Hvað sýnist ykkur standa hér (tekið af vef Árborgar)?
Sundöll Selfoss v/ Bankaveg sími 480-1960800 Selfoss
Vetraropnun: 15. sept. – 1.apríl
mánud.- föstud. 07:45 – 21:15
laugard – sunnud. 09:00 – 21:15
Sumaropnun: 1. apríl – 15. sept.
mánud. – föstud. 07:45 – 21:15
laugard. – sunnud.10:00 – 20:00
Forstöðumaður: Hafdís Óladóttir sundh@arborg.is
…að það sé opið til rúmlega níu á laugardögum? Jább mér sýnist það – en það er ekki svo – á laugardögum er lokað kl. 18 – það komst ég að eftir að hafa verið búin að mana mig upp í að fara í sund seinni partinn í gær. ARgh hvað ég var fúl – sigh…
En málin rættust á besta veg – Björk var nýkomin úr hlaupi og var að láta renna í pottinn – þar tókst okkur að vera í næstum 4 klukkutíma. Já geri aðrir betur – já og eigi aðrir betri stund, þá er lífið gott. Dásamlegt. Yndislegt… Hún Björk mín er engri lík og ekkert skil ég hvað hún nennir að umbera í mér rausið – ég held að ég sé ekki sérlega góður hlustandi – nenni bara að tala um mig og hlusta á mína eigin rödd. Reyni að laga það…
Batnandi manni er best að lifa og það allt saman.
Annars áttum við Gerður tal um BMI stuðul í gær – og ég bara skil ekki hvað er svona sniðugt við hann – skil það bara ekki – Gerður sem er náttúrulega talnaóð og glöggari en ands… í þeim efnum kann betur við hann.
Hann er reiknaður útfrá hæð og þyngd og einhverju svona og hvernig í ósköpunum getur þá þessi stuðull orðið eitthvað annað en það sem hin sígilda viðmiðunartafla segir að maður eigi að vera þungur – jú það kemur einhver önnur tala út – en eins og í mínu tilfelli þar sem ég var tvisvar sinnum of þung þá hlýtur bmi stuðullinn að vera of hár og það hlýtur að þýða að ég sé offitusjúklingur extreme – þó ég vilji ekkert láta kalla mig sjúkling alheilbrigð konan.
Nú og motionsdagbogen min segir náttúrulega að bmi stuðullinn hafi verið helmingi of hár og fari lækkandi – ég meina vá – gaman að búa til formúlur. það sem ég vil vita er fitumagn versus vöðvar. Ég sé eftir að hafa ekki farið í svoleiðis í upphafi en nú ætla ég að bæta úr því.
Það er það sem ég vil sjá – ég vil sjá vöðvana magnast og fituna víkja – þó svo ég léttist kannski ekki sérlega mikið. Jamm – svo ég ætla bara til hennar Betu í svoleiðis. Þá er það ákveðið… Ekkert eftir nema að hringja 😉 Ætli sé ekki dónalegt að hringja á sunnudegi?
En sem sagt. Ég er hér úti í skóla að byrja að vinna – munið að ég þarf alltaf að blogga fyrst ;-). Það verður vonandi til þess að ég vinn betur. Nú er amk að duga eða drepastí vinnunni – það eru svo ofboðslega mörg verkefni sem bíða. Oh yeah…
Fór ekki að labba í dag – fer kannski að labba seinnipartinn. Ég er bara svolítið aum alls staðar – kannski næ ég í hjólið… Fer eftir hvernig stendur á hjá Pálma
en nú er ég amk farin að vinna,
elska ykkur öll
Setið inn í kerfið hjá ykkur að þó ég sé að skrifa eins og bullustampur um sjúkraþjálfarann minn þá er þetta að sjálfsögðu bara mín upplifun, mín klikkun, mínir brandarar um samskiptin – hann er náttúrulega bara saklaust fórnarlamb hér á síðum bloggsins míns. Takið því öllu með þeim fyrirvara að þetta eru afskaplega einhliða skrif.
Ykkar Inga
Lengi lifi Baldur. Þessi skrif þín sýna að hann er samviskusamur og fer ekki auðveldustu leiðina að settu marki. Það hefði verið einfaldast fyrir hann að nudda þig þegjandi og hljóðalaust – EN þar sem ber greinilega hag ‘sjúklinga’ sinna fyrir brjósti þá gerði hann það ekki. Sem betur fer – ekki satt!!
Og – lengi lifi þú Inga mín – og m.a.s. á mun ljúfari nótum með þessu áframhaldi!!!
kk Erla perla
Líkar viðLíkar við
Ég hef eiginlega svolitlar áhyggjur af honum Baldri- ég held hann geti orðið óþolandi montinn af þessari mæru allri sem ég eys hann – og fleiri 😀 En líklega á hann það skilið blessaður – það hafa ekki allir komið vitinu fyrir Ingveldi þó á lengri tíma hafi þeir reynt :D.
Líkar viðLíkar við
Vinna á sunnudegi!! Átti það ekki að vera hætt?
Annars verð ég bara að svara þér frá síðast. Við hjónin skelltum okkur á tónleika í Laugardalshöll á föstudagskvöldið, sem sálinni og Gospell kór Rvk. Það er ástaæðan fyrir að ég var svona lengi á ferli. En ég segi það sama og einhver sagði: Veistu hvað 15 kíló eru MIKIÐ!!!!
Þú ert ekkert smá dugleg!
Sjáumst á morgunn!
Kv Sigurlín
Líkar viðLíkar við
Ég bara vann svo lítið í síðustu viku að ég hreinlega varð að vinna það upp!
Líkar viðLíkar við