Frábært – ég hreyfði mig í 90 mín í dag plús mogginn! Og er bara ekki svo slæm. Go Inga
Author: ingveldureiriks
Jæja þá er ég búin að prenta út matardagbók – og týna henni. Það er nú vel af sér vikið verð ég að segja.
En hún finns tnú kannski.
Ég er líka bún að vandræðast í vinnunni og gera sama og ekki neitt. Býsnast yfir fótaleysi mínu og hugrekkisleysi og guð má vita hvað.
Ég hef semsagt misst trúna á að ég geti hreyft mig – eða geti nokkurn skapaðan hlut í þeim efnum. Mér hefur farið þvílíkt aftur að það er ekki helt normal…
god ég verð að gera eitthvað í þessu…
Jæja nú er dagurinn runninn upp – upprisan – formleg og óafturkræf.
Loforð dagsins var að fara með blöðin, ganga vel um húsið. matardagbók og sund. Allt gekk nokkuð vel – ég gerði bæði – gönguna, og sundið – og smá hjól um bæinn. Matardagbókin bíður til morguns.
Frábært að byrja að vinna.
Dásamleg athöfn – jarðarförin hennar Jónínu systur mömmu – merkilegur áfangi á lífsins leið, einungis Elín er á lífi af systkinunum. Með þeim fer stór hluti af okkur öllum…
Fór með Hildi og Björg í bæinn – dásamlegt.
Nú er ég bara montin af mér… gúddi púddi – því ég nennti alls ekki en ég fór og synti smá og nokkra metra svona eins og 400
Flottur texti 🙂
I’ve got a couple more years on you, babe,that’s all.
I’ve had more chances to fly and more places to fall.
And it ain’t that I’m wiser – it’s only that I’ve spent
more time with my back to the wall.
And I’ve picked up a couple more years on you, baby, that’s all.
I’ve walked a couple more roads than you, baby ,that’s all.
And I’m tired of runnin’ while you’re only learning to crawl.
And you’re headin somewhere , but I’ve been to somewhere
and found it was nowhere at all.
And I’ve picked up a couple of years on you baby , that’s all.
Now sayin’ goodbye, girl don’t never come easy at all.
But you’ve got to fly ‘cuz you’re hearin’ those young eagles call.
And someday when you’re older, you’ll smile at a man strong and tall.
And you’ll say I’ve got a couple more years on you, baby – that’s all.
I’ve got a couple more years on you baby , that’s all.
You’ll say I’ve had more chances to fly and more places to fall.
It ain’t that I’m wiser it’s only that I’ve spent
more time with my back to the wall.
And I’ve picked up a couple more years on you baby, that’s all.
8. ágúst – ah hvað gömlu góðu fötin mín eru að að vera þægilega mátuleg – óðum að passa í þau….
16. ágúst – ah ég geri það bara á morgun (hreyfingin getur svo auðveldlega beðið…)
Jájá ekkert að frétta nema ósköpin ein – vinn við Grímsævintýri en ekki að hreyfa mig og eta hitaeiningasnautt en – er samt að beina mér inn áákveðnar brautir. Markmið fram yfir helgi
Ekki brauð
Ekki aspartam
Lifa af helgina 🙂
Og á mánudag:
Þrifa á húsi
Hreyfing – hófleg
Mataræði
Regla
námskeið
helgarleyfi
vinna og meiri regla 🙂
Ég er nú bara að verða svolítið ánægð með þetta sumar eins og ég er búin að velta mér uppúr því hvað allt er ómögulegt… en einn hjólatúr, ein ferð að sækja vinninga í búðir á Sefloss fyrir Grímsævintýri, samsett dagskrá og verslunarmannahelgi redda þessa alveg…
Þetta verður sem sagt sumarið sem Ingveldur hjólaði. Og nú þarf að grípa til breiðu spjótanna í því – jamm og já. En það var nú svo sem ekki erindið og heldur ekki að tala um hinn ofurkúl síma sem ég á o nei heldur tala um það sem var á eldhúsborðunum mínum – ég hef einhvern veginn aldrei upplifað svonamikið drasl á mínum borðum – amk ekki svona fjölbreytt…
Opnir brauðpokar – 3. Rababarasulta í stóru keraldi með bökunarplötu ofaná – ofan á bökunarplötunni mátti einni finna eitt og annað… óhrein glös, hrein glös, sódastream floskur, tómar gosflöskur, bráðnað smjör í dollu, borðtuska, lyfin okkar og vítamínin,útilegudót, sundföt já jafnvel nærföt, sjampó, spennur og flísatöng. kertastjakar, gosdósir fullar sem tómar, tómatar, kálhaus, dv, köngulóarvefur síðan í morgun á milli tveggja stórla… nagaður skór eftir frk skottu. Hjálmur og Polli, símar, hleðslutæki, beautibox, bækur af ýmsu tagi, já og svona mætti lengi telja… svei mér þá alla mína daga. Mjög gaman að taka til hendinni :-).
Og nú er ég farin að prjóna íakkorði.
…og svobara bammer það í símanum mínum! vá hvað þetta er cool….
Laugardagur – hjólatúr 10 – 12
Sunnudagur sund á bilinu 16 – 18
Mánudagur- Máttur mjaðmaæfingar hjóla, lyfta og synda létt
Þriðjudagur – langur hjólatúr – 20 – 30 km
Miðvikudagur – Máttur mjaðmaæfingar, léttar lyftur – eftir hluti, 300 m sund og pottur
Fimmtudagur – ganga – misjafnt
Föstudagur – langur hjólatúr 15 – 30 km
Fyrst – dj ég á að fara í sjúkraþjálfun núna á eftir og ég nenni ekki! Nenni ekki, nenni ekki, nenni ekki. En þarf… er að drepast í þessari mjöðm minni hvur andskotinn sem þar er á seyði. Nú svo er bílinn minn horfinn, rp ætlaði að koma með hann klukkan hálf tíu en hefur nú ekki sést… þannig að ganga morgunsins er farin út í veður og vind og allt í bauki og bramli hjá mér þegar plan skekkist svona….
En ég er að fara í Þingvallasveitina og ég læta ekkert aftra mér í því….
Ég er búin að vinna í vefsíðunni í miorgun, lita á mér hárið – í 25 mín ístaðinn fyrir 40 og allt eftir þessu – þau eru ýmis mistökin sem mín kona gerir :-).
Mig langar svo í útilegu núna um helgina að ég er að drepast og ég er að hugsa um að láta verða af því svei mér þá. Lítið farið í sumar. Ég hef ekkert hjólað þessa vikuna en tók svaklega törn í garðinum í gær og það telst nú alveg á við einn góðan hjólatúr…
Ragnheiður gaf mér síma um daginn og hann er svo skemmtilegur og flottur að ég hef nú verið svolítið að dást að honum 😉 Finn út úr sumu og svo alls ekki öðru. Stærstu fréttirnar eru nú samt þær að ég fór á ofnæmislyf í gær og viti menn ég er allt önnur – miklu hressari -fyrradag þeas, langar ekki að liggja í rúminu endalaust…
Þannig að þetta er nú allt í lagi – vonandi er ég eitthvað smá að léttast – hef ekki farið þessa vikuna… hefði átt að fara í morgun en tókst að humma það fram af mér 😉