Að vinna


…á nýjum stað með kunnuglegum boxum og bókum. Ýmislegt sem ég þekki mæta vel satt að segja… Margir kassar með minní skrift á 😀
Ég er að koma mér fyrir – það tekur svolítinn tíma eins og sumir vita mæta vel – það svona þarf að stússast svolítið og finna andann og það allt saman… Hvar á vinnuaðstaðan að vera og hvernig á þetta nú allt að snúa… 9 börn… Tveir kennarar…Jamm það er margt í mörgu skal ég segja ykkur.
En nú er ég búin að finna fyrstu útfærsluna af borðauppröðun svo þetta kemur allt – myndir af því síðar.
En annars er ég byrjuð á því að losa mig við næstu 3 kg en það var í gær. Þann dag byrjaði ég með því að borða fullt af mm og hnetum og eitt tromp – þannig að það var mega byrjun alveg… Fór ekki í Styrk – nennti því nú ekki en lufsaðist þó út að hjóla í gærkveldi… Betra en ekkert… H uhummm….
Nú en ég fékk mér nú bara gulrætur og blómkál í kvöldmat og eitt léttjógúrt þannig að kannski sleppur þetta með hneturnar…
Nú er að sjá hvað sú stutta gerir í dag – alltaf svolítið spennandi hvað hún tekur uppá. Svei mér þá alla mína daga.
Kveðjur og meiri myndir síðar, Inga sem kennir við Ljósuborgar skóla – netfengið er ingveldur@ljosaborg.is

6 athugasemdir á “Að vinna

  1. Ég sé nú fyrir mér að þetta verði eitthvað dúllulegra þegar Ingveldur hefur komið sínu dóti fyrir hmmm….. gangi þér vel!Nú byrjar agi vetrarins úfffffff…. og þá kemur þetta allt þessi 3 kg og jafnvel fleiri fjúka út í veður og vind í haust. Kveðja frá einni sem veit ekki hvernig hún fer af án þín, hvenar byrja íþróttaæfingar??? Verða búnir til gallar fyrir liðið??

    Líkar við

  2. Heyrðu – Vilborg? Vænti að þetta sé þú – Sigurlín er ekki alveg svona punkta og hmmm og úff kona 😉 meira svona niðri á jörðinni. híhí – heyrðu þú náttúrulega verður að hugsa um þetta með gallana því við verðum að mæta í göllum á Öldung í vor. Held það verðir á Ísafirði ógó mikið stuð. Ég er að vísu með ónýtt hné að verða þannig að kannski verð ég bara klappstýra enda alveg að verða komin með vöxtinn í það. Híhí…. Lof jah

    Líkar við

  3. Það skal ég segja þér Ingveldur Eiríksdóttir að þú munt losa þig við þessi þrjú kíló – ANNAÐ ER EKKI Í BOÐI! Ég er þvílíkt spennt – alltaf að kíkja hér inn og fylgjast með tölunum!Eitt sem virkar fyrir suma er grænmetissúpa – hana er svo gott að hafa með í vinnuna, má borða mikið af kalda eða heita og krydda eftir smekk. Þessi uppskrift er mín gjöf til þín svo þér gangi sem allra best.Ath hægt er að nota frosið eða ferskt grænmeti eftir behag: -2 ds. niðursoðnir tómatar – 1-2 ds. vatn – Vel af grænmetiskrafti/nautakrafti– Stór laukur (rauður, hvítur, púrru eða blanda) – Hvíttlaukur 3 – 4 rif – Paprika rauð og/eða græn – fersk eða frosin. – Gulrætur nokkuð nauðsynlegar 3 -5 stk. efitr stærð (gefa sætt bragð á móti tómötunum)– Brokkólí/blómkál/sætar kartöflur/spínat/sellerí eða rófur eða blanda af öllu. Öllu hent í pott og soðið vel – maukað ef vill. Piprað með svörtum pipar og sjávarsalti.Til að breyta til má gera alls konar varíanta. T.d.Setja mikinn hvítlauk og borða kalda.Setja vel af chili/chilidufti eða sósu.Krydda með ferskum jurtum mæli með basiliku.Setja dash af rauðvínsediki eða rauðvíni.Setja doppu af sýrðum rjóma á diskinn.Muna: Elda stóran skammt þvi hún geymsit vel bæði í frysti og kæli.Verði þér að góðu og gangi þér vel!Ásta Björk

    Líkar við

  4. Ég skal hanna gallana ef þú saumar! Jamm…… Vilborg var það heillin.Ásta Björk þetta er frábær uppskrift kannski maður stelist í hana líka ;o)Ingveldur við verðum hot í göllunum tíhíhíííí……

    Líkar við

  5. hæ hæ dúlla:)hér er ég líka að byrja á mínum nýja gamla vinnustað, ætla líka að fara að feta í fótspor þín og markmiðið hjá mér núna er aðná nokkrum af þessum fastagestum af mér……. úff þess aukakílóHafðu það gott og þú ert ávalt velkomin í kaffikv. Sædís

    Líkar við

  6. Takk Sædís. Gangi þér vel – enginn gerir það með meiri glæsibrag en þú þegar þú bara ferð af stað! Gangi þér vel á Bakkanum og dreptu þig nú ekki á vinnu!

    Líkar við

Færðu inn athugasemd