Just another day in Paradise

jæja þá ganga lægðirnar yfir hver af annarri og sú sem heimsótti okkur í nótt virðist hafa gert mikinn usla. Hún bræddi snjóinn í kringum mig og hellti úr sér hagléljum í nótt þannig að ég var ekki viss um nema rúðurnar myndu brotna þvílíkur var djöfulgangurinn. En þær héldu og ég sofnaði aftur.

Það gengur annars ekki vel með svefninn hjá minni þessa dagana. Það tekur sinn toll svo sannarlega. Verra er að ég er alveg tóm varðandi allt – vakna þreytt, nenni ekki að taka til, nenni ekki að heimsækja fólk, nenni ekki að bera á mig brunkukremið og allt eftir þessu ;-). Dröslast í vinnuna og velti því fyrir mér hvort ég ætti ekki bara að vinna við eitthvað annað en nenni þá ekki að hugsa þá hugsun til enda…

Og ekki léttist ég – en það er allt í lagi því ég er að gera allt sem ég get til þess og það þýðir að ég léttist á endanum.

Byrjaði að taka colon cleanser í dag því Ragnheiður dóttir mín finnur þvílíkan mun af því. Hún á náttúrulega við sitt þarmavandamál að stríða en engu að síður merkileg breyting á henni. Meltingin er miklu hraðari, hún er orkumeiri, hressari og verður ekki eins þreytt – sem sagt allt önnur manneskja. Og það sést meira að segja á henni! Frábært að geta tekið einhverjar heilsutöflur og liðið svona vel.

Ég veit ekki hvað Magnesíum gerir fyrir mig, hef ekki tekið það í viku og veit ekki hvort ég er nokkuð verri – enda situr það kannski í skrokknum. Ætla að klára dolluna. Astazen er andoxunarefni sem ég tek og á að hjálpa til við að losa vöðvana við sýrurnar – ég veit ekki hvort það er rétt en það er frábært fyrir húðina – mæli með því við alla sem eru að eldast ;-).

Omega-3 breytti nú bara lífi mínu varðandi svefninn og nú þegar ég hef ekki tekið það reglulega í svolítinn tíma er svefninn að stríða mér – hvort sem það er vegna omega eður ei. En amk ætla ég að taka góðan skurk í því.

Nú svo er ég byrjuð að taka colon eins og ég nefndi áður, ét gigtartöflur útaf ristunum og svo 1 blóðþrýstingstöflu. Það eru því nokkrar pillurnar sem fara ofan í konuna á morgnana ;-).

Ég næ hreyfingaráformum mínum þessa vikuna þó ég hafi ekki farið neitt í sundleifkimi. -Ah en ég fór í Styrk í staðinn í tvígang….

Ég man nú ekki afhverju ég fór ekki á miðvikudaginn – ah jú það var vegna þess að ég þurfti að fara í grímubúninginn sem má sjá hér með. Leiðinlegt að klæða sig svoleiðis upp í þrengslunum í Sundlauginni.

Á föstudaginn fór ég hvorki í Styrk eða sundleikfimi því mín var svo uppgefin eftir heimferðina á fimmtudagskvöldið – en hún tók nú ekki nema 2 tíma því ég komst ekki yfir skafl við gatnamótin Biskupstungnabraut – Suðurlandsvegur. Bæði vegagerðin og björgunarsveit þurfti til að koma mér heim ;-). Vegagerðin ruddi – ég varð rafmagnslaus því ég var næstum bensínlaus – reiknaði ekki með tveggja tímaferðalagi heim um morguninn þegar ég nennti ekki að taka bensín – lesson to be learned. Maður veit aldrei hvað maður verður lengi á leiðinni heim.

En þetta var nú bara skemmtilegt ferðalag. Ævintýri fyrst allt fór vel.

En í dag ætla ég að borða á þriggja tíma fresti – ekki oftar og svo ætla ég ekki að borða neitt nema grænemti eftir 8 í kvöld. Og vinna við vefsíðurnar.

Prófagerð og námsmat á morgun. Kannski dröslast ég til að gera eitthvað.

Hverju viljið þið veðja

…um að karlmaður verði ráðinn sem aðstoðarskólastjóri Sunnulækjar? Það kemur í ljós.

Held við búum í karlasamfélagi satt að segja. Hef ýmislegt til míns máls í því.

Át sælgæti í gær – át sælgæti í dag.

Eldaði hollan mat. Borðaði 600 gr af grænmeti og ekkert brauð.

Fór í styrk í morgunsárið og klæddi mig upp sem galdranorn eftir að hafa hjólað í ´25 mínútur. Fór því ekki í sundleikfimi því ég treysti mér ekki til að fara í grímubúninginn í þrengslunum þar – og hefði bara líka ekki haft tíma til þess held ég bara svei mér þá.

Mistekst sem sagt margt varðandi mataræði og vænti þess ekki að vera léttari á föstudaginn. Ætla að taka smá rispu í vigtun nú á næstu vikum og sjá hvort það styðji mig.

Það er ekkert sem segir að ég VERÐI að léttast strax á eftir eða áðan en ég vissulega þarf þess og hlýt að stefna að því annars væri þetta allt til heldur minna en ég vonast til.

Fór á oa fund í dag. Afskaplega merkilegt verð ég að segja.

Ætla aftur.

Er með höfuðverk dauðans enn á ný og held við og við að ég sé að drepast. Hef skilað mínu og get farið sátt og um leið og ég hugsa það þá bráir af mér dauðastríðið ;-).

Meiri hörmungin að vera haldin hörmungarhyggju.

Ykkar hörmung Inga

Ég bara verð að segja það

….að þetta á frekar vel við í augnablikinu – stjörnuspáin mín í dag. En líklega á þetta við um ykkur fleiri. Þetta er algjört afbragð:

Are you getting hit on the head by obstacles, Inga? Could it be that you simply need to allot yourself more time to complete the Herculean tasks you take on? This may be difficult for you to tolerate. You don’t know how to deal with times such as these, when you must continue doing the same thing over and over again until you get results. There is a lesson here for you, Inga. Remember: Patience is a virtue.

Upp og niður upp og niður

Þannig hefur mér liðið í dag – og svolítið við og við undanfarið.

Í fyrsta lagi sé ég nú eiginlea ekki neitt. Ég verð að fara að fá mér ný gleraugu – svona allavega. Þar sem ég sé nær og fjær ;-). Ég er með svo mikinn höfuðverk við og við og honum fylgir svona rugla – segi gult þegar ég meina svart og kalla fólk hinum og þessum nöfnum – verra en vant er jafnvel. Byrja í miðjum sögum og allt eftir þessu.

Svo er ég bara svo ljómandi hress inn á milli – meira út af kaffidrykkju kannski en einhverju öðru kannski….

En sem sagt – fer til læknis að láta mæla blóðþrýstinginn. Spyr Baldur um spennuna í hálsi og herðum – og kemst að niðurstöðunni. Fæ mér svo nýju gleraugun í fríhöfninni á leiðinni út ;-).

Nú jæja…

Já og svo vakna ég alltaf þreytt og ég er svona um klukkustund að koma mér fram úr ef ekki er sundleikfimi en þá er ég hálftíma að skreiðast framúr og það get ég sagt ykkur kæru lesendur að er EKKI líkt hinni morgunhressu og björtu Ingveldi. Oh nei!

Ömurlegt að vakna þreytt. Ömurlegt.

Og ég á eftir að finna grímubúning fyrir morgundaginn

Það sem ég hef lært

Það þýðir ekki að fríka út þó vigtin sé ekki að manns skapi

Það er hægara sagt en gert að léttast

Það er hægara sagt en gert að stunda líkamsrækt og vera 140 kg

Það er mikilvægt að léttast – líkamans vegna

Það munar um hvert kíló sem maður þarf að bera – prófið bara að bera 4 kg af hveit. Svo ekki sé nú talað um 30!

Maður verður að hvíla sig og leyfa líkamanum að jafna sig eftir mikla áreynslu og það er eðlilegt að hann þurfi þess!

Astazan er rosalega og þá meina ég rosalega gott fyrir húðina

Omega-3 er snilld og breytti lífi mínu til hins betra varðandi íhygli svefn og ró

Ecco skór eru æði

Asics skór Nimbus eru mín skótypa

Það er ekki endilega svo kalt þó það sé -17 stig – í logni.

Ég elska snjó og vetrarveður, minnir mig á Þingvelli hér í den!

Brauðbakstur getur mistekist!

…ja þetta er svona eitthvað af því híhí

Hausverkur dauðans

…það er líklega hægt að sofa endalaust. Ég hef komist að því í dag. Hef sofið nánast sleitulaust í dag – fór í búð og hafði það upp úr krafsinu að ég er alveg í messi.

Og ég var að frétta að sundlaugin er lokuð alla helgina – og á morgun. Og verður kannski ekki opin á mánudag.

Úffitipúff – á eftir 2000 kaloríur svo ég nái því sem polli vill. Hjól á morgun skilar mér 1000. Þarf að hugsa eitthvað rosa sniðugt til að losa mig við hinar 1000.

Vigtun á morgun. Gleymdi að kaupa mér laxerolíu 😉 en mundi eftir naglaklippum sem er afar mikið fagnaðarefni.

Spinning og heima

Enginn skóli í dag vegna ófærðar. Ég sit hér fyrir framan tölvuna og hugsa um námsmat og sitthvað fleira gáfulegt. Já og náttúrulega spinning svoldið líka 😉

Þetta sagði Baldur um spinningpúlsinn minn:

Þinn hámarkspúls er líklega ekki nema ca 160-70. Þá ertu líklega að fara of hátt upp í upphitun. Ættir að vera í kringum 100. Ef seinna settið á að vera erfiðara þá skaltu stefna í svona 130-140 í fyrra setti og svo 140-150 í seinna setti til að byrja með.

Ég veit nú ekkert hvort það er gott eða slæmt að vera með svo lágan hámarkspúls – held samt að það sé þetta þarna með að ég sé stór kona og því með stórt hjarta og það dæli því hægar en meira í hvert sinn. Hljómar sennilega.

Nú ég fór sem sagt í spinning í gær og var svona að skoða sviðið og spreyta mig um leið. Spinning reynir á mig að tvennu leyti – annars vegar því augljósa – þolið. Hitt er svo alls konar aumingjaskapur, illt í herðum og hálsi, úlnliðum, kálfum svo ekki sé minnst á ristarnar sem alveg klikkast hef ég gleymi að taka gigtarlyfið þann daginn (eins og í gær). Ég ætlaði því í gær að fara svoldið gáfulega í gegnum settin og sjá hvort ég næði að mynad mér einhverja skoðun á því hvernig væri best að fara í gegnum þetta – með púlsleiðbeiningarnar í huga.

Mér gekk vel að hita upp og vera bara í kringum 100 fyrstu lögin tvö og var komin í 120 undir lok þeirra – í fyrra settinu var ég gjarnan í kringum 130 og svo fór ég 140 undir lokin og stundum aðeins meira. Í miðsettinu var ég bara svipað nema þá fór ég ekki mikið undir 140 nema svona í upphafi laga. Nú í lokasettinu náði ég mér ekki á flug enda orðið meira en í meðallagi pirruð á naríunum sem voru á mjög vitlausum stað og vinstri ristin alveg að drepa mig en engu að síður tókst mér nú að geysast af stað og var í kringum 160 í nokkrar mínútur.

Meðalpúls með upphitun og teygjum var 125 sem ég held að sé gott í 80 mínútna lotu. Góðu féttirnar eru þær að ég svitnaði alveg ótrúlega þannig að þetta er að skila mér ágætu – en ég á alltaf í ákveðnum vandræðum með að svitna. En í gær láku nokkrir svitadropar niður ennið ;-). Þannig að ég er ánægð með tímann og sé að ég hef verið á nokkuð góðu róli miðað við leiðbeiningarnar. Það er mikið atriði að sprengja sig ekki og ná út úr þessu. Eg er mest hissa á því hvað þetta reynir á – hjólin eru ekki eins og þessu gömlu góðu, og ég er aum á ótrúlegustu stöðum – t.d. vinstri olnboga… já og svo er hnéð ekki alveg ánægt heldur.

En allt er þetta á réttri leið – ég er að létta mig, ég er að hreyfa mig helling og með góðu átaki í mataræðinu þá gengur þetta fínt.

Og nú fer bara að koma tími á að skiluleggja apríl partíiið 😉

Kveðjur frá Ingu sem ætlar að vinna í námsmati og taka til í húsinu sínu í dag.

Ps: Í dag er síðasta blakæfingin sem ég missi af – ef það verður þá blak vegna færðar – jah verður ekki allt gengið niður seinni partinn og allt mokað.

Ekki neitt

…og minna en það jafnvel. Svona ef hvunndagurinn er einskis virði að minnsta kosti sem er náttúrulega alls ekki svo því hann er það besta við þetta allt saman.

Ég breyti því titlinum í ALLT og EITTHVAÐ tíhíhí

En sem sagt hér er allt með venjubundnum hætti – ég slysast til að undirbúa kennsluna mína og mæti hana.

Hreyfingin lítur svona út:

Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl 6:45 sundleikfimi auk 300 metra í viðbót af sundi til að komast í 550 kalóríur ;-). Rétt næ í vinnuna á réttum tíma maður minn úff púff mikið að gera í því að vera morgunsunddrottning ;-).

Þriðjudaga síðustu tvo hef ég farið og hjólað í 60 mín og brennt við það 1000 kaloríum.

Miðvikudaga fer ég í spinning oh yeah og er búin að fá nákvæmar leiðbeiningar um það hvernig púlsinn skuli vera – þarf umtalsvert að hægja á mér og hemja mig þar – fer svolítið geyst af stað svo ekki sé meira sagt.

Svo er ég löt…

Á fimmtudögum hef ég ekki gert neitt. Hvílt mig eftir spinning og ekki veitt af skal ég segja þér! Þar kemur blakið inn þannig að líklega þarf ég að færa spinning á mánudag og hvíla á þriðjudegi. Get það áreiðanlega ;-).

Á föstudögum er hjólað í 60 mínútur.

Á laugardag og sunnudag hef ég bara ekki gert neitt síðustu vikurnar en engu að síður hefur Polli nú gefið mér bikar og ég náð hreyfimarkmiðum hans. En einn sundsprettur væri vel þeginn annan hvorn daginn – eða báða – en það er nú ekkert búið að vera venjulega leiðinlegt og kenjótt veðrið. En sem sagt allt í þessu fína í hreyfingunni – vantar kannski eins og 30 – 40 mínútur af sprikli inn í þetta – en ég bæti það svolítið upp með sundinu eftir leikfimina.

Nú…

Mataræði gengur vel. Enn eru skammtarnir of stórir og enn er ég að láta ofan í mig við og við eitthvað sem ég ætti frekar að sleppa. en ekkert af því er sælgæti eða slíkt svo þetta sleppur nú til. Og gott ef ég er ekki að fara í Bónus núna á eftir – ÞÓ ÉG NENNI ÞVÍ ALLS EKKI!

Dásemd finnst mér þessi snjór og mikið hef ég saknað hans öll þessi ár sem við höfum verið snjólaus – I love it.

Bestu kveðjur frá Ingu heiðskíru

Aum nagla-bönd?

Ah vitið þið hvað er svo óþægilegt? Þegar nöglin á puttanum einhvern veginn fer að rekast í hliðarnar á honum. Oh það er svo sárt! Svona aumingjalegur verkur – sem ekkert er en pirrandi samt. Ég er með svollis.

Ég hugsa svolítið um hana Siggu sem er ein af samferðarkonum mínum og dó fertug frá fjórum börnum og manni. Og nóg hafði gengið á áður en hún dó. Krabbinn uppgötvaðist þegar hún var komin 24 vikur á leið og síðan eru liðin tvö ár.Barnið tekið og þar gekk nú ýmislegt á, og við tók tveggja ára stríð sem tapast en vinnst samt einhvern veginn um leið því hún var svo mikil hetja og þau öll. Lífið heldur sinn vanagang. En mikið er sá vanagangur margbreytilegur.

Sigga bloggaði og ég vissi ekki af því og mér finnst það svo leiðinlegt því ég hefði svo gjarnan viljað senda henni kveðjur mínar og svo bara verður ein bloggfærslan sú síðasta. Ji minn eini.

www.123.is/lindarbaer

En af mér og mínu stússi er það að frétta að það er vel hægt að eyða deginum á facebook.com endilega komið þar inn og verið með í vitleysunni ;-). Gaman gaman bara. Og algjörlega fullt hægt að gera þar af einskisnýtum hlutum. If you have the time þá er vel hægt að eyða honum þar oh já.

Ég á meira að segja orðið norskt gæludýr sem heitir erlend.

Mér gengur illa að vinna og vera markviss. Hvað ætla ég t.d. að gera í skólanum á morgun? Það veit ég ekki alveg.

En ég er alveg að fara í það að búa til matseðla fyrir næstu viku og þá verður nú gaman og skynsamlegt að vera til í Heimahaganum híhíhí.

Innkaupaferð verður farin á …. hummmm svoldið mikið að gera. Þetta er nú bara svolítið púsl ég verð að segja það!

Þarf að hugsa þetta. Held ég sé að léttast – vigtun á föstudaginn. Það verður nú svei mér spennandi.

Ykkar Inga Facebook pæja

Hvunndagurinn er sossum ágætur

Mig vantar lím – get því ekki scrappað. Held mig hafi aldrei á ævinni vantað límstifti… En svona getur þetta verið og ekki nenni ég út að kaupa eitt lífmstifti. Onei.

Allt í dótaríi – ekkki kannski drasli en svona dóterí sem á eftir að ganga frá – já og eldamennskudrasl í eldhúsinu. Og ekki nenni ég að taka til. Onei!

Brennslumarkmið hafa gengið fínt þessa vikuna. Ég hreyfði mig ekki á fimmtudaginn. Og ekki hreyfði ég mig í dag. Og ekki er ég viss um að ég nenni því á morgun. Engu að síður nást markmið Polla og mér finnst næstum ég eigi það skilið að eiga tvo daga með engri hreyfingu – en ég er ekki viss um að Balli myndi samþykkja það … og þá ekki þrjá…….!!!!

Ah enda fer ég og syndi smá á morgun det er klart.

Ég er sem sagt með latasta móti. Andlaus svolítið – en enn upprifin vegna þess hve gaman vær á námsskeiðinu. Juuuu það var svo skemmtilegt ;-).

Hressar konur og Bjarni hress líka ;-).

Komið svar frá USA – þar vill fólk fá okkur heimsókn – allur munur það :-).

Er mjög hundfúl yfir þessu í Borginni og mér finnst eiginlega allt mjög heimskulegt. Hrmpf…

Og ég er algjörlega búin að fá nóg af Villa.