Ekki nógu einbeitt

Þarf að rifja upp þetta með að borða ekki nammi – ekki heldur í veislum

Aldrei!

Jamm! Er ótrúlega þreytt og eitthvað lerkuð. Er sko að jafna mig á íþróttameiðslunum en er annars bara aum og þreytt – fór samt með moggann seinni partann en ekki í morgun.

Ég er samt ótrúlega þrekmeiri en ég var – sem sagt – þetta fer að verða voða mikill munur!

Tala nú ekki um þegar ég verð búin að hvíla mig svoldið!

öxlin í messi

Það ætlar nú ekki að ganga vel hjá Ingveldi að halda sér í lagi. Ég verð að væla svolítið og svo er ég hætt því í bili – en ég þrífst á væli en svo stend ég nú vanalega upp aftur svona ef skrokkurinn leyfir 😉

Síðast þegar ég fór í blak þá gáfu ristarnar sig.

Nú svo er ég nú búin að synda þessa vikuna og halda út í badminton og hvíla í gær – allt eftir kerfinu og voða fínt! Öll að lagast í löppunum jafnvel og bara farin að finna þennan fræga mun!

Þá meiði ég mig í öxlinni í blaki í dag og er gjörsamlega að drepast.
Hnén eru eins og þau hafi verið lamin með baseball kylfu – svo aum og vitlaus eitthvað.

Já og ekki má gleyma bakinu – það er svona skemmtilegt og til vandræða – ekki búin að vera það í 3 ár!

Það er svo frábært að geta fundið til á nýjum og nýjum stað nú þegar hællinn er að lagast – ristarnar hanga ef ég er í réttum skóm, já og svona almennt bara góð…

Nei þá bætast nýir staðir við. Ég er alveg ægilega leið því ég finn virkilega mun á mér allri við að léttast um þau 9 kíló sem eru farin síðan um áramót – var bara að vona að nú myndi þetta lagast. Nú væri ég að komast á beinu brautina og ekki margs nýs að vænta í því að finna til….

Þetta er náttúrulega allt alveg ótrúlega lítið merkilegt – en dugir mér fínt til að vera hundfúl yfir þessu!

100 pönnsur á morgun fyrir erfi og partý hjá Sls – ég kemst áreiðanlega í gegnum þetta…

Ostur er veislukostur

Og hann át ég með skilum í dag en á móti þá fékk ég mér enga köku sem var í boði – hvað hálfur mexíkóostur – iss piss :-).

Annars er ég góð – mataræði í lagi, hreyfing í meira en í lagi og svefn fínn. Næ engan veginn að gera allt sem ég þarf að gera í vinnunni en reyni og reyni og reyni.

Held áfram að reyna og sætta mig svo við að meira fái ég ekki aðgert.

Er annars nokkuð fers í kennslunni og veit nokkuð hvað ég þarf að gera. Ég þarf t.d. að læra dönsku tölustafina heima svona til þess að líta betur út í kennslunni :-).

Svo er bara ekki langt í helgi og þá er ROSA partý!

Sund í dag og kommóða

Nú eru sko stórir hlutir að gerast – Ingveldur fór að synda – sem er afar mikilvægt því ég ætlaði að gera það! Ég synti í alveg í 45 mínútur sem er vel af sér vikið barasta – eina vandamálið við þetta sund mitt er að eftir 30 mínútur þá verður mér svo ógeðslega kalt – þetta gerðist líka um daginn í Borgarnesi þegar ég synti þar – það er eiginlega hrykalegt að synda svo hægt að maður nær ekki að halda á sér hita! Eiginlega skammarlegt – og ætli það sé y í hrikalegt – hmmmmm….

nú og svo er hirsluinnkaupaskylda á þessu heimili – ég hef ákveðið að það gengur bara ekki að ég eigi ekkert undir dótið mitt og hafi enga vinnuaðstöðu – nú er því verið að setja saman kommóðu sem konan keypti sér fyrir heilar 8 þúsund krónur – skrítið að hafa beðið með þetta í 20 ár eða svo! Næsta mánuð verður síðan keypt hvít Billy hilla með hurðum. Það er sko alveg ákveðið

Svoldið leiðinlegt – ég þarf að fara til tannlæknis og ég get sagt ykkur að ekkert óttast ég meira en fara til tannlæknis! Ekkert – ekki einu sinni Vattanesskriðu…

En sem sagt bara svo það sé til á blaði – er að drepast í ristinni hægra megin – ofar en vanalega og get mig ekki hrært nema á parkódin forte – en ég gat alveg synt það er bara þunginn af sjálfri mér sem ég þoli ekki…. híhí – þarf sem sagt að léttast!

Annars var ég að hugsa ég er búin að vera 140 – 144 kíló endalaust – í ár eða svo – og svo allt í einu skyndilega stendur á vigtinni 133 kíló og hversu gasaleg sem sú tala er þá er hún mjög ókunnugleg og þegar ég er að skrá þetta í motionsdagbog.dk þá er ég alltaf að skrá vitlausa tölu því ég er svo óvön að skrifa 13 og eitthvað ;-). Gasalega tala og allt það en engu að síður annað en 16 og eitthvað…

Mér finnst eins og ég sé komin 2 skref eftir einstiginu…

Og ég fór í Bónus og keypti fullt af hollu og góðu – og mat handa mér í hádeginu líka. Nú er lífið að komast í fastar skorður – vona ég….