Já hún Inga lætur ekki að sér hæða

Nú er mín nú bara búin að borða eins og svín í gær og í dag.  Hlýtur að gera mig voða glaða á þriðjudag á vigtinni…  Því ég ætla svo voða mikið að léttast…  Veit greinilega ekkert hvað þarf til þess – amk alveg búin að gleyma því!

Ferleg…

Ein lausn væri að hreyfa sig rosa mikið um helgina – svona eins og 1000 kal meira en vant er – það er svo sem vel viðráðanlegt…

En svei mér þá ég ætla að kaupa mér kort í Nautilíus – ég hlýt að komast niður þennan hringstiga….

Það verður svaka gaman að byrja að lyfta aftur.  Hreyfingin er að koma inn – Blak badminton sund ganga með blöðin og smá hlaup þar á meðal.  Æfingaáætlun tekur fullt gildi í næstu viku vænti ég. 

Mér gengur vel í kennslunni og halda áætlun þar – eldamennska er svakalega lítið í lagi.  Það kemur í næstu viku vonandi eins og allt annað – því þá þarf ég bara að æfa fullt og elda mikið og gera fullt af verkefnum í skólanum….

Já ég verð áreiðanlega með allt á tæru þá…

En það var svaka gaman í blaki

Ég er svaka slæm í maganum

og það er svaka mikill skítur í húsinu.

Og Dísa systir á sko afmæli og bráðum verður Ási 50 ára – svei mér þá…

Færðu inn athugasemd