Nú eru það björtu hliðarnar.
Ég á orðið máningu á forstofu og klósett – og ég á áreiðanlega eftir að mála það einhvern tímann fljótlega.
Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að vera beðin um að vera veislustjóri á 100 ára afmæli Hvatar – svei mér óvænt og skemmtilegt.
Ég fór í Styrk og var bara nokkuð dugleg.
Ég hef frábæran sjúkraþjálfara sem hugsar svo vel um mig að það er undursamlegt.
Leiser er æði á hælana
Gigtarlyfin virka á ofboðslega vel á ristarnar á mér og því eru það bara hælarnir sem eru aumir.
Mér finnst hroðalega gaman í blaki og í gær vorum við ÁTTA!
Súbarúinn minn er gjörsamlega frábær í hálku og slabbi
Það var svakalega gaman í vinnunni í dag
Ég lít betur út en fyrir tveimur árum síðan
Ég á í bréfaskiptum við fólk í San Diego sem er náskylt mér – ógó skemmtilegt
síðast en ekki síst – ég á ykkur öll að og er því barasta á grænni grein
og svo fer Rankan mín að koma heim og þá geta jólin barasta komið 😉

Hugsa oft til þín og lít reglulega hér inn! Gott að sjá hvað allt er skemmtilegt hjá þér:)>>I miss you! (verður maður ekki að fara að skrifa á ensku afþví að þú ert svona næstum því útlensk 🙂>>Kær kveðja frá stressaðri fyrrverandi brúsagellu.
Líkar viðLíkar við
nah maður hættir ekkert að vera brúsagella sko. Það er sko alltaf hægt að fylla á svoleiðis þó eitthvað tæmist. Sjáumst bráðum og láttu nú skólann ekki alveg ganga frá þér og mundu að ég á amk 30 góð ár eftir enn í ræktinn enn svo ég bara bíð róleg eftir þér
Líkar viðLíkar við