Norður ég fór

Halló öll!

Komin til Gústu – lenti að sjálfsögðu ekki í neinni hálku á heiðum en keyrði í yndislegu veðri um suður og vesturland. Svo var nú á köflum fúlveðraðra norðanlands. En í dag er hér yndislegt veður. Á svo ekki að rigna á morgun.

Ég hugsaði margt og mikið á akstrinum, hlustaði á íslenska tónlist og velti lífinu og tilverunni fyrir mér. Mér finnst svo gaman að keyra. Það er heldur ekki mjög leiðinlegt að keyra Subaruinn ég held varla að ég hafi keyrt ljúfari bíl.

Hér ráða þær Trýna (sem á ömmu sem er mamma Bjarts), og Gústa ríkjum og vonandi nær Gústa að hvíla sig því hún er svo slöpp þó ég sé hér að þvælast. Vonandi hugsar Ragnheiður vel um Bjart minn og sig – og Aðalsteinn vel um sig. Ég held það sé eitthvað stelpustand á honum…

Mataræðið verður að vera svolítið sérkennilegt nú um helgina en ég ætla nú að labba smávegis í dag með Trýnu og reyna að fá mér svolítið grænmeti. Ég er í átaki varðandi það – ég verð að reyna að koma þessu upp í 600 grömm á dag.

Svo kemur Pallinn minn heim um næstu helgi. Það verður nú gaman að fá Færeyinginn minn.

Færðu inn athugasemd