
Dúndrandi sveifla í gangi ha? Amk fór ég í göngutúr sem var sko ekkert smá – ég óð hér um í klst með hann Bjart minn um víðan völl. Leit á garðframkvæmdirnar hjá henni Vilborgu minni stoð og styttu. Mikið held ég hún verði glöð þegar þetta verður komið vel af stað – já og jafnvel bara búið. Ummm dásamleg tilfinng áreiðanlega. Ég var svo sveitt þegar ég kom heim að það rann af mér í stríðum straumum enda í þykkri peysu – líkamsstarfssemin hjá minni er bara öll að taka við sér.
Ég bryð svo bara panodil við hausverknum og er á köflum bara ágæt – fann ég var betri þegar ég vaknaði í morgun – eftir 5 tíma svefn – ég sef allt of lítið – ég er svona eins og ég sé í sambandi við háspennulínu þegar svefntíminn er annars vegar. Kannski er það þrýstingurinn líka! En nú ættu lyfin að fara að virka.
Nú jæja ég fór í nudd í dag eftir ræktina og það var svo gott – mér finnst svo GOTT í nuddi að ég gæti bara dáið. Samt var það nú á köflum vont – hann var að hjakka í hnakkanum á mér og þar er nú ýmislegt óþægilegt – hann hefur bara ekki viljað trúa því – og kannski finnst honum það ekkert merkilegt. En ég er svolítið að stífna – ég er náttúrulega ekki hægt – ég er bara krónískt streitu og vöðvabólgu case. Ég ætti kannski bara að fara til sálfræðings – ja það væri það. Þarf maður ekki að ná heilsu á líkama OG sál? Heldðanú.
Annars er Baldur all going soft on me – ég held hann haldi að ég sé taugaflak og þori því ekki að beita sér af neinum krafti 😀 – tíhíhí – sem er náttúrulega ekki nema að hluta til rétt. Hitt gæti náttúrulega verið að hann þyrfti bara ekkert orðið að skamma mig – ég væri bara að standa mig svo vel :D.
Nú þarf ég bara að skrönglast í Bónus og versla inn svo þetta sé allt á hreinu hér á heimilinu og ekki nein vitleysa í gangi hvorki auralega né matarlega séð.
Nú ætla ég að sjá hvort mér takist ekki að taka til um helgina – ég verð hér heima í rólegheitum. Ég bara HLÝT að geta komið einhverju í verk.