Styrkur væri ekki opinn í dag. Þannig fór það. Kannski ég fari í sund á eftir, þegar ég hef unnið svolítið. Þarf að undirbúa mig svolítið fyrir málþing hér í skólanum. Er orðin alveg óskaplega syfjuð – eftir 40 mín dvöl hér í skólanum eða svo – meira hvað ég get verið þreytt. En ég hristi það af mér enda komin í þetta fína samband við sjálfa mig – búin að kveikja á kerti, ét gulrætur og drekk vatn með – ég meina getur þetta orðið betra?

Meira síðar um fæði í útilegum, kærumál í Grímsnesinu og e.t.v. sitthvað fleira.

Ykkar Inga

…ef ég bara einfaldlega bíð þetta af mér?


Haldið þið þá ekki að allt sé svo dáindisgott í framtíðinni? Mig er a.m.k. alltaf að dreyma fyrir því. Sumt er bara þannig að það er ekkert gaman að því.

Líkamsræktin er nú samt ekkert endilega eitt af því. Ég kemst í gegnum 40 mínúturnar í brennslunni og tvær ferðir salnum næsta auðveldlega – andlega þ.e.a.s. Sum er bara þannig að það er ekki gaman að því…

En iss piss, koma tímar, koma ráð.

Blogg ekki í færri liðum


…er ekki upplagt að hafa blátt í dag? Blátt er flottur litur en á ekki að vera aðallitur – heldur bara svona í bakgrunni og upp á punt. Hann er eiginlega ekki til þess gerður að nota hann. Við skulum þá hvíla hann í amk 4 ár hér í Árborg a.m.k.

Það er annars makalaust með þessar kosningar. Þær hafa margar og skringilegar hliðar.

En dembum okkur í hina fjölmarga málaflokka sem eru á dagskrá:

  • Kosningar í Árborg

Jæja hér eru tíðindi sem vekja upp ýmsar spurningar hjá mér. Það er ýmislegt sem ég skil ekki. XD fór með það fram að breytinga væri þörf – ég held að það slagorð hafi komið fram þegar þeir horfðu yfir það fólk sem var í framboði hjá þeim. Þeir völdu breytingarnar og ég ætla nú ekki einu sinni að fara yfir það fólk sem var valið en ég bara skil ekki – skil ekki afhverju fólk kaus þetta frekar en þá stjórn sem hefur verið að taka til eftir xd síðustu 4 árin en þá höfðu þeir háu herrar ráðið hér í 12 ár – lagt skólamál í rúst – plantað nokkrum trjám, og ekkert annað.

Ég veit um bláfátæka verkamenn og barnafólk sem kaus xd – heldur það að sá hópur atvinnurekenda og … já látum það liggja milli hluta, bjargi þeim? Séu skólamálasinnaðir? Hlúi að fjölskyldumiðsstöðinni? Og svo mætti lengi telja. VEIT FÓLK HVAÐA VERKEFNI ERU Á BORÐINU HÉR Í ÁRBORG OG ERU AÐ KOMAST Í FRAMKVÆMD? veit fólk að það tekur tíma að undirbúa góð verk? Ég bara spyr – óskiljanlegt. Ég er svo ótrúlega skilningslaus þegar að svona málum kemur! Ég veit heldur ekki hvað það er sem var að?

Eyþór Arnalds orðinn oddviti á ný – hann ætlar ekki að bíða neins dóms – hann er sko kominn á full swing – enda keyrði hann bara á staur – það var nú það eina sem gerðist eftir því sem hann sagði á NFS. Æðislegt sveitarstjóraefni – ég ætla ekki að bera út sögur hér um hann en ég veit að mörg ykkar þekkja feril Eyþórs. SIGH! Ég hef verið í sveitarfélagi þar sem grúppa fámennra valdasjúkra gerðu ótrúleg glappaskot og gáfu ekkert fyrir það sem fólk hafði að segja – sló af fjöreggið og taldi sig komast upp með það. A.m.k. tókst þeim að eyðileggja mitt heimilislíf þannig að síðustu 2 ár hafa farið í að lagfæra það og þá komum við að….

Kosningar í Grímsnes og Grafningshreppi

Haldið þið ekki að þeir INGVAR og SIGGI á Svínavatni hafi sigrað með Keys í 3. sætinu í Grímsnesinu. Þeir settu skólamálin fremst – Takk Grímsnesingar og Grafningsbúar. Það er miklu betri tilfinning að keyra þar í gegn núna. Menn eiga að uppskera eins og þeir sá. Sú er þó ekki alltaf raunin. Góður maður í 3. sætinu – ég stóla á þig!

  • Kiðjaberg

ÉG var að passa Mosa hennar Ástu um helgina – litlu fitubolluna. Það var yndislegt að dvelja á Kiðjabergi – ég gat hvílt mig alveg fullt. Fundið kraftinn frá ánni og hlustað á fuglana. Þetta voru dásamlegir dagar. Yndislegt hús. Ég fór yfir öll stærðfræðiprófin og vann smávegis í námskrárfræðunum. Ég er samt hálf lasin, föl og guggin. Vona að þetta sé að verða búin – ég er eiginlega alveg búin að fá nóg af þessu sleni. Átti maður ekki að verða svo hress af því að fara í líkamsrækt?

  • Formúla 1

Bara eitt – slysaðist til að horfa því Mónakó er jú Mónakó – oh ég held ég sé endanlega hætt að hafa áhuga á þessu…. Samt svoldið skemmtileg úrsliti – hefði verið alonos – kimi og montoya ef… en því var ekki að heilsa – fullt af nýjum nöfnum. En samt ég læt þetta liggja á milli hluta – enda er ég orðin svo þroskuð.

  • Næsta vika

Ég kvíði svoldið fyrir henni. Þetta verður slagur. Barátta. Það eru erfiðir tímar framundan í skólanum margt sem þarf að gera og ég er svo þreytt og illa upp lögð eitthvað…. En ég kemst í gegnum þetta. Það er ekki svo mikið eftir …

  • …eitthvað um líkamsrækt?

nei.

Bros gefur


Það hefur verið kalt nú er komið þetta dásamlega veður. Og því er ekki úr vegi að hafa skóna hennar Öskubusku hér í dag.
Yndislega fallegur – rétt eins og veðrið og loforðið í dögginni um yndisfagran dag.
Gollmolar liðinnar viku:
  • Ég fékk fallegasta bros frá einstakling á mánudag. Bros sem lýsti upp heiminn og enn logar týra. Brosum meira!
  • Dísa systir fékk sér ógeðstæki – húrra fyrir henni. Það verður gaman að fylgjast með framförunum hjá henni á græunni.
  • Ég gat sett ógeðstækið saman – þrátt fyrir að hafa djöflast í ræktinni áður.
  • Það hlýnaði í gær og sólin skín í dag. Finnum til útilegudótið!
  • Ég get gert vini mínum greiða um helgina! Hjálpumst að!
  • Stærðfræðiprófið sem ég gerð var nokkuð gott! Vöndum námsmatið.
  • Maðurinn minn sagði að það væri gott að koma heim til mín! Verum góð við maka okkar!
  • Ég á vinu sem fer með mér í ræktina sama hvernig stendur á! Vinir fara saman í ræktina!
  • Sonur minn sagðist hafa orðið betri maður vegna þess að hann hlustaði á mig.
  • Dóttir mín á góða vini sem gera hana glaða!
Það er sko margt sem ég get verið þakklát fyrir – ekki síst ykkur sem lesið þetta 😀
ps seinni partinn: Fór ein í styrk því aumingja Vilborg er lasin. Ég fór tvisvar í ógeðstækið – og var alls í 40 mín í brennslu og svo í salinn náttúrulega – held að met hafi verið slegið þar – og að ég hef náttúrulega aldrei áður verið í 25 mín á ógeðstækinu. Sveiflast upp og niður í þyngdinni. Ætla nú bara að vikta mig á föstudögum. Það er ekkert vit í að fara annan hvern dag á hana. Lof jú still líkamsræktartröllið.

Vinna í dag

Margt sem þarf að gera.

Ef ég væri eins mikil pæja og Sædís og Ásta Björk þá væri ég í svona skóm í dag – deffenatly
…og í gallabuxum við.

En þar sem ég er nú bara ég og við því fæst lítið gert úr þessu þá er ég meira í þessum anda til fótanna í dag. En hver veit hvað verður?

Ykkar elskandi Inga sem er búin að fara þrisvar í Styrk þessa vikuna en verður líklega lítið að sprikla í dag.

Ef það mætti blóta þá….

…þá myndu koma nokkur vel valin núna. Ég er sko ekki búin að fá nóg af sjálfri mér – ég er búin að fá mikið meira en nóg!

Þetta er ljótasti skófatnaður ever og hann er vel viðeigandi. Litlaus og druslulegur. Oj bara.

Alltaf hressandi að fara í Styrk- hreinlega mannbætandi. Það var nú svei mér gott að ég fór ekki líkamsrækt til að léttast – svei mér gott! Því það er ég sko ekki að gera. Heilu kílóin bætast við á milli daga og allt stefnir í met þennan mánuðinn. Já það er nú svei mér dásamlegt að verða hraustur og enn feitari. Náttúrulega bara unaður. Ekki nokkur einasta furða að maður borgi einhver þúsund fyrir þá sælu mánaðarlega. Ekki nokkur undrun. CHRIST…..

Mér finnst svo gaman að stjörnuspám – það má nefnilega túlka þær á hvern þann hátt sem manni sýnist. Svona er mín í dag:

Here is your horoscopefor Tuesday, May 23:These big changes didn’t pan out exactly as you expected. Could it be that what actually occurred might be better for you in the end? Tie up those emotional loose ends and rejoice fully in what you have.

Það væri það – ha ha ha – en hvenær er sá endir? Eftir 20 kg í plús eða jafnvel 30? Ja það væri gaman að vita það fröken stjörnuspá!

Fór sem sagt í Styrk því sundlaugin var of köld vegna einhverra fjandans vindstiga og bilunar. Ég er ekki ánægð kona í dag. Nú skal þessi matardagbók haldin af viti og ég hætti að éta eftir 20. Ætli það endi svo ekki með því að ég labbi í skólann fram að lokum hans – ég yrði ekki undrandi á því. Það er greinilega ekki í lagi með brennsluna hjá mér skal ég segja ykkur. Og þið þurfið ekki að halda að það sé ekki telið á í Styrk – oh nei – það er svoleiðis djöflast að við þyrftum börur eftir átökin. En sinnir vogin því einhverju – oh nei ekki aldeilis.

Þetta er áreiðanlega allt Baldri að kenna – hvað er hann að fara í frí? Og ef það er ekki honum að kenna þá er það …. hmmmm Bjarti að kenna!

Þeir eru a.m.k. álíka þverir! Sigh, ó mig auma…. En eins og ég sagði í upphafi – sjúkket að ég fór ekki í heilsuræktina til að léttast – það hefði nú verið meiri bömmerinn. Heilsubót er allt sem ég bið um! (Mig langar helst til að garga, lemja frosk og steikja snák)

Ég fór skoho í Styrk!!!!!


Já já já sko mína! Þyngist bara og þyngist – það er nú svei mér skemmtilegt. Hangi í einu kg. á viku. Ekki sérlega góður árangur verð ég að segja. Ég ætti kannski að andsk… til að hætta að svindla og éta nammi og óhollustu!!!!!!!

En því er hægt að breyta. Og ég bara geri það.

Ástæðan fyrir þessum ótrúlega pæjuskó er sko góð. Ég er sko ógeðslegur nagli. Ég ætlaði nú ekki í skólann í dag var svo slöpp þegar ég vaknaði en hætti nú við það og dreif mig og þetta var bara ágætur dagur þar til kl 13:30 þá bara varð ég svona rosalega veik í maganum að ég hef aldrei vitað annað eins. Það bara bjargaði því að börnin voru svo stillt að það var yndislegt að ég gat dvalið langdvölum annars staðar. Ekki hafði ástandið mikið batnað rúmlega þrjú og ég var alveg að fá taugaáfall yfir því að komast ekki í Styrk. Gat mig ekki hreyft. Ákvað samt að láta reyna á þetta til fullnustu – varð að stíga á vigtina til þess að horfast í augu við sukk helgarinnar (sem var nú ekkert geðveikt mikið en of mikið). Ákvað bara að drífa mig samt – færi þá bara á 20 mín á hjólið eða eitthvað og svo heim.

Ég gat svo alveg farið í salinn en þrekið var ekki í lagi svo ég bara var í 30 mín í brennslu. Ég líka komsti að því að göngubrettið reynir ógeðslega á hnén á mér – miklu meira en ógeðstækið. Ætla því að vera minna á brettinu og meira á ógeðstækinu. En taka svona spretti á göngubrettinu – ekki gott að vera of mikið á því finn ég.

Nú jæja sem sagt ég er að kafna ég er svo stolt af þessari ferð minni. Og nú sit ég heima að drepast í maganum. En með þessa dásemdar vellíðunar tilfinnungu í vöðvunum – já og sálinni. Sund á morgun – gaman gaman. Syndi eitthvað hóflegt bara.

Inga sem er komin á beinu brautina á ný – er það ekki bara?

Blogg í nokkrum liðum

Svona dagur í dag

  • Silvía Nótt og raunveruleikinn

Það var gaman að hlusta á Kristján Hreinsson textaskáld og geðvonsku-evróvision Silvíu Nætur ekki þolari, í morgun í útvarpinu. Honum þótti þetta háðuleg útreið og nú skyldum við íslenskir hætta allri vitleysu og fara að taka þátt í þessari keppni af einhverri alvöru. Þetta hefði verið svo háðuleg útreið og okkur öllum til þvílíkrar skammar að slík múgæsing ætti aldrei að líðast aftur. Því skyldi m.a. setja á fót dómnefnd ásamt símakosningu til þess að velja flytjanda. – Sem mér að vísu þykir ekki vera alvond hugmynd en það eru bæði rök með og á móti.

Guðni Már skaut því nú inn í orðagjálfrið hjá Skerjafjarðarskáldinu að við hefðum nú áður náð litlum vinsældum en Kristján sagði aldrei sem nú – púað hefði verið á Silvíu og það þótti honum alveg gasalegt. ´

Ég man ekki í hvaða sæti We are the winners lenti – en alltaf var púað á þá og svo var púað á alla sem ekki gáfu Grikkjum stig og satt að segja held ég að það sé full ástæða til þess að púa á allt sem Silvía Nótt stendur fyrir. Við skulum ekki gleyma því að þar er á ferð undir niðri kona með boðskap – boðskap sem kannski small ekki í gegn á fimmtudaginn – en það munaði litlu. Hér kemur frétt af www.ruv.is

Evróvisjón: Finnar unnu og Silvía Nótt varð 13. í forkeppninni
Finnska hljómsveitin Lordi sigraði í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Aþenu í gærkvöld. Finnarnir fengu 292 stig fyrir lag sitt Hard Rock Halleluja. Dima Bilan frá Rússlandi varð í öðru sæti með 248 stig og hljómsveitin Hari Mata Hari frá Bosníu Hersegóvínu í því þriðja með 229 stig.
Silvía Nótt hafnaði í 13. sæti í forkeppni söngvakeppninnar á fimmtudagskvöld. Hún hlaut 62 stig, 14 stigum minna en fulltrúi Makedóníu sem hafnaði í 10 sæti og náði þar með að komast í lokakeppnina. Finnarnir unnu forkeppnina fengu 292 stig eða nákvæmlega jafn mörg stig og í gærkvöld.

Hér þykja mér vera nokkur tíðindi. Ég man ekki hvar hún Selma mín lenti í fyrra en það var held ég í 17. sæti og gott ef hún átti ekki að vinna keppnina að margra mati. Silvíu vantaði ekki nema 14 stig sem er rosalega lítið – eiginlega ótrúlega lítið. Hér má sjá hverjir gáfu okkur stig.

Ég held að menn ættu að horfast í augu við ákveðin sannindi – gert er gert og allir nema blessuð börnin vissu að Silvía Nótt myndi ekki fara hljóðlega til Aþenu – það væri bara barnaskapur að halda það – hún er ákveðin fígúra og heldu því áfram.

Mér finnst hins vegar miður að allt þetta bauk á sviðinu og búningurinn fannst mér ekki flottur en ég held það hafi samt ekki ráðið úrslitum. Kannski vantaði bara upp á að lagið væri nógu gott eða það sem mér finnst líklegast – Ágústa var bara einfaldlega búin á því og átti ekki meira inni- það vantaði neistann sem kannski hefði komið henni upp fyrir þetta ótrúlega glataða lag frá Makedóníu. Ég er bara stolt af henni og ég vona að boðskapur hennar komist í gegnum hausinn á fólki – að í raun eru svona fígúrur að tröllríða heiminum eini munurinn er að þær eru ekki að leika heldur eru þess fullvissar að ekkert sé eins stórkostlegt og þær.

Og að lokum þetta – mér fannst viðtalið við hana eftir keppnina á fimmtudag stórkostlegt – Ragnar Reykás hvað.

Svei ykkur sem kusuð Silvíu og snúið svo við henni baki á ögurstundu – einhver hringdi þessi 70 000 atkvæði inn – reynið ekki að þræta fyrir það.

  • Heimilishald

Þegar ég kom inn í stofu í morgun varu 3 sokkar þar (ekki þrennir) einar nærbuxur svolítið af skóm og einar gallabuxur á gólfinu. Einn styrkbrúsi í frumeindum, vel nöguð gosflaska, neftóbaksdós og sælgætisbréf. Á eldavélinni er matur síðan ég veit ekki hvenær, föt á borðstofuborðinu, salernið eins og hjá illra hirtri snyrtistofu og á stofuborðinu lágu alls konar hlutir, teygjur, sléttujárn, bursti, nammibréf, glös – já nefnið það bara.

Úti er ekkert farið að gera og allt í tómu tjóni. Jólaseriurnar hanga flestar enn utan á húsinu.

Ég sit í súpunni að hafa ætlað að hvíla mig þessa helgina…. Það var ekki sérlega góð hugmynd. Er ekki viss um að ég láti slíkt og þvílíkt henda mig aftur.

Hvað á að gera við konu eins og mig?

  • Líkamsrækt

Ég fór síðast í Styrk á miðvikudag, synti sama og ekki neitt á fimmtudag, skreytti sal og samdi ræðu á föstudag. Svaf og þreif grilljón diska og glös eftir matarklúbbinn á laugardag. Át NAMMI (líka á fimmtudagkvöld -eina bótin er að mér finnst það ógeðslegt eftir nokkra bita og hætti því í tíma). Er að drepast í bakinu eftur að hafa hvílt mig óhóflega mikið!

Hef þó farið í 20 – 30 mín göngu í gær og fimmtudag með Bjart og það er nú aðeins betra en ekki neitt – fann stóran mun reyndar hvað ég er sprækari í þeim efnum. Verður gaman að prófa goflið. Kylfurnar eru komnar neðan af lofti og nú er bara að fara að prófa.

Eftir þessa niðursveiflu þá er bara að láta sig hlakka til morgundagins – fara í sinn Styrk og vera glöð með sitt. Það er ómögulegt annað en leiðin liggi aftur upp á við og niður á við á vigtinni. Ég má ekki láta andlega niðursveiflu hafa of mikil áhrif á mig. Þær koma líka alltaf og maður verður bara að þola þær er það ekki? Ég hef bara verið orðin þreytt…. og uppgefin! Svo hef ég engan Baldur og það munar nú um minna – ekki það ég held að meira að segja hann hafi ekki getað bjargað mér úr þessari klípu sem ég hef verið í.

  • Annað

Tjaldvagninn er kominn í hlaðið og garðhúsgöngin líka. Nú bara að bíða eftir góðu veðri og kíkja á græurnar.

Palli er búinn að fá vinnu í Færeyjum og fer væntanlega í júní, vonandi skilar það góðu og vonandi kann hann að fara vel með sig og kemur með alla limi og líffæri heil heim.

Ég fer að vinna í lokaverkefninu í áfanganum um næstu helgi og ætli ég reyni ekki að vera búin að meta ýmsa þætti þá líka. Ég held ég eigi að vinna á uppstigningadag til þess að vinna af mér og ná að vera með Ástu Björk áður en hún fer út og þá er nú rosa margt hægt að gera.

Já já þetta er allt að koma. Ég fer í garðinn og tek eitthvað til. Hvíli mig svo líka og reyni að hugsa ekki þá hugsun til enda að hvorki Sædís né Vilborg verða í skólanum á morgun. Bara byrja daginn rólega og af skynsemi og muna að það eru blessuð börnin sem gefa þessu öllu gildi.

Búin í bili –