Author: ingveldureiriks
Maður getur skoho átt helgarfrí þó maður sé í sumarfríi -enda er stöðugt eitthvað samviskubit að bíta mann í miðri viku – Grímsævintýri, vefsíður og hvur veit hvað – en nú er ég bara ákveðin í því að vera í fríi og vera alveg sama um allt! Það er þetta dásemdarveður komið og ég er að koma hádegisblómunum mínum í potta þessum allra seinustu sem hafa bara verið í næringarbæði síðan ég keypti þau – ég er alltaf svoldið sein 😉 Vonandi blómstra þau nú fyrir mig í sumar. Ég elska hádegisblóm…
Páll er að smíða hlið á pallinn þannig að það sé hægt að hafa opið út án þess að hundarnir rjúki út í veður og vind -lofta almennilega um húsið – ég hef saknað þess svo- það var alltaf hægt þegar Trítla var og hét ;-). Hún fór aldrei neitt blessunin.
Ekki er nú nóg með þetta heldur er ég að taka upp dúkku sem átti að vera úti á palli – handverk sem er líklega orðið 6 ára – vantar held ég hár á kvikindið… og augu jafnvel… já og regnkápu ;-). Svona smá potast þetta – en tiltektin gengur svo sem ekki neitt afbragðsvel – ja jú – geymslan var tekin í gær og stofan – helmingurinn líka. Það er nú afrek í sjálfu sér. Æ skítt með þetta – þetta kemur allt þegar rétta hugarástandinu er náð.
Á föstudaginn fór ég ég í svaka hjólatúr fyrst vítt og breitt um selfoss og svo í lundin við Seljatungu – telst til að þetta hafi verið um 25 kílómetrar. Fór svo og synti 300 metra mér til liðkunar á eftir. Æði. Í gær var svo bara þaðsem mér sýndist dagur – byrjaði að lesa Reisubók Guðríðar og guð minn góður hvað þetta er góð bók! Get varla lagt hana frá mér!¨ Hlakka til að hreiðra um mig á pallinum með hlið og lesa án þess að hundarnir séu að vesenast í böndum.
Á morgun ætla ég svo að setja saman dagskrá fyrir Grímsævintýrin og hefja vinningasöfnun með formlegum hætti. Hver veit mig gæti jafnvel farið að langa í útilegur á nýjan leik 🙂
Mynd tekin af draumagardar.is
Jæja hreyfingin er að komast í nokkuð fastar skorður – í dag fórum við Áslaug fimm sinnum upp á Kolgrafarhól og nutum okkar í veðurblíðunni þó að á köflum væri nokkuð vindasamt. En þá er markmiðinu náð að fara fimm sinnum þarna upp – þá er hægt að taka næsta hól – hólar eru fínir til að æfa þolið. Í gær fór ég í göngu í um klst með Reykjalundargenginu mínu dásamlega um Þrastarskóg en í gærmorgun synti ég 400 m til að liðka mig eftir hjólreiðarnar og ekki síður fyrir gönguna.
Á morgun fer ég síðan með afbragðskonum í hjólatúr niður í Gaulverjabæ – það er fín spá og þetta verður bara gaman! Líklega þarf ég nú samt að taka það svo rólega um helgina – það eru svo sem komnir smá verkir hér og þar í kroppinn, herðar aumar og úlnliðurinn aumur eftir stafina í gær og í dag – en það munar helling að ganga með þá bæði brennslulega séð og svo er stuðningur af þeim í brekkum.
Mataræði gengur ekki nógu vel. ÉG er alltaf svöng og síhugsandi um mat. Einu syndir mínar í dag eru samt smjörát – annað hef ég að mestu látið í friði, ah… jú smá nammi. Dj… sem það ætlar að vera erfitt að hanga á beinu brautinni. Ég þarf að fækka þessum dögum verulega sem ég læt undan þörfum mínum í sætindi. Ég er ekkert alveg svartsýn a að það takist. Amk er ég í fínu standi – get gengið auðveldlega í 60 mínútur og kemst upp nokkurn bratta – þetta lítur ekkert svo illa út. Þessir svaka verkjadagar verða bara að láta sig hverfa – verkirnir minnka við sund og hjólreiðar. Það er bara að ofgera sér ekki.
En forgangsatriði er náttúrulega ásamt því að hreyfa sig að huga verulega að því að telja ofan í sig stig og verða þannig meðvitaðri um það sem ég set ofaní mig. Ég þarf að prenta út matardagbók – það er líka alveg klárt.
Og ég verð held ég að eignast Klovn seríurnar. Ég segi það satt
Jæja manni er ekki alls varnað – mig hefur lengi langað til að lengja túrana sem ég hjóla – í síðustu viku fór ég 22 km eða rúmlega það og svo blundaði mér að hjóla í Alviðru og aftur til baka. Brúin stóð í mér og já líka undirlagið 😉 Ég var búin að gæla við þetta í nokkra daga en var eiginlega búin að gefa þetta frá mér. Hundfúl með það náttúrulega. En þá kom ein góð vina mín til sögunnar sem fór með mér og við svoleiðis rúlluðum þessu upp – alveg frábær ferð. Það verður ekki málið að hjóla á Borg – hvora leiðina sem er. Þá hjálpa hjólabuxur og Puma skór til en ekki hálf biluð keðja sem hrekkur af í 1. drifi – en það verður lagað.
Bara gaman – þó það væri svaka umferð – vorum aðeins of seint á ferðinni. Frábært veður, lygnt og gott -rigningin glumdi þegar útidyrahurðin luktist að baki mér 🙂 Fór svo í búðina og keypti ekkert nema grænmeti – hef etið vínber og jarðaber linnulítið síðan sigh. Maður getur ekki verið á því fóðri alla tíð – of dýrt til þess.
Haldið þið ekki að konan hafi hjólað í Þrastarlund og aftur til baka í einu hendingskasti -eða þannig. Það eru sko nokkrar brekkur á þeirri leið skal ég segja ykkur. Er ég nú þess albúin að hjóla á Borg eða frá Borg eða hvaða átt sem er barasta! Bara góð – á pottinn samt eftir og átþörfin er söm við sig. Ó já.
Maður er nú ekki offitusjúklingur fyrir ekki neitt!
Það gengur svo illa hjá mér þessa dagana að ég er að sturlast. Það gengur ekkert upp!
Verkir
Þyngdaraukning þó verulega sé stefnt í hina áttina með einum eða öðrum hætti
verkefni sem leysa þarf dag frá degi
hreyfing
matardagbók
Já nefndu það bara…
Samt er ég einhvern veginn að reyna að vinna í öllu þessu en það bara gengur ekki neitt.
Eina sem ég get hugsanlega haft mér til málsbóta er eitthvað sem heitir breytingaskeið. Ég er farin að finna fyrir því skeiði af fullum þunga.
En jæja ekki dugir að væla – er ekki rétt að setja sig í fyrsta sæti og fara út að hjóla í tilefni af þessu væli -öllu saman – taka sundfötin með og liðka sig í pottinum. Breyta röð dagsverkanna – fara fyrst út og hugsa um sig og fara svo í húsverkin.
Svo þarf ég alvarlega að versla inn. Það er nú lykillinn að mörgu, flestu, öllu.
Komið þið sæl og blessuð 🙂
Í dag fórum við Bjartur, Skotta og Áslaug í svaka roki og rigningu upp á kolgrafarhól í Grímsnesinu – menn og hundar urðu HUNDblautir – svo ekki sé meira sagt. Svo ætti ég að vera að baka snúða og gera klárt fyrir útilega en er mest að þvælast á netunu – nú eða leggja mig því mér er svo ótrúlega illt í maganum – æ mig auma…
ég er ekki ein um það – Ragnheiður er líka að drepast blessunin. Pizzan í kvöldmatnum í gærkveldi var líklega misráðin… ég fór annars og hjólaði litla Votmúlahringinn í gærkveldi – seint. Til þess að bæta fyrir pizzuskrattann! Í fyrradag fór ég niður að Seljatungu – það eru um11 km hvora leið -í frábæru veðri og með léttum leik. Frábært það. Næst á dagskrá er að hjóla í Alviðru og svo á Borg – eða frá Borg, það er auðveldara. En nú er að hætta að vorkenna sér magakveisuna og drífa inn poka úr bílnum en ég verslaði áðan – svoldið af því sem þarf í útileguna 🙂
Ég fór á ættarmót um helgina og í fyrsta skipti á ævinni held ég bara að ég nennti ekki að fara í útilegu og fannst þetta allt vesen bara. Páll djammar fram á mo
rgun og ég ligg vakandi í hávaðanum – og syfjuð og verkjuð næsta dag! Yeah mjög skemmtilegt. Næsti skammtur er næsta helgi. Þá hef ég heitið mér að fara í göngu. Og tjalda langt frá djammstaðnum.
Eg hélt minni þyngd um helgina og stefni á að léttast svert þessa viku.
Jæja það er í nógu að snúast – útilega og hvur veit hvað. Gera vagninn klárann og finna útilegudót sem var einhvern veginn dreift um allt hús og allar koppagrundir! Maður ætlar einhvern veginn alltaf í eina útilegu enn – sem aldrei verður svo af og því er ekki alveg gengið frá hlutunum :-). En vagninn kemur vel undan vetri – ilmandi fínn og flottur. En í haust ætla ég að passa þetta betur, og skrifa niður hvað ég geri við hlutina og hvernig ástandið er í vagninum, hvað þarf að laga og svona. Maður man ekki neitt orðið!
En þó mikið sé talað um útilegu hér og á fésinu þá mega þjófar alveg gleyma því – þar sem ég og Bjartur verðum hér heima við, hann verður áreiðanlega ekki til mikillar skemmtunar þarna og ef ég þekki fólk rétt þá verður eitthvað af lausum hundum og það þolir minn maður nú alls ekki.
Það gengur mjög vel hjá mér aðhaldið þó eitthvað rati nú inn fyrir mínar varir þá hef ég verið svo dugleg að hreyfa mig að það kemur ekki að sök. Ég held áfram að stýra mataræðinu og rifja upp forna takta (sem eru nú ekki fornir því það er ekki eins og ég hafi hætt í öllu saman bara slegið af). Ég kann, veit og get – og nú er ég meira að segja sannfærð um að ég VILJI – vilji er allt sem þarf, ákvarðanir segi ég. Vera búin að ákveða – og bregða ekki útfrá þeim ákvörðunum. Það er eiginlega mitt ráð.
Ég fór þrisvar á Kolgrafarhólinn í gær og ég bara átti ekki erfitt með það, fann hvorki til í hné – þökk sé stórkostlegri hnéhlíf sem mér áskotnaðist (var viss um að það fengist engin nógu sver á mig -gaf þá ekki blakfélagi minn mér eina sem lá ónotuð heima hjá henni! ég á nú eftir að launa þann greiða!) – né í mjöðmum sem er nú enginn smá sigur. Vöðvafesturnar þar eru bara nokkuð til friðs þessa dagana -það er hjólið og sundið sem bjargar öllu þar. Og svo sit ég minna. Síðan djöflaðist ég við að tjalda vagninum í gær og koma honum í stand þannig að hreyfingin var bara fín og rúmlega það þann daginn!
Í fyrradag fór ég litla Votmúla og synti svo á eftir – það var frábært – frábærast var hvað ég átti létt með það – hjólreiðarnar í vor hafa hjálpað eins og ég held ég hafi verið búin að monta mig af :-).
Vigtin hrapar niður á við – og ég er búin að plana helgina, útilegur eru ekki sérlega léttings-vænar! Auðvelt að borða hvað sem er í þeim – aldrei eins og þá er mikilvægt að hreyfa sig – hnéhlífin og gönguskór,sundbolur og gleraugu verða skoho tekin með í sumar :-).
Sem sagt – ég er svaka ánægð með mig – aftur og enn búin að sýna mér að ég get víst það sem ég VIL:
Ég vil ekki vera konan sem léttist um 40 kg og bætti því svo á sig aftur – með tilheyrandi niðurlægingu.
Ég vil ekki vera konan sem sprakk á limminu og gafst upp!
Ég vil ekki vera konan sem hætti að hreyfa sig og fór að lifa lífi verkjasjúklingsins.
Ég er nefnilega sú sem hugsa í lausnum og því ætla ég ekki að taka svona mörg verkefni að mér – það hljóta að vera til viðlíka frábærir einstaklingar og ég í veröldinni sem geta tekið eitthvað af þeim að sér 🙂
En nú er það söngheftagerð, skonsur, skúffukökur og pizzusnúðar fyrir ættarmótið. Allt á fullu nema ryksugan og því er hér heldur mikið af hundahárum fyrir minn smekk 🙂 Þau bíða og verða hér á eftir líka kem þeim út þá!
Ég held næstum því að ég hafi aldrei skrifað um annað fólk á þessu bloggi nema tala við það fyrst. Það er góð regla. Ég ætla að reyna að hafa hana meira og betur í heiðri en stundum.
Það tilkynnist hér með að ég var að taka til á fésbókinni minni og mér fannst svo góð regla sem einn vinur minn hafði – að hafa bara fólk sem hann á einhver samskipti við í netheimum eða í real life. Þannig að ég bara hreinstaði til hjá mér – eini hópurinn sem ekki verð fyrir niðurskurðarhnífnum var nemendahóparnir mínir. En sem sagt – ekkert á bak við þetta, bara tiltekt :-).