Á fullu

Jæja þá er ég að skríða í að verða búin með námsmatið – ekki nema 2 dögum of seint.  Það er enn stærðfræðin sem skilar sér seint – en það er þannig að ég ætla alltaf að gera hana svo sérlega vel og hugsa allt svo djúpt og bíð svo of lengi með allt saman.  En ég skila af mér ágætu leiðsagnar mati tel ég og heljarinnar námsmat verður í feb og svo eru nú 7. bekkingarnir að fá út úr samræmda prófinu.  Ekki að ég reikni með að það komi sérlega vel út þegar þetta er svona snemma að haustinu og börn úti að hugsa um sumarið bara.

Ég er nokkuð góð í maganum – hef ekki fengið neitt kast í nokkra daga og get borðað óþarflega mikið af óhollu enn og læt það jafnvel eftir mér- helst er það í vinnutörnum hér heima og undir svefn er ég að setja eitthvað sérkennilegt upp í mig.  En þetta er allt á réttri leið.  Og ég ætla ekki á vigtina fyrr en 15. nóv eða svo- það er alveg klárt.

Ingveldar update

Jæja margt hefur nú á daga mína drifið síðan ég skrifaði hér eitthvað af viti.  Fyrst og fremst hef ég verið að sinna vinnunni minni, náminu mínu, hreyfingunni og mataræðinu.  Sumt af þessu hefur gengið afbragðs vel annað heldur síður en ekkert af þessu afleitlega sem ég er viss um að iðjuþjálfinn minn á Reykjalundi yrði nú ekki alveg ómöguleg að heyra ;-).

Ég hef komist að því að ég er með mjólkuróþol hvort sem það varir lengi enn, eða rjátlast af mér með auknum bata veit ég ekki – skiptir mig ekki máli í augnablikinu því þessi uppgötvun mín hefur fært mér svo miklu betri líðan.  Og nú skal skrifað um þetta ferli svo ég gleymi því ekki – því sem kunnugt er þá er þetta blogg mitt fyrst og fremst vörður á ferð minni um lífið-ég get flett upp – lært af því sem liðið er og myndað mér heldur heilbrigðara viðhorf heldur en bara muna aldrei neitt og halda að ég hafi aldrei lent í neinu né gert nokkurn skapaðan hlut.  Hér má lesa um þetta fyrirbæri sem er algengara en margur heldur og ágerist með aldrinum – tala nú ekki um ef maður tæki upp á því að skipta um kynþátt.

En sem sagt mjólkuróþol Ingveldar og áhrifin sem ég tel að uppgötvun þess hafi haft.

Alla tíð hefur mér mislíkað við mjólkurvörur – sem barn vildi ég aldrei skyr og þótti súrmjólk vond – gat svælt þessu í mig með ávöxtum og púðursykri en klígjaði alltaf óskaplega og drakk t.d. ekki mikla mjólk.  Sem unglingur var ég svakalega slæm í ristlingum og alveg fram undir þrítugt þegar hann róaðist aðeins en aftur fór að versna í því undir fertugt þegar ég fór að fá mikinn brjóstsviða og slíkt  – en það tengdist vísast þyngdi minni en sem sagt alltaf verið mjög viðkvæm í maga (fékk fyrst lyf við magabólgum 9 ára eftir rannsókn á Reykjalundi).

Með árunum borðaði ég svo minna og minna af henni – hefur heldur aldrei þótt t.d. ís neitt sérstaklega góður þó það megi nú svæla honum í sig ;-).  Eftir að lífsstílsbreytingin tókst á flug og mataræðið var tekið föstum tökum hefur neysla mjólkurvara aukist gríðarlega hjá mér enda góð prótein – endist vel og lítið af hitaeiningum ef maður kann að lesa innihaldslýsingar á slíkum vörum – já eða sér þær ;-).   Skyr hefur síðan æ meira verið að koma inn með svo ákveðnu hámarki síðasta vetur og á Reykjalundi var t.d. alltaf ein máltíðin skyr – þe kvöldmaturinn.

Mér fór svo alltaf að líða verr og verr í maganum er leið á vorið í fyrra og þoldi illa allan mat einhvern veginn en var samt allt af svöng og eftir kvefið mikla í vor, álag í skólanum og náminu þá bara hrundi maginn gjörsamlega og ég leið vítiskvalir með niðurgangi, krömpum, uppköstum og ég veit ekki hverju og hverju hér langt fram á sumar. Þá fékk ég einhver ristilkrampalyf og fór að fara í útilegur – gat aldrei verið mjög langt undan salerni og eyddi þar oft drjúgum tíma en var samt skárri svona um miðbikið.  Ég fór síðan á Reykjalund aftur og varð þá vör við þessa vanlíðan í maga – ég var greind þar með magabólgur því þessi sífellda svengd sem ég fann fyrir í sumar er eitt af einkennum þeirra.  Ég fékk lyf við þeim og ekki leið langur tími þar hungurtilfinningin hvarf en mér var alltaf jafn illt í maganum og fékk svo þessi svaka köst inn á milli þar sem ég hélt bara að ég myndi deyja ég fann svo til.  Og ég ætla nú ekki að tala um niðurganginn og nauðsyn þess að vera alltaf nálægt salerni.  En ekki léttist mín nú neitt að ráði þó svona væri fyrir henni komið.

Á þessum tíma borðaði ég alltaf skyr aðra máltíðina – eða sem mest, líka eftir að ég kom frá Reykjalundi í haust, í hádeginu í skólanum og svo undanrennu á morgnana á hafragrautinn eða seríosið – svolítinn ost borðaði ég líka og létt og laggott við og við.

Síðustu árin hef ég verið kvefsækin og alltaf verið með slím í öndunarveginum sem er sérlega áberandi t.d. þegar ég syndi, vakna á morgnana og astmi hefur gert vart við sig.

En góðu fréttirnar voru þær að ég var bara nokkuð góð í löppunum og fór því að myndast við að hreyfa fæturnar hraðar en áður í moggaburðinum og jafnvel skokka smávegis.  En það hafði ferleg áhrif á magann og ég mátti oft og iðurlega prísa mig sæla að ná hreinlega heim því það hljóp svo svakalega á mig.

Ég mundi eftir því að Björk hafði sagt mér að algengt væri þegar fólk yki hreyfingu þá gerði vart við sig svokölluð runners diarrhea – og þó ég teldi mig nú ekki vera að auka við hreyfingu eða slíkt þá vissulega tók það svolítið á að hlaupa þarna á milli staura og ég ákvað að lesa mér aðeins til um þetta og rifja upp það sem hún sagði mér hér um árið – því þegar ég byrjaði ,,eitthvað í salnum hérna“ þá var mér gríðarlega illt í maganum eftir æfingar.

Og þar sem ég vitjaði googla gamla um þennan niðurgang sá ég að talað um mjólkuróþol og viti menn…

Heldur betur pössuðu einkennin við mína.  Ég snarhætti því að eta allar mjókurvörur nema undanrennuna á morgnana, létt og laggottið og gouda ostinn.  Því það var nú svo sem ekki neitt.  Enda trúði ég því nú ekki að ég væri með myljandi óþol heldur bara svona smá….

Og jú víst lagaðist ég til mikilla muna…. kramparnir sem ég var búin að fá alls konar lyf við minnkuðu en mér var enn svolítið illt í maganaum og tók eina og eina rispu….

Svo einn morguninn eftir að hafa fengið kast þá bara sá ég að ég gæti þetta ekki lengur – verið í vinnu, námi og hvað þetta allt saman er sem ég geri og vera alltaf svona svakalega illt því mér fannst mér jafnvel vera að versna.  Ég ákvað  því bara í eymd minni og volæði að hætt að ´borða ,,mat“ og fá mér bara eitthvað fæðubótarefni í staðinn.

Ég fékk mér því herbalife á morgnana með aloe vera drykk fyrst frá herba og svo núna frá Forever og viti menn – mínn bara snarlagaðist og fékk allt aðra tilfninningu í magann og sá þá að ég hef í raun verið að drepast í maganum árum saman – aldrei verið góð alltaf átt von á ristilkrömpum og magaverkjum.  Orðið illt af þessu og hinu án þess beinlínis að fatta það.  Svengdartilfnningin sem var farin að gera vart við sig aftur er gjörsamlega farin (þakka það nú herbalife teinu líka sem virkar svakalega vel á mig) og ég magaverkurinn snarminnkar…

Nema þar sem ég fékk mér brauð (án mjólkur) í hádeginu fór ég að taka eftir því að mér varð ekki rétt gott af því – enda létt og laggott á því og smá ostur…. og þá fannst mér nú eins og ég væri orðin full smásmuguleg – þetta gæti ekki verið svona slæmt…. en jú þannig er það.  Ég þoli bara ekkert mjólkurkyns – verð bara ógeðslega illt af því.

Kannski lagast það svo einhvern tímann – oft rjátlast þetta af fólki nefnilega.  Það kemur þá bara í ljós.

Ég hef sem sagt fengið mér herbalife shake með banana og soyamjólk í 2 vikur að verða og ég er svona að smá tína út annað sem í gæti verið mjólk.

Ég fæ enn í magann – er t.d. illt í honum núna og þarf að hugsa hvern fjandann ég borðaði í gær sem gæti valdið því – ég er nefnilega ekki alveg viss um að mér verði t.d. rétt gott af hráu grænmeti meðan ég er svona viðkæm en við skulum nú sjá til hvert þetta leiðir mig.

Næsta update verður um herbalife og hvernig fyrstu dagarnir hafa virkað á mig því mig langar að eiga þá sögu svo ég geti mælt mig við eitthvað. 

Já og þess má geta að vigtin er á niðurleið.  Enda var ekki mikið borðað á tímabili – of lítið en hún sveiflast enn óvanalega mikið – eins og hún fór að taka upp á í sumar – þegar ójafnvægið var sem mest.

Nú ætla ég bara að fara 2 í mánuði á hana og láta hana bara eiga sig – gera bara allt sem í mínu valdi stendur til þess að standa mig í öllu því sem þar og ég nefndi hér að ofan – hreyfingu, mataræði, vinnu og námi.

Til þess þarf fulla heilsu.

Vúhú púhú súhú

Mín hefur nú ekki verið alveg ómöguleg þessa viku…. nú er áherslan á hreyfingu og ná henni upp í einhverjar hæðir sem passa fínnir frú eins og mér :-).

Nú það hefur verið Nautilíus 2x í vikunni með fínni hreyfingu, mogginn náttúrulega og svo massa blak áðan.  Gat ekkert en reyndi.

Áframhaldandi þjálfun framundan.  Vandinn er að hafa tíma fyrir námið, – vinnan hangir inni en mataræði ekki nógu gott og tiltekt ekki mikil enda ætti ekki mikið að þurfa að gera mikið af því – tvær manneskjur hér sem aldrei eru heima hvort sem er…

Ég fór í krabbameinsleit í vikunni – mjög ánægð með mig.  Fékk svínaflenslusprautu í dag og dey því vonandi ekki úr því en af því hef ég þungar áhyggjur…

Það þarf að læra vel um helgina.  Ég bara geri það þá – eins og ég á eftir að hreyfa mig. 

Ég er með mjólkuróþol held ég alveg klárlega.  Hef lagast nokkuð eftir að hafa tekið hana alla út og svo fæ ég mér shake á morgnana – það virðist ætla að koma vel út.

Bara til að minna mig á

Ef ég ætla að nota þau rök að ég hafi ekki tíma, sé of þreytt, hafi of mikið að gera – já komi því ekki við með nokkru móti að fara í hreyfingu þá get ég eins hætt að reyna það.  Því þannig verður það alltaf.  Þess vegna fór mín í ræktina í kvöld að verða átta algjörlega búin að vera – en samt voða glöð því ég er komin með tölvuna aftur – sem er afar ánægjulegt.  – En ég hef sko verið tölvulaus meira og minna í viku.

Nú en sem sagt – þetta tekur 2 tíma svona ræktarferð – með potti og öllu.  Á morgun ætla ég aftur og þá bara að hjóla og synda smávegis  – það tekur styttri tíma.  Ég ætla að virkilega að reyna að vera dugleg að læra eftir vinnu – elda og fara svo smá í salinn…..  passa bara að gaufa ekki of mikið en það er nú svoldið minn stíll.

Og svo ætla ég að muna – það er alveg sama hvað ég er þreytt, illt og illa upplögð mér líður alltaf betur eftir salarferð – það er bara hreinlega tilfellið.

Það ætla ég sem sagt að muna….

Það er komin helgi

Verkefnin eru ótalmörg og ég gæti bloggað um mjög margt 🙂
T.d. hvað ég lærði ótrúlega mikið í Félagsfræði og heimspeki menntunar – ég bara er ekki söm manneskja svei mér þá!  Og litlu minna lærði ég þó annars slags væri hjá honum Þorsteini Helgasyni.  Þar var hver snillingurinn upp af öðrum með mjög ólíka menntun og bakgrunn.  Ég var í hóp með stúlkum sem voru svona bara rétt fermdar en svo svakalega skemmtilegar og klárar og kenndu mér svo margt.  Meiri snilldin – ég veit ekki hvort ég er tilbúnari til að læra nú en áður – eða hvað en amk lærði ég ótrúlega mikið í vor á að gera verkefnið í námsmatinu – og stend sterkari fótum í ýmis konar ritgerðar og verkefnavinnu en áður.  En boy oh boy hvað verður mikið að gera næstu vikur. 

En ég skal komast í gegnum þetta.

Nú er ég farin að hugsa um að fara bara á einhver fæðubótarefni – herbalife eða eitthvað útaf maganum á mér – ég get illa verið eins og ég hef verið undanfarið.  Ég þoli klárlega ekki fleiri sjálfsvorkunnarköst ;-).

Nú svo er markmiðið mitt þessa viku að komast í líkamsrækt – það verður í algjörum forgangi – ásamt vinnunni, og námninu – en svona heimalagað séð þá þarf það að bíða…. Sem sagt Nautilíus, badminton – kannski eða í það minnsta Nautilíus.  Svo er það Blakið og ein góð stafganga í einhverjum skóginum :-).

En nú er að huga að afmælinu hans Skafta.

Rapport

Illt í maga af öllu mögulegu….
Frábær blakæfing í dag
Rosalegt að gera í staðlotum – ekki neitt venjulegt hvað ég er að læra mikið 🙂
Góð í fótum verri í baki 😉
Langar til að hætta að vera illt í maga…

Er mjög uppgefin á því satt að segja…

Góða nótt

Nú jæja fer þetta nú ekki að vísa upp á við?

Sko þessi vika er ekki alvond.
Og sú síðasta ekki heldur – ég fékk bikar frá Polla þá og allt – svo þá er hreyfingin í lagi.

Í þessari viku er hún enn betri:  Mánudagur – læra rosa mikið, þriðjudagur læra enn þá meira og fór í fyrsta sinn í Nautilíus og fór bara á hjólið og stigvélina í 20 mínútur en glímdi samt við stigann og allt og svona – gott að fara í fyrsta sinn og það allt saman.  Líka því það var ógó mikið að gera þennan dag!  Og ég alveg að missa tökin á öllu í hreyfingunni.

Miðvikudagur held ég að ég hafi nú ekki gert neitt….  nema bara hvílt mig…
Fimmtudag var alveg massív vinna og svo frábær blakæfing (er nefnilega farin að geta hlaupið í átt að boltanum þó ég nái honum ekki….), föstudagur alveg svakalega mikil vinna, laugardagur stigvél dauðans og svo synti ég smá.  Flott æfing, sunnudagur massa ganga með stafi í Þrastarskógi – svo ég er bara góð sko!

1/8 af matnum samt ekki farinn út – hann fer út í næstu viku vonandi.  Þá er námslota í bænum og nám og nám og nám.  Og hreyfing náttúrulega.

Jamm ég er sáttari við mig þegar ég næ að fylgja hreyfingaprógramminu…

já og svo er náttúrulega mogginn alltaf á morgnana – það er nú þó alltaf það.

Sumt gengur annað ekki

Nám gengur vel
Vinna gengur vel – er ekki í nokkurri skuld vinnulega séð og hef skilað af mér öllum tímum og rúmlega það.   Kann að vísu ekki nægilega mikið í stærðfræði til að ráða við þá úkraínsku en það kemur….
Já var ég búin að segja að nám gengi vel 😉

annað er svo aftur verra…
Er samt búin að kaupa mér kort í Nautilíus í sundlauginni og þorði niður hringstigann – var ekki einu sinni smeik – hjólaði smá og fór á stigvélina fór svo í pottinn og geystist heim til þess að læra og ljúka verkefni númer 4 þetta misserið og ég gerði það – var ekki nema 5 mín of sein!  Hef því skilað öllu mínu og aldrei beðið um frest og er óstjórnlega stolt af því.
Mataræði í hönk svona að mestu, hreyfing of lítil en horfir til betri vegar.