Markmið

úff

Þessi voru vikunnar:

Mála klósettið – Er í vinnslu
Henda skáp út í forstofu og mála hana líka – Er ekki lengur viss um að það sé það sem ég vilji!
Minnka inntöku fæðu um miðjan daginn nema í formi 1 ávaxtar og grænmetis
Borða ekki seinna en 19:00 öll kvöld vikunnar Hef borðað sleitulítið sykraða banana og hnetur í námsmatsvinnunni og er enn að…
Ekki fara í blak – Langar mjög mikið – spurning um einbeitingu að demba sér ekki…
Taka til í Ragnheiðar herbergi og setja þar upp verkstæði jólasveinsins – er að fara í það NÚNA
Námsmat – foreldraviðtöl – Búið
náttúrufyrirbæri eru verkefni næstu viku í skólanum. – Muna að hengja upp myndir og koma einhverju skikki á þetta hjá mér.
Styrkur á þriðjudag og fimmtudag, sundleikfimi á mánudag, miðvikudag og föstudag. Sæll eigum við að ræða þetta eitthvað? Sundleikfimi í gær, stuttur hjólatúr í dag upp á einhverjar 400 kal eða svo! Sundleikfimi í fyrramálið stendur, ekkert blak á fimmtudag – kannski sund… og svo sundleikfimi á föstudag.

ÉG er nefnilega í mótþróaþrjóskukasti og þykist vera svo illt í fótunum að ég þurfi að hvíla þá – og þá sé betra að gera minna en meira. En meira að segja mér þykir nú 500 kal á dag í 5 daga vera ansi lítið og því væri freistandi að fara líka um helgina í t.d. sund og segja 7×5 sem eru þá 3500 kal á viku sem er meira en helmingi minna en vant er…

En kannski er það bara það sem ég þarf – að gera minna. Það er enginn endir alls svo sem – tala nú ekki um þegar maður verður búinn með hneturnar og bananana!

138 eftir 2 vikur og 135 um jól.

Jamm það er víst alveg skírt

Helgin í Reykjavík

Sæl verið þið

Ég á nýja sko – víhí – wave line jóhó frá Mizuno ógó mikil pæja

Við systurnar höfum dvalið í Reykjavík um helgina. Nú sit ég og bíð eftir Palla og það er alveg eins og ég hafi einhvern tímann gert nákvæmlega þetta sem ég er að gera – áður – heitir það ekki deja vú?

En þetta hefur verið fín helgi – mér hefur að vísu lærst að ég er ekki í húsum hæf og á eitthvað í land í samskiptum við mína nánustu. Þarf svona eitthvað að skilgreina og redirekta því í annan og betri farveg. Það hlýtur að koma.

Mataræði var með ýmsu mót og ekki sérlega gott en ekki heldur sérlega slæmt. Ég stefni á að vera einbeitt og öguð, viljasterk og víðsýn í næstu viku og taka vel á í hreyfingu og mataræði.

Áherlsan verður vonandi á að vera jákvæðari og sjálfsaðgerða miðaðri og hætta að gera vesen úr öllu – endalaust. Bind nú ekki vonir við að mér takist að hætta að gera vesen úr einföldum hlutum. Svo þarf náttúrulega að taka á ýmsum málum sem liggja á minni áður líður mér líklega ekki sérlega vel.

Verkefnalisti sem gæti litið sennilega út með hæfilegu ofmati:

Mála klósettið
Henda skáp út í forstofu og mála hana líka
Minnka inntöku fæðu um miðjan daginn nema í formi 1 ávaxtar og grænmetis
Borða ekki seinna en 19:00 öll kvöld vikunnar
Ekki fara í blak
Taka til í Ragnheiðar herbergi og setja þar upp verkstæði jólasveinsins
Námsmat – foreldraviðtöl – náttúrufyrirbæri eru verkefni næstu viku í skólanum.
Styrkur á þriðjudag og fimmtudag, sundleikfimi á mánudag, miðvikudag og föstudag.

Já annars var nú stórvirki aldarinnar fræmkvæmt í gær: Við systkinin eigum ættingja í San Diego Usa – systkini til hálf föður okkar, sem okkur langar að vitja en það hefur ekkert samband verið við þau að nokkru ráði í gegnum tíðina. Okkur langar út um páskana en höfum verið ótrúlega rög við að hringja nema sú stutta gerði það náttúrulega í gær og talaði við bróður pabba í næstum hálftíma og það var afskaplega gaman. Við ætlum svo að tölvusambandast og vonandi verður bara eitthvað úr þessu öllu saman.

En nú er það pottferð á Selfossi og matarboð hjá Ástu Björk og Halla – gaman gaman.

Jákvæð og þakklát

Þarf að bæta því við að vera keppnismanneskja.

Má líka ekki trufla mig að sumir velji magaaðgerð en ég ekki og að hinum mjóu finnist þetta alveg stórkostleg lausn og standa í andakt. Það er hvort sem er áreiðanlega bara öfundsýki í mér.

En hvað verð ég ef ég hætti að vorkenna mér og velta mér upp úr vandræðunum og litlu tilgangslausu vandamálunum mínum? Held ég kannski bara að ég verði alltaf að vera vælandi til þess að einhver nenni að hlusta…

Ég er svo sjálflæg að það er náttúrulega bara viðbjóðslegt. Ætti náttúrulega að skammast mín. Þetta er ekkert flókið.

Stundum bara nær maður 100% einbeitni og svo koma þessi tímabil þar sem allt virðist ganga á afturfótunum og maður getur ekki neitað sér um neitt.

Sigur dagsins – ætlaði að fá mér tvö kex og mjólkurglas í skólanum en hætti við það því það voru óhugglega margar hitaeiningar í því – og ég er jú keppnismanneskja. En ég borðaði of mikið af osti.

Sigur dagsins 2 -nissað er enn í töskunni.

Klúður dagsins – fór í blak og reif upp á mér sinina undir fætinum – aftur jafn hölt og alltaf eftir að hafa verið að lagast.

og skórnir mínir eru ónýtir og ég þarf að kaupa mér nýja svo ég geti gengið og þeir eru mjööööög dýrir….

Já ég veit ekki yfir hverju ég ætti að kvarta (hölt í 14 mánuði, of feit, ekki næga sjálfstjórn, son sem gerir mig gráhærða á köflum, leti, blankheitum,) hef nægan mat, góðri vinnu, fínan bíl, góða fjölskyldu, ykkur og blak.

Life is great

Já já hress bara – alveg þangað til

…ég sá Kastljós í kvöld!

Sko ég veit að skurðlæknar eru svoldið spes – allt klippt og skorið hjá þeim – þekki þá betur en margur eftir Ragnheiðarævintýri. En sem sagt Kastljós

fylgst er með einhverjum Rósinkranssyni sem er bara ágætt og fróðlegt og það allt en skilaboðin eru nú allavega:

Ef maður fer í þessa aðgerð þá losnar maður við fíkn – ÓSTJÓRNLEGA fíkn sem veldur því að maður bara þyngist um 50 kíló strax og samstundis (mjög klippt og skorið í anda skurðlækna) og maður hefur misst 50 kíló – en aðgerðin losar mann við allt svoleiðis. OHMYGOD

Guð ég er komin í oföndun

Nú aðgerðin eykur líflíkur um 10 ár, krabbameinsáhættu um 50% sykursýki eitthvað svipað og og og og og og og og

Heyriði svo kemur þessi blessaði maður sem er búinn að láta minnka magann á sér um svo og svo mikið og leiða fram hjá þriðjungi garnanna í Kastjós á morgun OG ÞÁ FÁUM VIÐ AÐ HEYRA HVAÐ HANN HEFUR LÉST MIKIÐ Á EINUNGIS ÞREMUR VIKUM

Oh my god

Hvað er ég að pæla að standa í þessu í ræktinni, berjast við matargræðgina, óregluna og hvað þetta er þegar maður getur bara farið í aðgerð og hviss bang orðin fullkomlega hamingjusöm mjó kona!

Er bara ekki í lagi með mig?

Ég held ég fari að borða reductil, panti aðgerð, fari á Reykjalund, Hveragerði, á endurhæfingarörorku og láti svæfa mig alveg fram að aðgerð – svo lengi sem þeir lofa að gefa mér reductil og stóppípur reglulega!!!!!!!!!!!!!

Jahá hress bara

Er það ekki bara.

Vaknaði svona hroðalega hress í morgun kátari en Bjartur jafnvel.

Er komin með í lungun og hósta upp einhverju sérkennilegu, sárt fyrir brjóstinu

Námsmat er í fullum gangi og ég hef á því skoðun (hlekkur)

Keppnisskapið hélt í dag

Borðaði 5 ostsneiðar í dag og 1 kex og tvo pizzusnúða

Það er kveikt á 15 kertum í stofunni minni

Ég er aum í báðum hælum en miklu skárri í þeim verri

Ég er með ofnæmi fyrir Bjarti

Ég ætti að vera að taka til í föndurherberginu þar sem þetta er fyrsti dagurinn lengi sem ég get staðið í lappirnar!

Oh my god það er frost á morgun og ég er ekki komin á vetrardekk!

Það er nizza í veskinu mínu og það á fimm daga afmæli í dag 😉

Kannski kemst ég ekki í blak á morgun!!!!!

666 færslur á blogginu mínu ;-)

Vel af sér vikið ekki satt. Það er svona að vera kjaftaskjóða.

En sem sagt nú er það opinberlega ákveðið hjá Ingveldi að hún er keppnismanneskja með sæmilega sjálfsvirðingu. Nú ég hef nú lengi reynt að neita því að vera keppnismanneskja því mér leiðist heldur að tapa og fást við verkefni sem krefjast úthalds og aga – en slíkt gengur ekki því ég þarf víst að virkja þetta keppnisskap og nota orkuna af því til þess að léttast.

Það er nefnilega ekki nóg fyrir mig að vera líkamsræktartröll og monta mig bara af því. Það er svo sem alveg ásættanlegt að léttast um 14 kg á ári og það allt saman (er samt skítaredding að vera sáttur við það – ég hefði náttúrulega bara átt að vera duglegri! (en það er ekki alltaf hægt að vera í botni og maður verður að taka tillit til þess bla bla bla )).

En sem sagt nú er það útgefið að ég ætla að sýna sjálfsstjórn og aga. Ég hef hann gagnvart ýmsu og nú þarf ég ,,bara“ að hafa slíkt gagnvart sjálfri mér. Allt og sumt.

Í veskinu mínu er súkkulaðistykki frá því á laugardaginn sem ég ætla að borða á eftir. Og á eftir ætla ég að borða það seinna. Og það á að vera í veskinu mínu þann 1. desember. Og þá ætla ég líka að borða það á eftir.

Ég ætla að sýna fádæma reglufestu með mat og nesti. Fita verður minnkuð verulega og sætindi tekin út eins og að framan er sagt.

Og ég er komin með ökklasokk sem er bara býsna gott bragð og hefur reynst mér vel í dag. Held ég sé að skána í fætinum – er þá ekki rétt að skella sér í blak á fimmtudaginn og byrja upp á nýtt. Drepst amk ef ég þarf að hætta í blaki þó ekki væri nema bara ein æfing.

Sem sagt set nú kapp og atorku í það að léttast svo liðirnir mínir fái ekki kast og verkirnir minnki. Ég finn bara hvað ég finn meira til í hælnum þegar ég held á íþróttatöskunni – úff munar sem sagt um hvert kíló ha?

Sérkennileg niðurstaða konu í djúpri afneitun ;-).

Húsið tekið í gegn

Jæja þá hefur konan tekið til í heilan dag og það liggur bara við að það sjáist. Nú á ég ,,bara“ eftir að taka til í föndurherberginu og reyna að koma dótinu mínu í þann farveg að ég geti farið að stússast eitthvað.

það voru gerðar ýmsar róttækar breytingar á heimilinu í dag. Ég tók allar dollur og lok (sem finnast aldrei þegar nota á dollurnar), skrautmuni og drasl og dót sem er að gera Pál vitlausan þegar hann er að taka til greyið.

Því minna af dóti því líklegra er að hægt sé að halda í horfinu. Við skulum sjá hvernig það gengur ;-).

Fór ekki að synda því ég vildi svo mikið taka til og elda – en ég fer í sundleikfimi á morgun og svo ætla ég að reyna að synda alla daga í næstu viku en sleppa Styrk. Gá hvort það hjálpar hælnum eitthvað – sem vel að merkja er með skárra móti í dag þó ég viti meira en vel af honum. En ég held þetta sé allt á réttri leið.

Framundan er námsmatsvika – það er heilmikill handleggur en líka svolítið skemmtilegt. Systrahelgi um næstu helgi þannig að það er eins gott fyrir mig að standa mig í vikunni í þessu námsmati öllu saman.

Jibbití hí

Working girl

Oh það er svo gaman að vinna um helgar. Það er undursamlegt – maður hefur allan skólann fyrir sig og kertin loga í rökkrinu og það er hreinlega eins og manni verði eitthvað úr verki. Ég væri alveg til í að fara aftur á morgun. En það geri ég ef engum öðrum en mér hér á heimilinu finnst að það þurfi að taka til hérna eða þvo. Ef mönnunum mínum tveimur finnst þetta fínt þá er ég bara í minnihluta og hlýt því ;-). Hingað kemur hvort sem er enginn og það má bara vera allt það drasl hér sem fólk vill!

Ég sópa bara svefniherbegið og viðra sængurnar og er bara góð! Ég er hvort sem er of hölt til að vera eitthvað að ibba mig.

Annars er ég miklu skárri en í fyrrakvöld og mun betri en í gær. Verst að teipið er farið – sigh það var nú meira töffið að vera teipuð – híhí. Þetta er allt að koma hjá íþróttakonunni Ingveldi – kannski verða sterarnir bara næst – tíhíhí.

Já og ég gerði stöðvabækurnar og allt í dag – dísuss ég þarf að eiga fleiri svona vinnudaga. Ég verð náttúrlega bara að hálf drepa mig á vinnu til að vera ánægð.

Kannski ég bara dembi mér í það – þá er líka komin fullkomin afsökun fyrir því að vera ekki að hugsa um heimilið – það er einfaldlega of mikið að gera til þess að geta fengist við slíka smámuni ;-).

Tjú tjú og tralalala

Tribbití tí! Ég fór í blak í gær – og við vorum skoho mættar 7 – og það var náttúrulega og að sjálfsögðu alveg svakalega skemmtilegt ;-). ÉG var svona ægilega glöð að vera óhölt í gær – og því lét ég nú til mín taka í blakinu þó ég fyndi nú smá til. Ég synti fyrst 600 metrana í upphitun og þar sem ég var svona óskaplega hress þá hentist ég í af stað og bamm það var eins og hællinn væri rifinn undan mér. Síðan hef ég nú eiginlega ekki getað gengið. Og á köflum alls ekki ;-).

En ég á hauk í horni þar sem Baldur er og voila ég er sko búin að fara í laser og vera teipuð – eins og alvöru íþróttamaður skoho!

Þetta er náttúrulega bara snilld. Ég meina hversu mörg ykkar hafa verið teipuð af sjúkraþjálfara vegna meiðsla!? híhíhí.

Gott fyrir egóið en nú vil ég líka hætta að vera hölt. Spurning um að fara ekki í blak næst og ekki fara á háa hæla heldur – þetta tvennt getur hleypt öllu af stað aftur. Nú svo ætla ég ekki að fara í Styrk í næstu viku heldur taka sundspretti helst á hverjum degi og svo hjóla – það reynir ekki á hælinn minn.

Um helgina ætla ég að vinna – námsmat framundan og ný stöðvabók í burðarliðnum og þetta allt saman 😉 Ef ég get gengið og tala nú ekki um staðið þá tek ég líka til. Og hvíli mig ponsu pons…

Og í dag man ég eftir því hvað ég er heppin að eiga ykkur öll að, þennan makalausa sjúkraþjálfara sem nennir að sinna mér út í eitt, mann og börn, hund en blessunarlega engan kött. Skítt með það þó það gangi ekki allt eins og það eigi að gera.

Nú er bara að fylgja mjóa silkiþræðinum sem liggur þarna innan um hörinn og er oft svo lítt sjáanlegur. Í fullkominni vissu þess að ég er að gera það sem í mínu valdi stendur – svona mestan part, kveð ég að sinni 😉