Úff langur mánudagur

Ég segi ykkur það satt að allt frá því að ég steig öðrum fætinum á pallinn fyrir utan dyrnar hjá mér klukkan 6:30 í gærmorgun og skautaði þar um með ekki færri en þrjár töskur í hendinni í glæra hálku sem þar var sem annars staðar og allt þar til ég settist upp í bílinn kl 20:30 var ég á fullu á fundum, kennslu og pælingum – I kid you not!

Og ég þarf að muna eftir því að kaupa vínber á eftir… fyrir kennarasíðdegi í kósíheitum á morgun!

Ég er svo aum í hælunum (bara aum ekki svona eins og um daginn – en það er samt eiginlega ekki bara – því það er ógeðslega sárt) og ristunum að ég er að drepast. Hringdi fékk gigtarlyf – ætla að athuga hvort þau hjálpi mér eitthvað við þessa ristarverki eins og í vor.

Dagurinn í gær var nú ekki snilld í mataræði og grænmetið fer minnkandi en þá er bara að taka á því hið snarasta – en amk er nammi og óhollusta af því taginu alveg úti og það er gott og reglan á hvenær borðað er, er sömuleiðis ágæt.

Svo er ég farin að finna fyrir þessari góðu tilfinningu að finnast sykur hið versta viðbót og þoli lítið sætt – beit í vínarbrauð fyrir helgina og þótti það ekki sérlega gott. Jukk 😉

En best að drífa sig heim og líta á föndur og láta eins og manni komi Styrkur ekki við.

2 athugasemdir á “Úff langur mánudagur

  1. Eins gott að þú hringir í kvöld, fyrst að maður fær lítið að sjá þig á msn.Vona að gigtarlifin geri þetta betra.hér er mikil rigning og maður sér fátt annað en regnhlífar.Ó england, elsku england!

    Líkar við

  2. Öfund….. Öfund….. Öfund…. Öfund… Bíð enn þeirrar stundar að finnast sykur EKKI góður – og hvað þá rétt fyrir jólin!! knús erla

    Líkar við

Færðu inn athugasemd