Góðan og blessaðan daginn

Ég er hætt í sundleikfimi í bili – svona fram á haust. Ekki orð um það meira.

En fyrir vikið er ég komin í vinnuna fyrir átta og næ að átta mig á hlutunum í ró og næði – setja mig inn í daginn og vera tilbúinn þegar krakkarnir ganga til stofu. ALLT ANNAÐ LÍF!

Planið er að fara í Styrk og hjóla og/eða labba með Bjart upp í skóla og þá getur maður jafnvel verið fyrr á ferðinni – farið um sex til dæmis. – Morgunmatur klukkan 7 og lögð af stað um hálf átta og þá nær maður þessari yndislegu stund í stofunni áður en dagurinn byrjar.

Og svo er alltaf sundið og það er ekki amaleg iðja á vordögum. Jumm það er að koma vor og mikið er ég fegin glöð og sæl.

En þangað til veðrið og vindar blása mér frekari morgunhreyfingu í brjóst ætla ég að hvíla mig og hreyfa mig meira seinni partinn. Það þýðir ekki að láta deigan síga.

Ég fór á oa fund á miðvikudaginn og er að stilla hlutunum upp í kollinum á mér. Mér hugnast pro-active skrefin vel sem ég fann á netinu og þau eru sannarlega mannrækt. Ég á eftir að staðsetja mig í þessari fíknarpælingu – á hversu mikinn bömmer þarf maður að fara ef maður borðar 2 prinspólu sitt hvorn daginn og 18 súkkulaðirúsinur seinni part þess annars?

Kannski er ég kolfallin og ætti að vera á miklu meiri bömmer… og veit bara ekki af því.

Það er hins vegar klárt að ég léttist síður, minna og ekki neitt – ef ég ét sælgæti en svona heilt yfir þá kannski ruglaði þetta ekki kaloríufjölda dagsins umtalsvert. Hin leiðin væri að fara og hjóla af sér stykkið tvöfalt. Það er ráð sem ég hef oft notað.

En amk vil ég geta sleppt mér því að fá mér rúsínurnar ef ég í raun og sanni vil ekki fá mér þær og þarf að vera að hugsa um þær í 4 daga eftir að ég át þær – þá eru þær sannarlega vandamál – sem ég gæti vel verið án.

Ég er að velta fyrir mér ýmsu og kannski fæ ég niðurstöðu í það meira að segja einhvern tímann ;-).

Ég fór í Blak í gær og við vorum 8 – vantar enn þessar fjórar alltaf hreint – það gengur seint að smala þeim. nöfnin eru til staðar en mætingin svona minni en skemmtunin – holy moly þetta er óborganlega skemmtilegt.

Til að líkamlegt atgervi mitt sé nú fært til bókar er ég bara góð – fín í hálsi og herðum að mestu enda hef ég farið einu sinni í viku í nudd – á herðar og kálfa. Ég er viss um að kálfanuddið skilar mér miklu. Ristarnar eru ágætar og celebra virðist ná að halda þeim niður – ég ætla að taka það í nokkurn tíma enn – og sjá svo hvað gerist – best væri náttúrulega að vera laus við það. Hægri hællinn á mér er alveg drep og verkurinn flakkar um – einu sinni var hann bara undir hælnum rétt við ilina en nú er hann aftan í honum undir og til hliðar – mismikið á hverjum stað á stundum en oftar bara alveg jafn vont alls staðar ;-). Draghölt. Ökklinn sömumeginn er að hrekkja mig í álagi og nú ætla ég að fara að ganga í teygjusokk – vafði á mér ökklann í blakinu í gær og það kom mjög vel út – líka fyrir ristina sem er aumari þeim megin.

Það er gott að skrifa þetta niður svo maður hafi heildarmyndina – afhverju er ég slæm og afhverju ætli ég sé ekki verri en ég er.

Over and out – farin að lesa um kennslufyrirkomulag í landafræðikennslu.

Ykkar Inga sem vantar 4 fastar og einarðar í blakliðið sitt.

Ræktið vini ykkar

Er langt síðan þú hefur farið og hitt vin þinn eða vinu? Finnst þér eins og þú ættir að hitta þá oftar.

Við því er einfalt ráð. Hættu í vinnunni á réttum tíma, sestu upp í bílinn, segðu maka þínum að þú verðir ekki í kvöldmat og boðaðu komu þína til hlutaðeigandi.

Eigðu svo frábæra kvöldstund með manneskjunni sem hefur gefið þér svo mikið og margt. Og þú finnur hve mikls virði þú ert henni.

Og þá verður dagurinn svo ljómandi yndislegur – þó þú hafir bara borðað 400 grömm af grænmeti 😉

Sem sagt – ræktaðu vináttuna.

Bloggfíkill ;-)

ég held ég sé svoleiðis.

Ég held nú bara áfram að bæta á mig ýmsum grömmum…. Síst að léttast. En nú er ég sem sagt að borða 600 gr á grænmeti á dag og drekka 2 lítra af vatni. Við skulum ekki fyllast örvæntingu fyrr ;-). Svoldið leiðinlegt að vera að gera allt sem ég get til að léttast og léttast ekki neitt…

En það sem sagt kemur að því.

Ég meina maður getur ekki staðið endalaust í stað?

Undur og stórmerki að gerast í eldamennskunni. Mín bara eldaði fisk eftir uppskrift í kvöld – oh yeah – og ægilega merkilegan rétt á laugardagskvöld.

Ég er sko pæja í innkaupum og eldamennsku.

Og nú er ég á beinu brautinni hvað sem þessi vigt segir.

Ég og Baldur eigum afmæli

Eða ég á afmæli. Tvö ár síðan ég hitti Baldur fyrst.

Það var óneitanlega stór dagur í mínu lífi.

Skrítið en ég bloggaði ekkert um þennan dag í fyrra – ég held ég hafi lagt meiri áherslu á líkamsræktarafmælið í apríl

…sem nú fer að styttast í. Þeir muna sem mættu að þeir eiga að mæta aftur. Það verður ógó skemmtilegt þó léttingurinn sé nú ekki sérlega mikill.

En góð tíðindi:

Síðan ég hef sáralítið lést síðan í okbóber en það eru 17 sm farnir af mér engu að síður.

Það er til 17 cm í ummáli minna til af mér en áður.

Flott ekki satt?

Vigtin segir sannanlega ekki allt.

og ekki léttist konan

Önnur en ég var eða?span>

…en það er nú ekki eins og himnarnir sjö hrynji við það þó ég sé í sömu þyngdinni- en þangað upp klifraði ég eftir blakið í gær jafn fótafúin og ég þó var 😉 Það er svo gaman í blaki.

Nú jæja en sem sagt – áform um 600 gr af grænmeti á dag stóðust EKKI í síðustu viku svo það er þá að þau standist í þessari. – Sem þau gera.

Ég er bara á góðu róli – er 7 cm minni yfir brjóstin en ég var í október og sentimetri rúmlega farinn af öllum öðrum mælistöðum – hendurnar hafa misst eina fjóra fimm held hvor svo þetta er allt á réttri leið.

Með yfirvegun og vilja, athygli og meðvitund vík ég af braut ofátsins og hverf á slóð skipulags og reglufestu í því – sem vel að merkja ræður oftast ríkjum.

Og ég verð að hætta að vera svona þreytt… Veit bara ekki alveg hvernig…

Fyrr að sofa kannski híhíhí það væri þó ekki að það skipti máli.

Nú jæja

Námsmatið búið og húrra fyrir því. Þá er bara að semja leikrit og æfa fyrir árshátíðina…

Hlýt að komast léttilega frá því.

sigh eitt tekur við af öðru. Og ég þarf að vera búin að missa 4 kíló eftir mánuð.

Guð gefi mér styrk til þess að amk missa 500 gr…

Og þar hafið þið það – Guð kominn til sögunnar líka.

Ja hérna hér!

Bráðurm tveggja ára afmæli!

Yeah. Skrattinn hitti ömmu sína 17. febrúar 2006. Híhí

Ég fór á oa fund í gær og hef verið að lesa skrefin 12 – fann bækiling sem er gerður fyrir fólk sem er ekki með fíkn heldur langar að stunda mannrækt og breyta lífi sínu óháð ofneyslu. Mjög merkilegur – hér má finna hann.

Ég held ég sé á skrefi 3. Tvö ár og þar er ég stödd. Sem sagt langt ferli svoldið ;-).

Mjög skemmtilegt og áhugaverð studía í kringum þetta.

Ætla aftur.

Nú jæja. Er miklu skárri af ímyndunarveikinni ;-). Bara góð satt að segja. Blak í dag og bara gott að frétta. Áfram veginn bara.

Svo sjáum við bara til hvernig lappirnar verða í blakinu.

Ég held ég sé veik

…amk eru lungun að ibba sig og rósaroðinn kominn í kinnarnar en sýking einhvers staðar í líkamanum sést alltaf í kinnunum mínum fyrst af öllu. Það að finna til í lungunum á ný rifjar upp tilfinninguna frá því í vor og sumar og haust. Úff þetta var nú meira haustið ;-). Já eiginlega var allt síðasta ár frá enduðum mars tómt vesen. En þetta er allt að koma.

Ég var að borða 50 gr af snakki – hef þar með´borðað 100 gr síðasta sólarhringinn af því – það eru 512 hitaeiningar.

Ég svaf ekkert í nótt og fór því ekki í sundleikfimina. Er með ógeðslegan móral yfir því en ég hefði reyndar verið heima í allan dag ef ekki hefði verið námsmatsvinna sem ég bara varð að skila af mér í dag.

Æ æ aumingja Inga, væl væl og vork vork.

En ég er bara góð samt. Fúl með þetta snakka og fúl með enga hreyfingu í dag (átti frí í gær) en ég bæti mér þetta upp um helgina. Fer í blak á morgun og kýli svo á þetta á föstudag og laugardag. Mig vantar 3500 kal – 550 á föstudagsmorgun – 1700 á morgun, 1000 amk á föstudag í hjóli og svo eitthvað á laugardag eða sunnudag svo þetta verður í lagi.

og ég fæ mér fisk og grænmeti í dag og versla í matinn einhven tímann… þá verður til grænmeti og ávextir sem er eiginlega alveg forsenda þess að mataræðið mitt sé í lagi. Já líklega hvers sem er.

Oh yeah oh yeah oh yeah

Ég er duglegasta kona á Íslandi. Ekkert minna!

Ég hef sko staðið mig vel í mataræðinu og allt! Nú en ….

Ég fékk mér sko fimm nammimola í dag – allt Hilmari að kenna því hann var að koma að utana…

Nú þar sem ég gleypti þann fimmta í geðvonsku minni og pirringi yfir ÖLLU mögulegu (mjög geðvond í dag nefnilega….) – ákvað ég að nú yrði ég að fara í spinning í kvöld sem refsingu (finnst nefnilega svolítið erfitt í spinning og var búin að telja mér trú um að blakið myndi kvitta út spinningið sko… Já en sem sagt – þessar hitaeiningar sem ég át svona kannski eins og 300… skyldu vera hjólaðar í burtu.

Nú ég var alltof sein með allt mögulegt og hentist hér út rúmlega sjö (spinningið byrjar sko 19:15) með fiskinni í hálsinum og grænmetið í tönnunum galvösk að taka út refsinguna.

…en viti menn ekkert spinning!

Nú ég barasta fór í salinn og hjólaði mig vitlausa – hamaðist á stigvélinni og brenndi 2000 hitaeiningum eða svo!!!!! Ohyeah – og það eftir dag eins og ég hef átt og allt! Nennti ekki einu sinni in the first place híhí

Þannig að elskurnar – þið eruð að lesa blogg duglegustu konu á Íslandi og það þó ég sé ekki að drepast úr neinu nema þá besta falli spiki – og ég er næstum viss að ég drepst ekki úr því – því ég er búin að þjálfa mitt fína hjarta þvílíkt vel að tralalalala það væri bara einskær óheppni ef ég dræpist úr hjartasjúkdómum…. Og óheppni ræður maður nú ekkert við.

Bestu kveðjur til ykkar allra – hinna dugnaðarforkanna.

Ykkar Inga pinga pikkaló