Að fótum fram

…eða alls ekki!

Fór á mega æfingu í dag og stóð mig frábærlega í blaðburðinum – ég er ótrúlega miklu betri í fótunum og vonast til að það haldist.

Fór í sjúkraþjálfun í dag – það var mjög gott! Eða ógeðslega vont eftir því hvernig á það er litið – annars er ég bara góð – líka í öxlinni þannig lagað.

En ég verð að skrifa matardagbÓk og reikna út stig. Og þá lagast mataræðið – því ég er ekki að léttast og mun ekki léttast nema ég geri ALLT rétt – það er ekki nóg að gera bara svona svoldið oftast og nánast klárlega flott fínt rétt. Neibb það er bara allt eða ekkert greinilega.

Jamm ég ætti að fara að tala meira um mat en ekki hreyfingu.

Og ég verð að léttast og vera léttari eftir viku og INGA MUNDU LOK MAÍ Á REYKJALUNDI

Brakandi góð

eða blakandi góðir fætur! Ég er ótrúlega miklu betri í fótunum en ég hef verið í marga mánuði! Bara einfaldir verkir og vandalítið að hreyfa mig frá a til b ef ekki væru bara einhver svona einhver kíló að þvælast fyrir 🙂 Ég meiddi mig aftur í öxlinni í blakinu en ég hætti áður en ég fór í hundana eins og síðasta fimmtudag. Jafna mig -er samt fegin að það er sjúkraþjálfun á morgun – er svona heldur að stífna í herðum og hálsi eftir að hafa ekki farið í 3 vikur.

En sem sagt afar gleðilegar fréttir af fótunum mínum og það er dásamlegt að geta fært annan fótinn fram fyrir hinn án þess að vera að drepast í hverju skrefi og hverri lendingu, hverri viðspyrnu hverjum andardrætti ef svo má segja.

Nú er mér bara svona einfaldlega illt í fótunum! Á skalanum 1 – 10 þá er mér ekki ill nema 4,5 held ég bara – var í 8,5 svona stundum fyrr í vetur og síðustu árin – allt frá hælsporanum bara.

Nú er bara að hafa mataræðið í lagi.

mér gengur ekkert í innkaupum og skipulagi á því hér heima en þetta er að koma. Vona ég!

Kannski ….

Híhí – en ég er sem sagt fær um að hreyfa mig í átt að boltunum í blakinu – næ honum sjaldnast – en samt í áttina er gott 😉 og ég get synt eftir æfingu! Ég man líka þegar ég horfði dreymandi á konur sem gátu skellt sér í laugina að synda eftir æfingu í blaki – nú get ég það sko léttilega :-).

Sjúkket mánudagur búinn

Ég þarf að léttast mjög mikið fyrir vigtun í fyrramálið… Svona eins og um 2 kg og til vara 2 kg fyrir föstudag ;-).

Ég fór að lyfta í dag og ég fór á ógeðstækið í 20 mínútur – og fann bara svoldið til í hælnum en var annars góð og gat þetta bara ágætlega en það sem er náttúrulega gaman að er að ég skuli bara almennt geta þetta – það gekk nú ekki svo vel fyrir þremur árum eða svo 😉 enda ekki kallað ógeðstæki út af engu.

Nú svo fór ég og lyfti – æfingar fyrir efri hluta líkamans – mjög skemmtilegt. Finnst ég alltaf ótrúleg pæja þegar ég er búin að lyfta. Enda er ég náttúrulega ótrúleg pæja.

Á morgun er það kennsla til 12 og svo er það dásemdar vinna til 16 og þá er það badminton sem er nú svei mér skemmtilegt!

Ég er sæmileg í fótunum bara og gat farið firna hratt í blaðburðinum í morgun og ég finn ákveðinn mun þó ristar verkir, hælseymsli og ákveðin vandræði með hnén hrjái mig þá er það EKKERT miðað við það sem ég á stundum að venjast – því neita ég að eitthvað helv… vesen verði á mér og mínum kroppi á næstu blakæfingu!

Tölvan mín er í viðgerð sem vonandi tekur ekki langan tíma því allt mitt vit varðandi skólann er þar inni – námið það er að segja…

En þetta lítur kannski ekki svo mjög illa út – daglega lífið ef ég næ að vera jafn einbeittað vinna en ekki tala – verst að ég missi af tímanum eftir hádegi á miðvikudaginn.

Úff hvursu latur getur maður verið?

mjög sem sagt. Ég held ég hljóti að vera lasin eða eitthvað.

Amk er ég alveg örmagna – eða bara löt…

Ég er nú samt búin að gera ýmislegt en samt eitthvað alltaf bara á hálfu gasi – og svo er kannski bara eðlilegt að vera þreytt – en verra þykir mér að nenna ekki alveg í vinnuna á morgun – I kid you not það er mikið að kenna frá hálf níu til hálf fjögur…

Ég þarf að finna einhverjar þjóðsögur… fyrir árshátíðina.

Ekki nógu einbeitt

Þarf að rifja upp þetta með að borða ekki nammi – ekki heldur í veislum

Aldrei!

Jamm! Er ótrúlega þreytt og eitthvað lerkuð. Er sko að jafna mig á íþróttameiðslunum en er annars bara aum og þreytt – fór samt með moggann seinni partann en ekki í morgun.

Ég er samt ótrúlega þrekmeiri en ég var – sem sagt – þetta fer að verða voða mikill munur!

Tala nú ekki um þegar ég verð búin að hvíla mig svoldið!

öxlin í messi

Það ætlar nú ekki að ganga vel hjá Ingveldi að halda sér í lagi. Ég verð að væla svolítið og svo er ég hætt því í bili – en ég þrífst á væli en svo stend ég nú vanalega upp aftur svona ef skrokkurinn leyfir 😉

Síðast þegar ég fór í blak þá gáfu ristarnar sig.

Nú svo er ég nú búin að synda þessa vikuna og halda út í badminton og hvíla í gær – allt eftir kerfinu og voða fínt! Öll að lagast í löppunum jafnvel og bara farin að finna þennan fræga mun!

Þá meiði ég mig í öxlinni í blaki í dag og er gjörsamlega að drepast.
Hnén eru eins og þau hafi verið lamin með baseball kylfu – svo aum og vitlaus eitthvað.

Já og ekki má gleyma bakinu – það er svona skemmtilegt og til vandræða – ekki búin að vera það í 3 ár!

Það er svo frábært að geta fundið til á nýjum og nýjum stað nú þegar hællinn er að lagast – ristarnar hanga ef ég er í réttum skóm, já og svona almennt bara góð…

Nei þá bætast nýir staðir við. Ég er alveg ægilega leið því ég finn virkilega mun á mér allri við að léttast um þau 9 kíló sem eru farin síðan um áramót – var bara að vona að nú myndi þetta lagast. Nú væri ég að komast á beinu brautina og ekki margs nýs að vænta í því að finna til….

Þetta er náttúrulega allt alveg ótrúlega lítið merkilegt – en dugir mér fínt til að vera hundfúl yfir þessu!

100 pönnsur á morgun fyrir erfi og partý hjá Sls – ég kemst áreiðanlega í gegnum þetta…

Ostur er veislukostur

Og hann át ég með skilum í dag en á móti þá fékk ég mér enga köku sem var í boði – hvað hálfur mexíkóostur – iss piss :-).

Annars er ég góð – mataræði í lagi, hreyfing í meira en í lagi og svefn fínn. Næ engan veginn að gera allt sem ég þarf að gera í vinnunni en reyni og reyni og reyni.

Held áfram að reyna og sætta mig svo við að meira fái ég ekki aðgert.

Er annars nokkuð fers í kennslunni og veit nokkuð hvað ég þarf að gera. Ég þarf t.d. að læra dönsku tölustafina heima svona til þess að líta betur út í kennslunni :-).

Svo er bara ekki langt í helgi og þá er ROSA partý!