Mánudagur

Ég held til móts við þig með nýtt pólitískt landslag í farteskinu. Ákefð og vonir – tilhlökkun og eftirvæntingu -ég hreyfi mig í 90 mín á morgun og næstu daga – verið viss – og vorða upp á punkt og prik 32 stig í mesta lagi og verð búin að missa 1 kg á föstudaginn.

Jamm þannig verður það nú.

Það er það sem maður gerir við konur eins og mig!

Nú jæja


…ekki gengur lengur að hamra hausnum við grjótið…

Ég hef bætt á mig allnokkrum kílóum – gerðist á einni helgi og ekki hefur mér tekist að losa mig við þau. Ég held að nú sé nóg að gert í því að vorkenna sér þennan verkinn eða hinn og nú skal haldið á kílóaafveiðar.

Svoldið strembið næstu 4 dagana en þá skal haldið sjó og svo skal þeim kastar frá borði frá og með mánudeginum – smágrammadráp ef ekki vill betur – saman verða grömmin að kílóum. ÉG nenni heldur ekki að vorkenna mér lengur – nú hlýtur upprisan að vera handan við hornið…

Ég er frábær í fótunum og ég ætla að nýta mér það. Nú er sundtíminn að renna upp, hjólreiðar (fékk ótrúlega góa spelku eða hvað þetta heitir um úlnliðinn sem varnar því að ég finni mikið til þegar ég hjóla) verða stundaðar alveg galið.

Gaman að því. 90 mínútur á dag er forsenda þess að ég léttist og amk 500 grömm af grænmeti sömuleiðis. Engir galdrar – bara vinna.

Enn tannverkur

Skandall náttúrulega en lítið við því að gera en að éta pencilín og fara svo til tannlæknis…
Auk þess að vera með tannpínu er ég með magakveisu og ógleði. Afar góð blanda því hvort um sig er ægilegustu örlög sem mér geta verið úthlutuð þó jafnan standi þetta ekki lengi – en nú eru komnir 5 dagar af tannverknum og það er bara nóg. Ég er samt skárri í maganum en í morgun. Fór með blöðin á hjóli en svo gat ég ekki meira og hef verið á rúminu/wc-inu síðan.

Jæja já…

Kíló – ræðum þau síðar ég er sko að reyna að verða ekki geðveik heldur taka á þessu. Taka á þessu taka á þessu taka á þessu taka á þessu

jamm geri það

vá 1002 og tveir póstar

meiri kjaftakerlingin hún Ingveldur sem er sem sagt með verstu tannpínu síðan á unglingsárunum ég segi það satt!

En ég er að fara að horfa á blak og ég er ekki að fá 2008 syndromið – ég er að halda sjó og ég er að standa mig og ég ætla að gera það.

OG ÉG GET ÞAÐ!!!!!

úff hvað ég er samt næstum ekki að meika þetta en það er áreiðanlega bara tannverkurinn!

Ingveldur í erli hvunndagsins

Jæja þá er bara ein fermingarveisla eftir – og hún er um næstu helgi. Annars finnst mér eitthvað bogið við það að vera í helgarfríi og vera strax að velta því fyrir sér hvað það sé gott að það sé frí í skólanum á fimmtudaginn! Eitthvað svoldið spes verð ég að segja 😉 Hvernig ætli blessuðum börninum líði þá?

En mér gengur ekkert að losa mig við aukakílóin sem bættust á mig á einni nóttu um árshátíðina og heldur er útlitið slæmt með 1. maí töluna en ég ætla nú ekki að láta deigan síga alls ekki. ÉG veit hvað þarf til að léttast – ég veit líka að það gengur ekki alltaf alveg línulega og ég þó ég geri allt rétt þá er ekki þar með sagt að léttingur sé línulegur miðað við það. En þetta mun ganga.

Ég fór á fund hjá Samfylkingunni í morgun og þar talaði hún Anna Margrét sem skipar 4. sætið hér hjá okkur – ég vona svo sannarlega að hún fari sem víðast nú fyrir kosningarnar og hitti fólk og ræði við það um þessi mál – það þarf að koma að rödd skynseminnar í þessa umræðu og kveða niður raddir hysteríunnar. Við hreinlega verðum að ganga til liðs við aðrar þjóðir (eru það ekki einmitt rök Sjálfstæðimanna fyrir NATO? – reyndar þykir mér fall hagkerfisins vera mestu stríðsátök sem við höfum orðið fyrir hér innan lands og þess vegna veiti okkur ekki af bandamönnum gegn því helv…). Ekki veit ég hvað fólk er hrætt við að missa – kvótann – hann er margveðsettur í öðrum löndum – fyrirtækin hafa verið tæmd innan frá – gróðinn – eða öllu heldur lánsféð, hagnaðurinn ef einhver er – hver króna var oftar en ekki sett í eitthvað allt annað en fyrirtækið sjálft – blóðmjólkað til að halda hluthöfum og eigendum upp og neyslu þeirra svalað. Nei kvótinn er þegar farinn í hendur erlendra lánadrottna. Og ekki hefur sjávarútvegurinn riðið feitum hesti frá síðustu árum skuldsettari en allt sem skuldsett er – landbúnaðurinn? Gæti hann farið verr? Bændur hafa ekki efni á að kaupa sér fóðrið – bankinn sem þó á engan pening heldur kaupir það? Gæti ástandið orðið miklu verra þar?

Við missum sjálfstæðið – hvaða kjaftæði er þetta – haldið þið að lönd Evrópubandalagsins hafi gengið inn á það að missa sjálfstæðið? Frakkar – ljósberar sjálfstæðis í evrópu? Haldið þið að löndin hafi gengist inn á það að missa auðlindir sínar – atvinnuna þar með? Haldið þið að þar sé ekki fólk eins og við sem vill það sama?

Síðustu 18 ára hafa ekki virkað – ekki skilað okkur neinu öðru en því sem eðlileg framþróun hefði gert – á sjálfstýringu og jafnvel heldur minna – í október var allt hrifsað af okkur – þetta allt sem ekkert var – nema tóm sápukúla – falleg að utan, glampandi blá og rauð og bleik, prýdd litum regnbogans en himnan var þunn og inní var ekkert og ef maður gleypir hana þá skilur hún eftir óbragð í munninum. Nema hvað þessi kúla hefur ekki einu sinni sápubragð heldur skítabragð. Blásin af frjálshyggunni – og hvað eru hyggjur og sjónir ef ekki þeir sem framfylgja þeim. Það er ekki hægt að aðskilja þetta tvennt.

VIÐ VERÐUM AÐ KOMAST Í BANDALAG ANNARRA ÞJÓÐA VIÐ VERÐUM AÐ NJÓTA SÖMU LÍFSKJARA OG ÞÆR við verðum að fela Samfylkingunni forsvar í næstu kosningum! Það er leið okkar í samstarfi við vinstri græna – við verðum að vera í forsvari og fá skýran stuðning þjóðarinnar til þess að leiða þá vinnu!

já já já já – jákvætt sjáflstal

veitir ekki af því um þessar mundir! Svo virðist að ég hafi þyngst í kringum árshátíð – ekki losnað við það í dimbilvikunni – og þá ekki um páskana… og það þarf að horfast í augu við það að maður fer upp og svo niður. það er stundum eins og að sé taktur í þessu… en síðasta vika var næstum afbragð bara. Enginn dagur yfir 42 stig – sem er grunnorkuþörfin. 1 minni en 30 og hinir 30 – 34 stig. Ég hreyfði mig fínt líka – sérstaklega miðað við verkinn í hendinni. Blakæfingin var frábær – það er Fylkismót í bænum í dag – mig langar svoldið að fara að horfa því þar er kvennablak – en ætli ég láti ekki duga að kíkja á strákanna á hsk mótinu á mánudag… maður lærir svo ótrúlega mikið á því að horfa ;-).

Í morgun er ég búin að hjóla með blöðin – afar vont fyrir hendina! 50 mínútur og fínn púls.

Ég borðaði mjög hollt í gærkveldi og synti í gærdag og náði um 80 mín hreyfing – þannig að ég er komin af stað aftur. Ég hef misst nokkur hundruð grömm þessa viku – og vonast til þess að ná þá fyrri þyngd minni í lok næstu viku – 24. apríl. Svo verð ég að vera orðin hálfu kílói léttari 1. mái… það væri best en loka og óumflýjanlegt markmið er 129 kg í 29. maí – það er engin undankoma með það og fyrst páskarnir fóru ekki verr þá er það vel mögulegt…

90 ára afmæli kvenfélagsins í kvöld og 2 fermingarveislur á morgun. Sem sagt ekki lést um helgina en vonandi verður þetta ekki verra en ég næ mér á strik …

úff

Dagur 1

eftir upprisu! Ekkert borða sem ekki mátti borða nema hvað það var borðað of mikið og ein samloka sem er sko 8 stig… En ég er innan 42 stiga – sem er gott. Nú er að muna markmið – nýr tugur í lok þessa mánaðar -ekki alveg víst hve mörg kíló eru í það – vantar staðfesta tölu eftir páska…

æ mig auma – en það gildir ekki að væla – heldur einmitt spýta í lófana.

oh my god


ég er farin í búð á morgun að kaupa hollustu – páll er búinn að ráða hér ferðinni í innkaupum – árshátíð svo nám svo borgó – og oh my god er ég í djúpum kúk… Á morgun á morgun á morgun – oh my god!

Mér hlýtur að takast að núllstilla hugann í nótt og koma þessi ferska klára svellilagða inga út – sem bara borðar aldrei vitlaust og hreyfir sig undir drep. Bara að ég sé ekki 3 kílóum eða svo þyngri en ég var 3 apríl eða svo.

ekki það 44 ár eru rosa íþyngjandi…

Ritgerðarpróf 1980 í Kleppjárnsreykjaskóla.

Ég hafði verið í 7 ár á Ljósafossi í heimavist en fór í 8. Bekk (nú 9. bekk) í Borgarfjörðinni og þóttist greinilega nokkuð sigld manneskja – átti nú reyndar vinkonur vítt og breitt og hef vísast rætt skólamál við þær ef ég man rétt ;-). Mér þótti alltaf gaman í skóla og útbjó mér mín verkefni ef mér dugðu ekki þau sem voru í skólanum – gerði bækur og slíkt mér til gamans. En eitthvað var ég þreytt á staglinu á stundum – og þóttist hafa nokkuð fram að færa. Ég minnist þess að þetta ár var ég líklega með einn besta kennara sem ég hef haft – líklega hef ég eitthvað litið til hans aðferða en ég hafði líka kennara sem var minna skemmtilegur og skildi hreinlega ekki að nemendur skólans létu þetta yfir sig ganga – kom því reyndar í gegn að hann fór í ársleyfi – ja svona amk opnaði ég augu sumra fyrir brennandi þörf á upp-peppingu fyrir hann ;-). Ég breyti ekki orðalagi í þessari 30 ára ritgerð sem ég fann í dóti- né ambögum – mér finnst svolítið vænt um þær og þó ég myndi kannski skipta út orði og orði í dag – myndi ég um margt skrifa líkt þessu. Kannski sýna hinum neikvæðu örlítið meiri skilning en í raun kemur þó fram ákveðinn skilningur á vandanum – þeas að kennsluaðferðirnar þurfa að vera fjölbreytilegar. Ákveðinn umvöndunartónn er í skrifunum enda mikill námsmaður á ferð á þeim tíma – gekk afbragðs vel – þótti gaman og vildi læra flest til botns.
Kennarinn sem mér þótti hve verstu var einmitt íslenskukennarinn minn og mér þykir sem ég hafi sýnt nokkuð hugrekki – fífldirfsku með þessum skrifum mínum – hann kenndi mér reyndar dönsku líka – og ég held satt að segja að ég hafi ekki fengið góða einkunn. Ég skrifa þetta upp eftir uppkasti sem ég fann í dóti – það er gaman að sjá hvernig maður hugsaði og það er nokkuð greinilegt að ég var bæði komin af kennurum og ætlaði mér að vera kennari allt frá fyrsta skóladeginum Amk er nálgunin nokkuð kennslufræðileg af 14 ára krakkastýri að vera.
Hvernig á grunnskólinn að vera
Allir tala um það hvað grunnskólinn (raunar allur skóli yfirleitt) sé leiðinlegur en hvað ætli það séu margir sem raunveru lega meina það? Og hvað vilja þeir gera til umbóta? Þeir sem láta hæst og neita að læra hafa yfirleitt engar raunhæfar kröfur – þeas þeir vita ekkert hvað er að í rauninni. Básúna það aðeins hve skólinn sé ömurlega leiðinlegur. Hvernig geta þeir krafist þess af skólanum, að það sé elts við duttlunga þeirra þegar þeir ganga í skólann með þessu hugarfari? Vissulega hafa þeir eitthvað til sín máls en það hefst aldrei neitt á því að reyna að ná því fram með þessum hætti (þe að rífa sig og vera mjög neikvæður á allan hátt). Þessu hugarfari nemenda þarf að breyta, skólinn á ekki að vera neitt helvíti fyrir þá því ekki trúi ég öðru en öllum geti þótt eitthvað gaman í skólanum.

Auðvitað verður viðhorf kennaranna ekki neitt ýkja gott enda engin furða ef nemendur haga sér svona sem þeir gera raunar ekki nærri ellir an alltof margir samt. Bæði nemendur og kennarar þurfa að slaka á kröfum og viðhorfum sínum því annars verður skólinn aldrei góður né skemmtilegur t.d. ef nemendur vilja að kennarinn sé svona og svone en kennarinn er nú ekki á því að verða eins og einhverjir unglingsbjánar (mér finnst við engir bjánar) vilja hafa hann! Það verður aldrei gott samkomulag þar á milli svo það gefur augaleið að nemendur verða að slá af kröfum sínum og kennarinn einnig. Þar með batnar andrúmsloftið í kennslustofunni mjög til batnaðar.
Eitthvað hlýtur að vera hægt að gera fleira t.d. varðandi námsefni svo lífið verði bærilegra fyrir báða aðila.

Mér finns t persónulega námsefnið svona all-sæmilegt. Þó finns tmér það megi breyta málakennslu frá því sem hún er nú. Hún er heldur einhæf. Reglur, reglur og aftur reglur. Það hlýtur að vera einhvern veginn hægt að breyta henni. Danska sé meir töluð (æ þarna fór ég alveg með það – ég talaði af mér [var nefnilega ótrúlega léleg í dönsku og sérstaklega að tala hana!]) en hún er núna og maður læri eitthvað um Danmörku ekki bara 2 – 3 kafla í bók. Heldur hvað íbúarnir vinna við, hvernig lífskjör eru þar osfv. Ekki bein landafræði en lifandi fræðsla á því tungumáli sem töluð er í viðkomandi landi og gera verkefni sem eru bæði til fræðslu og skemmtunar. Þetta á við um alla málakennslu – ekki bara dönsku.

Þegar ég tala um erlenda tungumálakennslu þá þarf nú að minnast á íslenskuna. Það held ég nú að slái öll met sú kennsluaðferð sem brúkuð er þar. Sú kennsluaðferð er svo framúrskarandi þurr og vitlaus. Það er ekki farið neitt útfyrir bókina(það er nú raunar allt annað mál). Það er verið að troða í fólk stafsetningu sem búið er að ná 8 – 10. Hvaða gagn heldur fólk að það geri – ekkert nema kannski það ógagn að fólk detti niður í 5 eða 6 eða þá það verður gjörsamlega búið að fá algjöran viðbjóð á stafsetningu. ÉG mæli með því að sú stefna sem kalla má ,,inntroðunarstefnu“ sé hætt. Þá er ég að segja það að fólk hefur ekki gagn af viðkomandi kennslu – þeas eins og hún er kennd núna. Þegar það er búið að læra þetta fullkomlega. Það er þá hægt að kenna þeim það sem þau hafa meira gagn af!
Kjaftafögin þe mannkynssag, landafræði , Íslandssaga, félagsfræði osfv eru mörgum erfið. Sumir eru með algjöra klígju á meðan öðrum er nokk sama enn aðrir lifa nærri fyrir þau. Svo ekki er nú vel gott að segja hvað sé að og hvernig megi breyta þeim kennsluaðferðum sem oftast eru brúkaðar. Mér sinn sú kennsluaðferð að taka allt beint upp úr bókunum alveg glötuð. Þetta eru ekkert (þe í mannkynssögu og landafræðibókum og kannski fleiri bókum) nema fáránlegar upptalningar sem koma engum við. Mér finnst að það eigi að fara vel út fyrir bókina annars eru flest kjaftafög hræðilega leiðinleg.
Kjaftafögin eru alveg frábær, finnst mér ef þau eru kennd töluvert fyrir utan bókina ef ekki þá eru þau allra versta helvíti sem upp hefur verið fundið og það finnst flestum. Þetta er raunar svona um öll fög. Og afhverju haga kennarar sér ekki eins og langsamlega mesti meirihlutinn vill fyrst hugmyndin er ekki vitlausari en þetta?
Það er sá mesti feill sem nokkur kennari getur gert, það er að hann hefi skít í hugmyndir nemandanna. Það hlýst aldrei neitt gott af því!
Svo ég fari nú að tala um mig og mitt álit þá veit ég ekki hvort neinn sé sammála mér og það skiptir reyndar engu máli því mér finnst þetta. [hér man ég eftir því að mér var kennt að maður yrði að segja frá sínu áliti – hef greinilega álitið að ég væri að tala um almenn sannindi fram að þessu ;-)].
Mér finnst mjög gaman aö læra en ég nota bara mínar aðferðir við það og geri eins og mér finnst að kennarar ættu að gera [var satt að segja heldur óstýrilát og oft á tíðum heldur masgefin í tímum! Var hreinlega banvæn kennurum ef mér leiddist!].
Að mínu mati finnst mér að kennarar eigi að fara eftir vilja [þörfum væri orð sem hægt væri að setja hér inn 30 árum síðar ]nemenda sinna í sambandi við kennsluaðferðir þeas ef þær eru ekki þeim mun vitlausari. Ef þeir gera það ekki verða þeir aldrei vinsælir. Nemendur í eldri bekkjunum eru manneskjur með sínar hugmyndir sem þau vilja að tekið sé tillit til. Kennurum ber skylda til að gera nemendum lífið í skólanum sem skemmtilegast.